Alþýðublaðið - 06.04.1967, Page 1
Fimmtudagur 6. apríl 19B7 — 48. árg. 76. tbl. VERÐ 7 KR.
Norðurlönd
vilja semja
við EBE
GENF, 5. apríl (NTB) - Sendi-
nefnd Norðurlanda í Kennedy-
við'ræffunum rnn alþjóffleg'ar
tollalækkanir hefur sent sendj-'
nefnd Efnahagsbandlalagsihs til-
lögu, sem hefur þaff í för meff sér
aff viffræffurnar komast á nýtt stig,
aff sögn talsmanns norrænu sendi
nefndarinnar.
Þessi almenna tillaga er í raun
og veru uppkast að tvíhliða samn-
ingi milli Norðurlanda og Efna-
ihagsbandalagsins um gagnkvæm-
ar tollalækkanir, samkvæmt góð-
um heimildum. Þar með draga
Norðurlönd til baka lista þ'á, sem
þau hafa lagt fram um tilboð um
tollalækkanir, en þegar slík til-
Iboð eru lögð fram er áskilinn rétt
ur til að draga tilboðin til baka
ef mótaðilinn gerir ekki tilslak-
anir á móti. Til þessa hafa þessir
listar verið grundvöllur afstöðu
norrænu sendinefndarinnar.
Aukin eining
vinstrisinna
í Frakklandi
PARÍS, 5. apríl
(NTB-Reuter)
Fránski jafnaffarmannaleifftog-
iun Guy MoIIet skýrði frá því
í dag í vifftali viff tímaritiff „Nou
vel Observateaur", aff vinstri
flokkarnir í Frakklandi affrir en
kommúnistar hefffu í september
1965 gert meff sér Ieynilegan
samning er gerffi ráff fyrir auk
inni einingu flokkanna um næstu
áramót. Flokkarnir hafa staffiS
saman í kosningabandalagi, sem
hlaut 121 þingsæti í kosning-
unum á dwgunum.
Mollet kvaðst telja þennan
samning bindandi fyrir alla flokk
ana og vill að sameiningu þeirra
verði hraðað. Hann kvaðst vona,
að flokkur Pierre Mendes-France
fv. forsætisráðherra gengi í
Vinstriflokkabandalagið.
Samkv. áreiðanlegum heimildum
lialda flestir ráðherrar í stjórn
Georges Pompidous, sem sagði af
sér í síðustu viku, embætt.um sín
um í hýju stjórninni, sem skipuð
verður í vikulokin.
Sa'gt er, að listarnir hafi þjón-
að sínum tiigangi. Listarnir hafi
leitt til þess að gagntilboð EBE
hafi batnað nokkuð, en hins vegar
sé ekki unnt að byggja viðræðum-
ar endalaust á neikvæðum þatt-
um eins og hótunum og viðvörun-
arlistum.
í staðinn hafa Norðurlönd á-
kveðið að fara þá leið að bera fram
fram eina heildartillögu, og er
talið að hér sé um að ræða mik-
ilsverða viðleitni til að koma við-
ræðunum inn á jákvæðari brautir.
Norðurlönd hafa afhent EBE ná-
kvæman lista yfir tilslakanir sem
þau eru fús að fallast á og jafn-
nákvæman lista yfir tilslakanir
sem vænzt er að EBE geri.
Of snemmt er að segja um
hvernig EBE muni bregðast við,
en norrænu fulltrúamir draga
ekki dul á það að enn sé mikill
munur á tilboðum EBE og heild-
, artilboði Norðurlanda. Sendinefnd
EBE mun gefa framkvæmdastjóm
inni skýrslu um tillögu Norður-
landa og verða þær eitt aðalmálið
á ráðherrafundi EBE á mánudag-
inn.
□ í skýrslu sem ráðherranefnd
EBE hefur látið gera og birt var
Framhald á bl. 14.
Ódýra húsiff viff Reynimel.
Alþingi kemur
saman í dag
Alþingi kemur saman til fundar í
dag aff löknu páskahléi, og hefst
þá lokasprettur þingsins fyrir
kosningarnar. Eldhúsumræffur
fara fram á þriffjudag og fimmtu-
dag í næstu viku.
