Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.1994, Blaðsíða 28
LAUGARDAGUR 9. JÚLÍ 1994
36
íþróttir
Romario hefurfram að þessu verið í hópi bestu leikmanna á heimsmeistara-
mótinu. í dag mun mæða mikið á honum og félaga hans, Bebeto, í fremstu
víglínu Brasilíu gegn Þjóðverjum.
Heimsmeistarakeppnin í knattspymu:
Bebeto lofar
nýfæddu barni
sínu sigri
gegn Hollandi
- 8-liöa úrslitin fara fram um helgina
Hvaða þjóðir leika til úrslita á
HM og hverjir hampa titlinum?
Ásgeir Elíasson: Brasilíumenn og
Þjóðverjar leika til úrslita og Brasil-
íumenn verða heimsmeistarar.
Atli Eðvaldsson: Þjóðverjar og Svíar
og Þjóöverjar hampa síðan heims-
meistaratitlinum.
Valtýr Björn Valtýsson: Ég skýt á
Brasilíumenn og ítali og heimsmeist-
aratitilhnn fellur síðan ítölum í
skaut.
Ormarr Örlygsson: Brasilíumenn og
Þjóðverjar og ég vona að Brassamir
vinni titilinn.
Ólafur Þórðarson: Þjóðverjar og
Rúmenar og ætli Þjóðverjar vinni
ekki eina ferðina enn.
Þorgrímur Þráinsson: Ég tippa á úr-
slitaleik á milh ítala og Brasihu-
manna og ætli ítalir fari ekki með
sigur af hólmi.
HM-FRÉTTiR
Mattháus jafnar metið
Lothar Mattháus sagði í gær
allar hkur á því að hann iéki með
þýska höinu gegn Búlgaríu á
morgun. Hann leikur þá 21.
iandsieik sinn í úrshtum HM en
þetta er fjórða keppni hans á ferl-
inum.
Á morgun klæðist hann lands-
iiöspeysunni í 117. sinn og hefur
enginn annar útileikmaður leikið
fieiri landsleiki. Aöeins Peter
Shiiton og Pat Jennings léku fieiri
leiki.
Hógværðin uppmáluð
Lothar Mattháus er hógværðin
uppmáluð eins og hann er annál-
aður fyrir. Hann segir að metið
skipti sig engu máh, mestu skipti
aö þýska liðið nái árangri í
keppninni og fari helst aha leiö.
Hann segir að hann æth að taka
sér gott frí eftir keppnina og ræða
framtíð sína með landsliöinu við
tjölskyldu sína.
Hollendingar óhressir
Hohendingar er ekki hressir
með að leika gegn Brasilíu í Dah-
as í dag. Hitinn er mestur í Ðallas
á þeim stööum sem keppnin fer
fram.
Leikmenn hafa kvartað sáran
yfir hitanum og rakanum. Holl-
endingar telja að það komi Bröss-
um til góöa aö leika í Dallas enda
vanari hitanum heiman frá en
Hollendingar.
Niu dómarareftir
Níu dómarar er enn eftir í
Bandaríkjunum og eiga þelr ahir
jafna möguleika á aö fá leiki sem
eftir eru í keppninni. Þess má
geta að Mexíkaninn, sem dæmdi
leik Ítalíu og Nígeríu, og Sýrlend-
ingurinn, sem dæmdi leik Búlg-
aríu og Mexíkó, fengu báðir að
pakka niður í tösku og halda
heim á leið.
Fimmtímaseinkun
Hohenska liðið tafðist um fimm
klukkutíma á flugvelhnum í Or-
lando en þaðan flaug hðið th Dali-
as. Hollenskur blaðamaöur grín-
aðist meö það i vopnaskoðuninni
að hann væri með sprengju í fór-
um sínum.
Öryggisverðirnir tóku mann-
inn alvarlega og kerfið fór af stað
og úr varð ahsheijar leit sem
kostaði nærri fimm tíma seinkun
á fluginu.
Gott gengi Evrópu
Evrópuþjóðirnar á HM hafa
slegið í gegn og segja fræðingar
að langt verði þangað til sjö þjóð-
ir frá Evrópu vinni sér aftur sæti
í 8-liða úrslitum. Bobby Charlton
segir að þriggja stiga reglan hafi
komið Evrópu til góða því aö hðin
þaðan leggi meira upp úr sóknar-
leiknum.
