Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.1994, Blaðsíða 42
50
LAUGARDAGUR 9. JÚLÍ 1994
Afmæli
Þótt þórður hafi fengið margar viðurkenningar á landsmótinu má vafalaust telja handtak Sigurðar Haraldssonar
í Kirkjubæ, ræktanda Rauðhettu, með þeim mikilvægari.
Þórður Þorgeirsson, tamningamaður frá Kirkjubæ:
Það gefur lífinu gildi
að temja góð hross
„Ég er búinn að vera í hesta-
mennsku alveg frá því að ég var bara
smápatti en ég fékk áhugann frá for-
eldrum mínum sem voru í hesta-
mennskunni til margra ára. Síðan
fór ég í sveit á sínum tíma, bæði í
Víðiholti í Skagafirði og í Skarði í
Landsveit og þá blossaði nú áhuginn
upp fyrir alvöru," segir Þórður Þor-
geirsson, tamningamaður á
Kirkjubæ, en Þórður vakti mikla at-
hygli á Landsmóti hestamanna á
Gaddstaðaflötum um sl. helgi en þá
mætti hann með tæplega 30 hross
sem flest höfnuöu í toppsætum.
Hefur þjálfað hesta
frá 17 ára aldri
Þórður, sem er fæddur í Reykjavík
árið 1964, hefur haft atvinnu af því
aö þjálfa hesta síðan hann var 17 ára
gamall en hann rekur nú tamninga-
stöð á Kirkjubæ. Þangað fluttist
hann sl. haust. Þar áður bjó hann á
Hellu.
„Ég starfaði viö tamningar á stóð-
hestastöðinni í Gunnarsholti áður en
ég fluttist austur eða frá 1992-93 og
það var gífurlega góður tími og mik-
ill lærdómur í því. Þaö gefur mér
alveg afskaplega mikið að fá að mn-
gangast og temja góð hross. Það gefur
lífinu gildi hjá mér að minnsta kosti.“
Þrátt fyrir að hestamennskan taki
allan tímann hjá Þórði segist hann
nú samt vera algert „sportidíót" eins
og hann kallar það sjálfur.
„Það er lítið annað sem ég geri og
þegar ég lít í biöðin þá er það bara
sportið sem ég les. Ég spriklaði heil-
mikið í fótbolta og handbolta, aðal-
lega handbolta, þegar ég bjó í Garða-
bænum á sínum tíma. Ég þurfti þó
að gera upp á milli þess að mæta á
handboltaæfingar sex sinnum í viku
eða að stunda hestamennskuna og
hestamennskan varð ofan á.“
Þýðir ekkert
að slá slöku viö
Þórður býr á Kirkjubæ ásamt unn-
ustu sinni, Ingu Jónu Kristinsdóttur,
sem starfar við skrifstofustörf á
Hellu, og syni þeirra, Kristni Reyr,
sem er sex ára gamall.
„Kristinn er nú strax kominn með
delluna eins og við foreldrarnir og
hann tekur mikinn þátt í þessu öllu
með okkur.“
Þórður segir að það sé engin 9-5
tíma vinna aö starfa í hestamennsk-
unni heldur er þetta stööug vinna
allan sólarhringinn og ef vel á að
vera þá þýðir ekkert að slá slöku við.
Þórður nýtur stuðnings Ingu Jónu
við tamningamar og aðstoðarmanns
síns, Magnúsar Benediktssonar, en
hann segir þau hafa verið með um
30 hross á húsi í vetur. Dómstörf
hafi síöan byrjaö snemma í vor og
þá hafi hrossin verið tekin út með
landsmótið í huga.
„Þetta gekk fraipar vonum hjá okk-
ur en við fórum með 28 hross inn á
mótið sem er mjög gott. Svona verk-
efni hefði náttúrlega aldrei hafst
nema með aðstoð frá góðu fólki. Ef
svona er vel skipulagt og haft mark-
visst í huga hvernig maður á að snúa
sér í því þá á það að ganga upp með
góðu fólki,“ segir Þórður.
