Alþýðublaðið - 06.04.1967, Page 7

Alþýðublaðið - 06.04.1967, Page 7
MINNINGARORÐ: BENEDIKT JAKOBSSON /jb róttakennari Á SPRENGISAND Benedikt Jakobsson, íþrótta- kennari varð bráðkvaddur 29. marz sl. Hinum mörgu vinum og kunningjum Benedikts kom frá- fall lians mjög á óvart, en hann var á 62. aldursári, er hann lézt. Útför lians verður gerð frá Dóm- kirkjunni í dag. Benedikt fæddist að Fosseli í Suður-Þingeyjarsýslu 19. apríl 1905. Foreidrar hans voru hjón- in Jakob Hallgrímsson og Helga Benediktsdóttir. Benedikt dvald- ist í föðurgarði fyrstu níu ár æv- innar, en þegar móðir hans veikt- ist flutti hann að Grenjaðarstöð- um, sem vikapiltur til séra Helga Hjálmarssoar. Hugur Benedikts stefndi snemma til mennta, en fjármunir voru litlir í þá daga og erfitt um vik. Hann stundaði nám í liéraðs- skólanum að Breiðumýri, sem var eins konar undanfari Laugaskóla. Haustið 1923 innritaðist Bene- dikt í búnaðarskólann að Hvann- eyri, en þar kynntist hann ýms- um mönnum, sem höfðu mikil og góð áhrif á hinn unga og glæsta mann. Einn af kennurum skólans var Þorgils Guðmundsson, íþrótta- kennari, en hann var íþróttamað- ur góður. Þorgils hvatti Benedikt mjög til að gerast íþróttakennari. Þar komst Benedikt fyrst í kynni við íþróttirnar og þar var kveikt- ur sá neisti, sem lifði með hon- um alla ævi. Benedikt hélt til Reykjavíkur og stundaði þar ýms störf, en í- þróttaneistinn, sem kveiktur var að Hvanneyri, náði stöðugt meiri tökum á liinum unga og gjörvu- lega manni. Hann tók þátt í í- þróttanámskeiði, sem UMFÍ og ÍSÍ gengust fyrir veturinn 1926 — ’27. Þar kynntist hann ýmsum á- hugamönnum um íþróttir, m.a. Jóni Þorsteinssyni, sem hvatti hann mjög til að leggja stund á frjálsíþróttakennslu. Haustið 1929 sigldi Benedikt til Stokkhólms og innritaðist í GCI (Gymnastiks Central Insti- tut), sem þá var einn merkasti í- þróttaskóli Evrópu. Þar stundaði hann nám í þrjá vetur og auk náms í íþróttakennslu, lagði Bene- dikt mikla rækt við sjúkraleik- fimi og nudd. Að loknu námi við GCI kom Benedikt heim og haustið 1931 tók húnn við af Birni Jakobssyni sepi fimleikakennari hinna þekktu ílokka ÍR. Ilann var kennari hjá ÍR til 1934, en réðist þá til KR og var kennari þess félags í nær öllum greinum íþrótta. Mesta al- úð lagði Benedikt þó við frjálsar íþróttir og fimleika. í febrúar 1932 gerðist Benedikt íþróttakennari Háskólans og sá um líkamsrækt háskólaborgara til dauðadags. Auk kennslu hjá KR og Há- skólanum þjálfaði Benedikt fjöl- mörg landsiið, og flokka á Evr- ópu- og Olympíumót. Þing og ráð- stefnur sótti hann um íþróttamál og þjálfun. Árið 1962 hlaut Bene- dikt styrk frá Raunvísindadeild Háskólans til að sitja þing, sem Sameinuðu þjóðirnar stóðu að. Benedikt Jakobsson var sannur hugsjónamaður. Hann taldi fátt betra fyrir uppvaxandi æsku, en hæfilega iðkun góðra íþrótta. í viðtali, sem undirritaður átti við Benedikt sextugan sagði hann m.a.: „íslendingar hafa ekki enn gert sér nægilega grein fyrir gildi íþrótta í nútíma þjóðfélagi. Meirihluti menntamanna þjóðar- innar gerir sér ekki grein fyrir þýðingu íþrótta, svo að ekki er von, að almenningur geri það. Tökum Bretland sem dæmi, þar þykir sjálfsagt að iðka einhverja íþrótt. Kennarar og nemendur brezkra skóla, jafnt æðri skóla sem annarra, telja ekkert eðli- legra en leggja stund á íþróttir, þar eru íþróttir almenningseign. Á þessari vélaöld vex stöðugt gildi íþrótta.