Hann hrósar þó Nígeríu í há-
stert og segir að þess verði ekki
langt aö bíða aö lið þaðan fari
aha leið.
Tími Brassanna kemur
Bobby Charlton segir enn frem-
ur að Brashía hafi enn ekki sýnt
í keppninni hvaö í raun búi í liö-
inu. Aðeins Romario og Bebeto
hafi sýnt sínar bestu hliðar. Liöið
hafi þó enn tækifæri og það kæmi
honum ekki á óvart að liðið fengá
tithinn að þessu sinni.
Hagi verið bestur
Að mati Bobbys Charltons hef-
ur Gheorghe Hagi verið besti
leikmaður keppninnar og einnig
hefur hann hrifist að Jurgen
Khnsmann. Bobby bætti við að
honum fýndust dómararnir vera
fuh spjaldaglaðir.
Að loknu þriggja daga fríi í heims-
meistarakeppninni í knattspyrnu
bíða knattspyrnuáhugamenn eflaust
óþreyjufullir eftir því að boltinn fari
aftur af stað í dag. Tveir leikir eru á
dagskrá í 8-liða úrslitum í dag.
Klukkan 17 leika Spánverjar og ítalir
og klukkan 20.30 hefst viðureign
Hohendinga og Brasihumanna. Á
morgun leika síðan Búlgarar og
Þjóðverjar klukkan 17 og um kvöldið
klukkan 20.30 leika Rúmenar og
Svíar.
Liðin hafa notað vikuna til léttra
æfinga og leikmenn, sem átt hafa í
meiðslum, hafa verið hvhdir th að
þeir gætu verið leikhæfir um helg-
ina. Það hefur komið fram í viðtölum
við þjálfara þjóöanna sem eiga sæti
í 8-liða úrshtunum aö þó nokkur tími
æfinganna hafi farið í að æfa vita-
spymur. Meiri líkur eru á því að ein-
hverja leikina þurfi að útkljá með
framlengingu og jafnvel vítaspymu-
keppni.
„Við með sterkara iið“
Roberto Baggio, hetja ítala frá leikn-
um við Nígeríu, segir að ítalska liðið
hafi ekki enn þá sýnt raunverlega
hvað búi í liðinu. „Við sýndum gífur-
legan styrk þegar við unnum Níger-
íumenn einum færri og ég held að
úrshtin í þeim leik hafi gefið liðinu
byr undir báða vængi. Við erum með
sterkara lið á pappírnum en Spán-
verjar en það má alls ekki vanmeta
spánska hðið og raunar ekkert hð sem
komið er aha leið í 8-liða úrsht. Við
verðum að hafa í huga að átta bestu hð
heimsins era komin í átta hða úrsht
og ekkert lið getur fyrir fram bókað
sigur,“ sagði Roberto Baggio.
„Ég geri mér fuhkomnlega grein
fyrir því að leikurinn gegn ítölum
verður erfiður. Ég er ánægður með
frammistöðu hðsins th þessa. Við
erum komnir í 8-liða úrslit, nokkuð
sem margir áttu ekki von á. Liðið er
blanda af reyndari mönnum og þeim
sem búa yfir lítilli reynslu með
landshðinu. Þetta hefur komið vel
út en spurningin er hvort þetta næg-
ir okkur áfram í undanúrshtin. Öh
viðbót úr þessu verður stórkostleg
fyrir spænska knattspymu," sagði
Clements, þjálfari Spánverja.
Hinn baneitraði Bebeto er bjart-
sýnn á að Brasihumenn leggi Hoh-
endinga að velh. Bebeto var í sjöunda
himni í fyrradag en þá fæddi eiginkona
hans þriðja bam þeirra. Bebeto sagði
við fréttamenn að hann lofaði nýfædda
baminu sínu sigri gegn Hollendingum.
„Ekkert annað en sigur“
„í mínum huga kemur ekkert annað
th greina en sigur gegn Hohending-
um. Hollenska hðið leikur opinn
sóknarleik, markvissari en þau hö
sem við höfum leikið gegn th þessa
í keppninni. Ég held að við fáum
meira pláss th að leika en áður. Við
erum ákveðnir að sigra og tryggja
okkur sæti í undanúrslitum í Los
Angeles," sagði Carlos Alberto Par-
reira, þjálfari Brasihu.
Rúmenar eyddu næstum öhum sín-
um æfingatíma í gær'i vítaspymur
en æfingin fór fram fyrir luktum
dyrum. Aimenningi og fréttamönn-
um var haldið frá æfingasvæðinu.