„Þetta er auðvitað mikil viður-
kenning fyrir mig og mín störf að
þetta skyldi hafa gengið svona vel.
Mótið er stærsta mót sinnar tegund-
ar í hestamennsku og þar er vett-
vangur til að standa sig vel upp á
framhaldið að gera. Landsmótið er
án efa stærsta stundin á ferhnum
mínum og þaö stendur ofar öllu.“
Þórður segir samkeppnina í þess-
um bransa mjög mikla og breiddina
meiri en nokkum tímann áður. Hann
segir hrossin ahtaf verða betri og
betri og sömuleiðis knapana og
tamningamennina.
Það verður mikið um að vera á
næstunni hjá Þórði því framundan
era heilmörg mót sem hann ætlar
að taka þátt í og svo stórar sýningar
í ágúst, bæði kynbótasýningar og
gæðingakeppnir.
„Ég stefni að því aö halda mínu
starfi áfram og reyna að gera enn
betur þó svo manni fmnist það harla
langsótt þar sem það hefur gengið
svo ofsalega vel. En það er samt aldr-
ei að vita,“ segir Þórður að lokum.
Hópurinn sem hjálpaði til á landsmótinu. Frá vinstri: Kristinn Eyjólfsson, Anna Magnúsdóttir, Agúst Sigurðsson,
Guðjón Sigurðsson, Þóröur Þorgeirsson og sonur, Kristinn Reyr, Kristín Þórðardóttir, Inga Jóna Kristinsdóttir,
Anna Kristín Baldvinsdóttir, Magnús Benediktsson, Eyjólfur Kristinsson og Helga Ásgeirsdóttir. DV-myndir E.J.
Hrefna Birgitta
Bjamadóttir
Hrefna Birgitta Bjarnadóttir, skóla-
stjóri Nuddskóla íslands, til heimilis
að Jakaseh 29, Reykjavík, verður
fertugámorgun.
Starfsferill
Hrefna fæddist í Reykjavík en ólst
upp í Kópavogi. Hún lauk sjúkral-
iðaprófi frá SjúkraUðaskóla íslands
1981, hóf námi í nuddi 1988 og lauk
prófum frá Acomatherapy skóla ís-
lands hjá Önnu Edstrom og frá
Svæðameðferðarskóla íslands hjá
Emi Jónssyni en hún öðlaðist
meistararéttindi í ársbyriun 1993.
Þá stundaði hún nám í kUnik við
Acomatherapy skóla hjá Shirley
Price í Hinkley á Englandi og stund-
aði framhaldsnámskeið hjá Félagi
íslenskra nuddara í Kinesologi en
kennari hennar þar var Jarle Tams-
en.
Hrefna er nú annar tveggja skóla-
stjóra Nuddskóla íslands sem sér
um verklega kennslu á nuddbraut
Fjölbrautaskólans við Ármúla.
Hrefna er einn af stofnendum
kvennadeildar knattspyrnu í
Breiðabliki. Hún lék handbolta með
meistaraflokki Vals í fjölda ára og
með kvennalandsliðinu í handbolta,
auk þess sem hún lék með 1. deildar
Uðinu Stabæk í Ósló í eitt og hálft
ár. Hún hefur verið formaður í Fé-
lagi íslenskra nuddara sl. tvö og
hálftár.
Fjölskylda
Hrefna giftist 16.10.1976 Bimi Otto
HaUdórssyni, f. 7.9.1953, húsasmið.
Hann er sonur HaUdórs Kr. Ingólfs-
sonar, húsasmiðs og verkstjóra í
Reykjavík, sem er látinn, og Ellýjar
Ingólfsdóttur húsmóður. Hrefna og
Bjöm Otto skUdu fyrr á þessu ári.
Sonur Bjöms frá því áður og Önnu
FUipíu Sigurðardóttur er GísU Kr.
Bjömsson, f. 8.1.1971. Börn Hrefnu
og Bjöms em Kristbjörn Helgi
Bjömsson, f. 10.12.1977, nemi við
Fjölbrautaskólann í Breiðholti;
Katrín EUý Björnsdóttir, f. 11.1.
