Alþýðublaðið - 06.04.1967, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 06.04.1967, Blaðsíða 3
Norðurlandaráð deilir um Salthólmann og Sóla HELSINGFORS, 5. apríl (NTB). — Gerð stórs flug;vallar á Eyrasundi og samning: á norrænni kcnnslumálalögg-jöf voru meðal fjölda mála, sem rædd voru á fundi Norðurlandaráðs. Ráðið skoraði á stjórnir Norður landa, að setja sérstakan umhugs unarfrest í lög um afborganir tii að vernda kaupendur. Eiunig var skorað á stjórnirnar að hafa með sér nária samvinnu um skipulagn ingu friðarsveita er starfa skuli í vanþróuðum löndum. Kannaðir verða möguleikar á sameiginlegri ráðningu fólks í friðarsveitirnar og sameiginlegri stjórn fram- kvæmda ó vegum friðarsveita. Einnig var samþykkt að fara fram á við stjórnir Danmerkur og Svíþjóðar að þær reyni að auka og efla hið allra fyrsta samvinnu um rannsókn á flugvallarmálinu á Eyrarsundi, ef til vill með skip un sameiginlegrar vinnunefndar. □ Salthólminn eða Sóli? Flugvallargerð á Salthólma fyr ir síauknar millilendingar og bygg ing brúar yfir Eyrarsund eru hvort tveggja mál milli Dana og Svía, bæði í tæknilegu og efna hagslegu tilliti. En Norðmenn hafa mikinn áhuga á lausn máls ins, þótt því hafi verið haldið fram á fundum ráðsins að þeir hafi lítinn áhuga 4 brú yfir Eyr arsund vegna hinna miklu ferju siglinga milli Noregs og Jótlands og telji að meðan ógreiðfært sé yfir Eyrasund muni hinn aukni fjöldi ferðamanna kjósa fremur að fara um Jótland til Noregs. Þá hafa Norðmenn bent á, að hafizt verði handa um að bvggja samnorrænan flugvöll fyrir flug Stjórnmála- kynning á laugardaginn Stjórnmálakynning Fulltrúaráðs Alþýðuflokksins í Reykja- vík hefst n. k. laugardag, 8. apríl. Hefst fundur kl. 15 stund- víslega og verður haldinn í Ingólfskaffi. Fulltrúaráðið hefur skipað nokkrar nefndir til undirbúnings stjórmnálakynningunum og mun fyrsta nefndin skila áliti á fundinum, en sú nefnd hefur fjallað um húsnæðismál og launamál Framsögumaður nefndarinnar er Sigurður Guðmunds son skrifstofustjóri. Flokksfólk er hvatt til þes aö sækja fund þennan og taka virkan þátt í umræðum og bera fram fyrir spurnir. samgöngur milli Evrópu og Am eríku í Sola í Vestur-Noregi og að þessi flugvöllur geti komið í staðinn fyrir flugvöllinn í Salt- hólma. Hinsvegar taldi Jón Leir- hólma. Hins vegar taldi Jon Leir- óraunhæfar á fundi umíerðar- nefndarinnar vegna þess að mikj um fjárupphæðum hefði verið var ið til stækkunar á Kastrupflug- velli sem notast mætti við í 10-15 ár. enn. Kannski kynni svo að fara að vegna gífurlegrar umferðar flugvéla yfir Eyrasundi mætti gera Sola að varaflugvelii og ennfremur að bækistöð flugvéla sem fljúga hraðar en hljóðið á leiðunum yfir Atlantshaf. Aksel Larsen, Danmörku, og Leif Casel, Svíþjóð, lögðu ein- dregið til að afgreiðslu Eyrasunds málsins yrði hraðað. Samgöngu- málaráðherra Svía, Olof Palme, sagði að skýrsla svokallaðrar Eyra sundsnefndar mundi liggja fyrir eftir tvo mánuði og gætu þá haf izt viðræður milli stjórna Dan- merkur og Svíþjóðar. Þjóðernissinnar i Aden klofnir ADEN, 5. apríl Þrjú stóy verkalýðsfélög í Ad en skoruöu í dag á félagsnienn síi:a að liefja vinnu á ný á morg- un og liætta þar með þátttöku sinni í allshcrjarverkfalli því, sem lamað hefur allt atvinnulíf i borg inni síöan því var lýst yfir fyrir fjórum diigum. Áskorun verkalýðs félaganna er nýr þáttur í deilu hinna tveggja samtaka þjóðernis sinna í Aden, NLF og FLOSY, en mikil misklíð hefur risiö með þeim að undanförnu. Allsherjarverkfall hófst á sunnudag, en sama dag