‘“ Á öðrum stað í sama viðtali segir Benedikt: „Það þarf að efla íþróttirnar mun meira innan skólanna. Kenn- ararnir þurfa helzt að vera í tengslum við hina frjálsu íþrótta- hreyfingu. Það þarf að haga í- þróttakennslunni þannig, að æsk- an sækist eftir íþróttaiðkun. Ein klukkustund á dag í íþróttaiðkun í skólunum ætti að vera lágmark“. Hugur Benedikts var ávallt þar, sem hann gat orðið uppvaxandi kynslóð til heilla., Einn af síðustu dögum ævinnar var hann aðal- starfsmaður og stjórnandi eins fjölmennasta skólamóts í frjáls- íþróttum, sem hér hefur farið fram. í samtali við Benedikt eftir það mót lét hann í Ijós mikla ánægju með mótið, taldi það spor í rétta átt. Ef vel gekk í íþróttunum geislaði Benedikt af ánægju. Ilann taldi ekkj eftir sér tímann sem fór til íþróttanna. Benedikt var ekki í hópi þeirra, sem al- heimti daglaun að kveldi, enda voru þær ófáar klukkustundirnar, sem hann veitti íþróttafólki leið- sögn, endurgjaldslaust. Benedikt fékk sín laun aðallega í góðum árangri og reglusemi íþróttafólks ins. Ég tel það mjög mikils virði að hafa átt þess kost að kynnast Benedikt Jakobssyni. Hann var ávallt hreinn og beinn og hélt skoðunum sínum fram af einurð og drenglyndi. Síðasti þátturinn í samstarfi okkar Benedikts, sem var allnáið síðustu árin, var er við vorum í fararstjórn flokks tugþrautarmanna, sem kepptu í Svíþjóð sí. haust. Það var létt verk að vera fararstjóri með Bene dikt við hlið sér. Þekking hans og reynsla ásamt einstökum sam- starfsviíja gerði þá för ánægju- lega. Við fráfail Benedikts Jakobs- sonar á íslenzk æska og íþrótta- hreyfingin í heild að baki að sjá einum sínum bezta forystumanni. Manni, sem ætíð var boðinn og búinn til að veita þá leiðsögn sem hentaði, hvort heldur var á sviði íþróttakennslunnar eða félags- mólanna. Margþætt þekking hans, regluscmi, dugnaður og fórnfýsi gerði honum kleift að ná þeim bezta árangri, sem náð varð á hverjum tíma. Fyllstu samúðarkveðjur eru sendar eiginkonu Benedikts, Gyðu Erlendsdóttur, svo og börnum og öðrum ættingjum. örn -Eiðsson. ' t Árið 1934 kom til starfa hjá Knattspyrnufélagi Reykjavikur ungur íþróttaþjálfari, einn af fá- um, sem á þeim árum hafði gerzt svo bjartsýnn að gera í- þróttakennslu að aðalstarfi sínu og fara utan til sérstakrar mennt unar á því sviði. Þessi maður var Benedikt Jak- obsson, sem í dag er kvaddur liinztu kveðju og til moldar bor- inn. Benedikt réðst til félagsins einkum sem fimleikakennari og frjálsíþróttaþjálfari, en kenndi auk þess einnig fleiri greinar. Það varð brátt ljóst, að það hafði verið félaginu hin mesta gæfa að ráða þennan unga mann til starfa, því að hann reyndist afburða góður þjálfari, sem bezt sér á því, að KR hefur undir handleiðslu hans jafnan átt á að skipa harðsnúnu liði frjáls- íþróttafólks, sem oftast' hefur farið í fylkingarbrjósti íslenzkra frjálsíþróttamanna og kvenna hér á landi. Þá eru ótaldir allir þeir sýningarflokkar í fimleik- um, sem undir hans stjórn hafa borið hróður félagsins og stjórn- anda síns bæði innanlands og erlendis. Auk þess að vera aðalþjálfari Framhald á 15. síðu. Hallgrímur Jónasson : ÁRBÓK 1967 Á Sprengisandi Ferðafélag íslands Reykjavík 1967, 200 bls. FERTUGASTA ÁRBÓK Ferða- félags íslands er nýkomin út og fjallar um Sprengisand. Höf- undur bókarinnar er liinn kunni ferðamaður og fararstjóri, Hallgrímur Jónasson, kennari. Ferðafélag íslands hefur nú í stórum dráttum lokið lýsingu sinni á byggðum og öræfum landsins, þótt einstökum stöðum þurfi að gera ítarlegri skil og endurskoða lýsingu annarra. Félagið markaði þegar í upp- hafi stefnuna í útgáfustarfsemi sinni, þ. e. að gefa út ferðalýs- ingar, leiðarvísa og uppdrætti, og strax í fyrstu árbókinni, sem út kom árið 1928, er að finna