Hrefna Birgitta Bjarnadóttir.
1979, nemi; Björn Ragnar Björnsson,
f. 15.6.1983, nemi; Birgir Magnús
Björnsson, f. 26.2.1986, nemi.
Hálfsystkini Hrefnu, samfeðra: dr.
Ingvar Bjarnason, f. 1951, læknir í
London, kvæntur Katerine Bjarna-
son og eiga þau þrjú börn; Salbjörg
Bjarnadóttir, f. 1956, geðhjúkrunar-
fræðingur í Reykjavík, og á hún
þrjú börn; Björn Andres Bjamason,
f. 1957, bifreiðasmiður í Reykjavík,
kvæntur Sigurbjörgu Hjörleifsdótt-
ur og eiga þau þrjú börn.
Hálfsystkini Hrefnu, sammæðra:
Laufey Katrín Kristjánsdóttir, f.
1958, húsmóðir í Kópavogi, gift
Stanko MUjevic og eiga þau þijú
börn; Helga Elísabet Kristjánsdótt-
ir, f. 1962, læknaritari, búsett á Sel-
tjarnarnesi, gift Aðalsteini Sigur-
hanssyni og eiga þau þrjú börn;
Heiðrún Lára Kristjánsdóttir, f.
1966, verslunarmaður, búsett í
Kópavogi, gift Guömundi Guð-
mundssyni verslunarmanni.
Foreldrar Hrefnu: Bjarni Pálm-
arsson, f. 11.2.1930, hljóðfæraleikari
og leigubfistjóri í Reykjavík, og Gísl-
ína Helga Magnúsdóttir, f. 9.2.1934,
d. 22.5.1991, matráðskona.
Helga heldur upp á afmæUð að
heimUi sínu laugardaginn 9.7. mUli
kl. 17.00 og 19.00.
afmælið 10. júlí
90 ára 60 ára
Sigfriður Jónsdóttir, Andrés Helgi Bjarnason,
rivaíiiini, íiUbavm. Ásgeir Halidói-sson, Sólvallagötu 1, Hrísey.
85 ára 50 ára
Ástríður Sigurjónsdóttir,
Grænumörk 3, Selfossi.
80 ára
Gísli J. Halldórsson,
Birkiteigi 6 D, Keflavík.
GísUeraðheiman.
ÓmarV. Jónsson,
Nýbýlavegi 70, Kópavogi.
Hildigerður Skaftadóttir,
FiskhóU 9, Höfn í Homafirði.
Margrét Valdimarsdóttir,
FífuseU 35, Reykiavik.
Rögnvaldur Þórðarson,
Fossvegi 13, Siglufirði.
Anný Petra Larsdóttir,
Sveinbjamargerði U, Svalbarðs-
strandarhreppi.
Guðmundur Ólafsson,
Sólbraut 19, Seltjarnarnesi.
Ástriður Jónsdóttir, ^ áf3_______________________
Daibraut 20, Reykjavik. Helga S. Ingimundardóttir,
Tunguvegi 12, Njarðvík.
Steinþór Jóhannsson,
Næfurási 10, Reykjavík.
-----1------—------ Anna Bergsteinsdóttir,
Magnús Guðmundsson, HeijóUsgötu 34, Hafnarfirði.
Búðavegi 52, Fáskrúðsfirði. Sigrún Björnsdóttir,
Bergþóra Bjamadóttir, Sandabraut 4, Akranesí.
Skólagarði2, Húsavík. Eysteinn Gústafsson,
Elísabet Andrésdóttir, Áshlíð2, Akureyri.
Fossgötu 2, Eskifirði. GísliTorfason,
Þóra Stefánsdóttir, Lágmóall.Njarövík.
Skildinganesi 34, Reykjavík. Jón Sigurður Jóhannesson,
Anna Kristjánsdóttir, BarmahUð 41, Reykjavík.
Silfurgötu 21, Stykkishólmi. Steinimn Björk Birgisdóttir,
Gísli Kristjánsson, Lálandi 9, Reykjavik.
Digranesheiði 13, Kópavogi.