Anghel Iordanescu, þjálfari Rúmena,
bjóst ekki við miklum breytingum á
liðinu frá síöasta leik. Florin Raduci-
oiu kæmi inn aö nýju.
Thomas Ravelli stendur í marki
Svía í 115. skipti og jafnar þannig
met Bjöms Nordqvists. „Ég hef reynt
að hugsa sem minnst um þessa lands-
leikjajöfnun en meira um leikinn sjálf-
an sem skiptir meira máh,“ sagði Ra-
vehi markvörður, elsti leikmaður
sænska hðsins, 35 ára að aldri.
HM-FRÉTTIR
Zolafékk2leiki
Gianfranco Zola fékk tveggja
leikja bann vegna brottreksturs-
ins gegn Nígeríu. Að auki var
hann dæmdur til að greiða 280
þúsund króna sekt. Dómur þessi
þykir í meira lagi harður. Búlgar-
inn Emh Kremenliev fékk eins
leiks bann og 120 króna sekt.
Hálf milljónísekt
Argentínumenn þóttu sýna
ósæmhega hegðun eftir tapið
gegn Rúmeniu og dæmdi FIFA
þá til að greiða tæplega hálfa
mihjón króna í sekt fyrir vikið.
Þetta sýnir að FIFA tekur engum
vettlingatökum á uppákomum á
HM en mörgum þykir þó sam-
bandið hafa gengiö fuhlangt í
sumum rnálum.
Kierro á batavegi
Aö sögn talsmanns spænska
knattspymusambandsins leikur
Femando Hierro að öhumlíkind-
um gegn Ítalíu í dag. Hierro tók
það rólega á æfingum í vikunni
og er á góðum batavegi. Hierro
leikur stórt hlutverk i spænska
liðinu og leggur þjálfari hösins
áherslu á að hann geti leikiö með
hðinu í dag.
Spánnnotað
20 ntenn
Spánvetjar hafa notað 20 leik-
menn af 22 sem lögöu upp í
keppnina. Ekkert annað hð hefur
notað fleiri leikmenn. Spánverjar
hafa veriö óheppnir með meiðsh
og að auki hefur hðið misst menn
í leikbann vegna brottreksturs.
Forsetinngagnrýnir
Mexíkóska hðið kom th Mexí-
kóborgar í fyrrakvöld eftir að
hafa verið slegið út úr 16-liða úr-
slitunum. Við komuna höfðu
menn ýmsar skoðanir varðandi
gengi hðsins í keppninni. Forseti
knattspyrnusambandsins, Carlos
Sahnas, stóöst ekki freistinguna
þegar hann var spurður hvaö
hefði farið úrskeiðis. Hann gagn-
rýndi þjálfarann fyrir Ieikskipu-
lagið og er ekki víst að þjálfarinn
haldi sæti sínu.
Svensson bjartsýnn
Tommy Svensson, þjálfari
sænska landshðsins, er bjartsýnn
fyrir leikinn gegn Rúmeníu á
sunnudagskvöldið. „Andlegt
ástand leikmanna er gott og
menn í góðu jafnvægi. Þetta
hjálpar okkur í leiknum og það
yrði gaman ef Svíum tækist að
vinna sér sæti í undanúrslitum í
fýrsta skiptið S 36 ár, eða þegar
keppnin var haldin i Svíþjóö
1958,“ sagði Tommy Svensson.
Tvísýnt með Sammer
„Ef viö heföum átt að leika gegn
Búlgaríu gær er ég hræddur um
að Matthias Sammer hefðí þá
ekki leikið með okkur. Það er
tvísýnt hvort hann verður búinn
að ná sér af meiðslunum, það
munar um hvern dag og við verð-
um bara að vona að hann verði
klár í slaginn," sagði Bert Vogts,
þjálfari Þjóðverja.
Basten í uppskurð
Marco van Basten þarf að gang-
ast undir þriðju aðgerðina á
ökkla í næstu viku. Meiðslin hafa
komið í veg fyrir knattspyrnuiðk-
un í 18 mánuði og getur allt eins
farið svo aö ferill þessa frábæra
knattspyrnumanns sé á enda
runninn. Aðgerðin fer fram í
Belgíu og bíða forráðamenn AC
Milan með öndina í hálsinum
hvernig til tekst.