leiðarlýsingu ásamt uppdrætti af Þjórsárdal. Síðan hefur hver •árbókin rekið aðra og ekki ver- ið hvikað frá hinni upphaflegu ákvörðun, staðfræði og leiðar- Iýsingar hafa setið í fyrirrúmi í mismunandi ítarlegri útfærslu. Þetta er þegar orðið mikið og merkilegt verk og í heild ná- kvæmasta íslandslýsing, sem við eigum. Á Sprengisandi er með líku sniði og fyrri árbækur félagsins, í senn staðarlýsing og leiðarlýs- ing með ívafi af þjóðsögum og ferðasögum, gömlum og nýjum, ásamt kvæðum og kviðlingum, sem á einhvern hátt eru tengd Sprengisandi. Þáð er fráleitt vandalaust verk að skrifa bók af þessu tagi, þannig að hún verði ekki þurr og þreytandi aflestrar, enda á svona bók fyrst og fremst að vera uppsláttarrit. Samt held ég, að enginn ætti að þurfa að sál- ast úr leiðindum við lestur hennar, enda vita þeir, sem ferðast hafa með höfundinum, að hann hefur sérstakt lag á að segja vel og eftirminnilega frá. Hann er heldur ekki neinn við- vaningur við skrifborðið, hefur sem kunnugt er samið árbók Ferðafélagsins um Skagafjörð og auk þess nokkrar ferðabæk- ur, sem notið hafa almennra vinsælda. Hallgrímur Jónasson er flest- um kunnugri á Sprengisands- leið. Hann hefur ótal sinnum átt leið um Sandinn með ferða- mannahópa að sunnan og norð- an, en auk þess farið þangað sérstakar könnunarferðir eftir að hann tók að sér að semja ár- bókina fyrir Ferðafélagið. Hann liefur lesið og kynnt sér bækur og annað, sem ritað hefur verið um Sprengisand, og átt viðtöl við ýmsa núlifandi menn, sem kunnugir eru á þessum slóðum. Hann þekkir þetta því allt eins og göturnar í Skerjafirðinum og gæti eflaust gengið blindandi yfir Sprengisand án þess að vill- ast, þótt honum væri snúið í sjö hringi áður en hann legði af stað. Ég mundi þess vegna ekki reyna að reka ofan í hann, þótt ég þættist finna einhverja vitleysu i bókinni, af liræðslu við að vit- leysan væri mín megin. Við lauslegan yfirlestur hef ég raun- ar enga fundið. Eitt atriði langar mig þó til að gera athugasemd við, þótt það skipti í raun og veru lillu máli. En það er sú tilgáta bókarhöí- undar, að hin alkunna vísa Kristjáns Fjallaskálds, ,-,Yfir kaldan eyðisand,” sé kveðin á Sprengisandi. Þar er ég á annarri skoðun. Ekki er óalgengt að skáld yrki um ákveðha staoi án þess að vera þar á ferð.'jafn- vel þar sem þau hafa aldrei komið, og eru nærtæk dæmia af þessum slóðum, nægir að minna á Tómasarhaga Jónasar Hallgrímssonar og melgrasskúf- inn hans Jóns Helgasonar í Vonarskarði, sem raunar hefur aldrei fundizt, en hvorugur þeirra hafði komið á staðinn, sem um var kveðið. En hér kem- ur fleira til. Þeir, sem æittlivað hafa fengizt við að klambra saman^vísu upp á gamla^mátann, vita að rímið heimtar sitt. Kristján hefur trúlcga byrjað á seinnipartinum, eins og venju- legast er, og auðvitað varð þá ekki á betra orð kosið en „sand” til að fullnægja rímþörfinnl. Mér þykir langlíklegast’ að Kristján hafi hvorki ■’ kveðið' vísuna á Sprengisandi né nokkr- um öðrum sandi, heldur milli rekkjuvoða hér I höfuðstaðnum að afstöðnu svo sem hálfsmán- aðar fylliríi, og ekki só heldui* átt við neinn sérstakan sand í vísunni, lieldur í líkingum taJ- að, symból. Svona -:lagaður timburmannakveðskapun er víst ekki óalgengur. 3 Sprengisandur er einnlaf elztu fjallvegum landsins, lqngst af fáfarinn og þó misjafrilega. Á síðustu áratugum hafti orðið þáttaskil í umferð um Sandinn. Ferðamannahópar í \ stórum langferðabilum hafa lsgt leið' sína um þennan forna.;fjallveg 6. apríl 1967 Frh. á 10. siðu. ♦ ALÞÝÐUBLAÐIÐ J

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.