Hagkvæmast að færri
aðilar byggi íbúðir
Reykjavík — KB
Blaðafregnir sl. daga hcrma
aff Byggingarsamvinnufélag
sjómanna og verkamanna í R-
vík hafi nýlega byggt íbúffir
fyiir mun lægra verff en al-
mennt gerist og miklu lægra en
almennt söluverff er á sams
læn^r íbúð'um. Eru fjögurra
herbergja íbúffir seldar á 680
þúsund, fimm herbergja á 555
þúsund til 595 þúsund og 2ja
lierbergja íbúffir á 480 þúsond.
Þeim, sem Alþýðublaðið hef-
ur talað við um þéSSi mál, ber
sáman ura, að mikýl fengur sé
að því að hafa fengið upplýsing
ar um þessa ódýru byggingu og
eflaust megi ýmisíégt læra af
framkvæmdum við^hana, sem
geti orðið til lækkunar bygg-
ingarkostnaðar. Hins vegar
draga ýmsir í efa að kostnaður
sé raunverulega eins lágur og
talið er á þessu stigi, enda liggi
fullnaðarreikalingar um húst-
bygginguna enn ekki fyrir og
ennfremur vanti ýmislegt á að
um fullfrágen'gnar íbúðir sé að
ræða. Mönnum þykir þó gleði-
legt að þetta skuli verða til
þess að koma af stað umræð-
um um byggingarkostnaðinn
og hugsanleg ráð til þess að
halda honum sem lægstum.
Halldór Halldórsson skrif-
stofustjóri hjá Húsnæðismála-
stjórn ríkisins sagði blaðinu í
gær, að Húsnæðismálastjórn
mundi fá kostnaðarreikninga
um byggingu blokkarinnar, þeg
ar þeir lægju fyrir, og að sjálf-
sögðu draga allan þann lær-
dóm af þeim, sem hægt væri.
Halldór kvaðst ekki vera rétti
aðilinn til að segja, hvaða ráð-
Ráku ruslaralýðinn burt
stafanir væru beztar til að
halda húsnæðisverði niðri, en
hann benti á að í nágranna-
löndum okkar væru langflest
íbúðahús, sem nytu opinberra
lána, byggð af byggingafélöig-
um. Þessi félög yrðu að leggja
fram kostnaðaráætlanir áður
en smíði húsanna hæf'st, og
þessar áætlanir yrðu aí' sam-
þykkjast til þess að lán fengj-
ust út á húsin. Þá bent*. hann
einnig á nauðsyn þess að' færri
•aðilar en nú önnuðust hygging/
isambýlishúsa. í Reykjavík
þyrftu að vera þrír eða fjórir
þyggingaaðilar, en í öðrum
bæjum ekki nema einn. Með
þessu fengjust stærri starfs-
heildir og gæti það prðið til
þess að hægt væri að koma við
meiri hagsýni við allar 'fram-
kvæmdir og lækka þannig hús-
næðiskostnaðinn.
AMSTERDAM, 5. apríl (NTB-Reu
ter) — Hollenzkir sjómenn og gest
ir af erlendum herskipum tóku
lögin í sínar hendur og hreinsuðu
járnbrautarstöffina í Amsterdam
af slæpingjum og óknyttaungling.
um í nótt.
Um 120 sjómenn og sjóliðar
gengu skipulega til verks, en það
voru aðallega unglingar 'á aldrin-
um 16—22 ára sem urðu fyrir barð
inu á þeim. Unglingarnir voru í
minnihluta og höfða' ekkert að
gera í hendurnar á hinum vel
þjálfuðu sjómönnum, sem skyndi-
iega birtust.
Ungur piltur meiddist alvarlega,
allmargir fengur slæm högg og
töluvert margir hárprúðir piltar
glötuðu lörugum lokkum, að sögn
yfirlögreglustjórans í Amsterdam.
Sjómennirnir og gestirnir sem
stóðu fyrir aðgerðunum sögðu
blaðamönnum, að þeir hefðu les-
ið um slæpingja þá og óróaseggi,
sem héngju í nánd við lögreglu-
stöðina og öbbuðust upp á ferða-
menn, einkum ungar stúlkur, sem
fseru til járnbrautarstöðvarinnar
í fyl'gd með unnusta sínum eða eig
inmanni.
— Þetta gæti hent unnustur
okkar svo að við ákváðum að láta
til skarar skríða, sagði einn þeirra.
Lögreglan í Amsterdsm g^tur
ekkert gert, því að hún er látin
svara til saka ef einhverjir fá
sm'áskrámu í viðureign við hana,
sögðu þeir.