kom þriggja manna nefnd á vegum SÞ til Aden að kanna möguleika á því að Aden fái sjálfstæði fyrir árslok 1968. Verkfallið og árá^ir þær, sem gerðar hafa verið und anfarna þrjá daga á öryggissveit ir Breta í Aden, eru runnin und an rifjum hinna tveggja samtaka þjóðernisinna, sem þannig hafa viljað gefa fulltrúum SÞ til kynna að þjðóernissinnar en ekki sam- bandsstjórnin séu hinir réttu full trúar íbúanna í Suður-Arabíu, sem Aden er Viuti af. NLF (Þjóðfrelsisfylkingini vildi aftur á móti aðeins þriggja daga allsherjarverkfall, en FI.OSY (Frelsisfylkingin hins hernumda Suður-Jemens, sem Egyptar styðja') vildi sex daga verkfall. Af þesum sökum varð áskorun olíuverkamanna, hafnarverka- manna og bankastarfsmanna í dag tilefni nýrrar deilu milli stuðn ingsmanna samtakanna, sem hafa átt í hörðum götubardögum í Ad en síðustu daga. Nokkrir verkamenn hófu aftur vinnu strax í dag, og þótt enn væri nokkrum sprengjum varpað að brezkum hermönnum og skot vopnum beitt virðist barátta þjóð ernissinna vera að fjara út. Alls hafa fimm Arabar beðið bana síð an óeirðirnar hófust á sunnudag- inn. 31 hefur særzt, þar af 13 brezkir hermenn. □ Enn kom til harðra átaka í dag milli brezkra hermanna og þjóðernissinna í einni útborg Ad en. Lau'gardaginn 8. apríl opnar Gunn ar Friðriksson sýningu á vatns- litamyndum í Bogasal Þjóðminja- safnsins. Á sýningunni verða um þrjátíu og fimm myndir. Gunnar Friðriksson er ættaður frá Sauðárkróki, sonur hjónanna Friðriks Júlíussonar og Fjólu Jóns dóttur. Þetta er fyrfsta sýning Gunnars, en hann hefur stundað nám í Myndlistar- og handíðaskól- anum og Myndlistarskólanum í R- vík. Sýningin veVður opin næstu viku klukkan 2—10 eftir hádegi. Líðan forseta góð Forseti íslands, herra Ásgeir Ás- geirsson var skorinn upp í morg- un á Bispebjerg sjúkrahúsi í Kaup mannahöfn vegna blöðruhálskirt- ils. Uppskurðurinn, sem var fram- kvæmdur af prófessor dr. med. Christoffersen tókst vel og er líð- an forseta eftir atvikum góð. Segist vera saklaus Nefmlin, sem undirbjó stjórnmálakynninguna: talið frá vinstri: Þórunn Valdemarsdóttir, Guðbjörg Brynjólfsdóttir, Ólafur Þorsteinson, Lars Jakobsson, Sigurjón Ari Sigurjónsson, Sigurður Guðmundsson, Sigurður Helgason, Gunnlaugur Gíslason, Jón ívarsson og Kristján Þorgeirsson. NEW ORLEANS, 5. apríl (NTB- Reuter) — Hinn 54 ára gamli kaupsýslnmaður Clay Sliaw lýsti því yfir að liann væri saklaus þeg- ar liann kom fyrir rétt í New Or- leans í dag, ákærður fyrir að hafa af fúsum vilja tekið þátt í ólög- legu samsæri um að myrða Kenne- dy. Shaw var handtekinn fyrir tveim- ur mánuðum eftir að Jim Garri- son ríkissaksóknari hafði hafið rannsókn sína á morðinu. Garri- son heldur því fram að Shaw hafi haft samvinnu við Lee Harvey Os- wald og David W. Ferrie, fyrrver- andi flugmann sem fannst látinn í íbúð sinni, um að myrða Kenne- dy forseta. Shaw, sem er eini samsæris- maðurinn, sem er enn á lífi, brosti og keðjureykti í réttarhöldunum, sem tóku fimm mínútur. Edward Hagerty dómari tók yfirlýsin'gu Shaws um að ihann væri saklaus gilda og gaf honum frest til 5. maí til að gefa hugsanlegar yfir- lýsingar í málinu. Síðan fá ákæru- yfirvöld 30 daga frest til að svara yfirlýsingum Shaws. Shaw var lát inn laus gegn 10.000 dollara trygg ingu. Stórkviðdómur dæmir í máiinu og hefur hann beðið þrjá menn, þar af tvo sjónvarpsfréttamenn, að bera vitni. Ekki er vitað hvers konar upplýsingar kviðdómendur vonast til að fá hjá þessum vitn- um. 6. apríl 1967 ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.