Alþýðublaðið - 06.04.1967, Side 11

Alþýðublaðið - 06.04.1967, Side 11
S- Afmælissundmót ÍR fór fram í Sundhöllinni í fyrrakvöld. Gunn- ar Sigurðsson formaður ÍR setti. mótið með ræðu. Keppendur voru fjölmargir í mótinu eða nær 200. Árangur var góður í flestum greinum, en mesta athlgi á mót-’ Sundmót KR fer fram 18. apríl Sundmót KR 1967 verður hald- ið í Sundhöll Reykjavíkur þriðju- daginn 18. apríl n.k. kl. 8,30 e.h. Keppt verður í þessum grein- um: t 100 m skriðsundi kvenna. Keppt um Flugfreyjubikarinn. 200 m bringusund kvenna. 200 m bringusundi kvenna. 100 m flugsundi kvenna. 100 m bringusundi karla. Keppt um Sindrabikarinn. 200 m skriðsundi karla. 4x50 m bringusundi karla. 100 m bringusundi stúlka 14-16ára. 100 m baksundi stúlkna 14-16 ára. 100 m bringusundi sveina 13-14 ára. 4x50 m skriðsundi sveina. Afreksbikar SSÍ fyrir bezta stigaafrekið. Þátttaka tilkynnist Erlingi Þ. Jóhannssyni í Sundlaug Vesturbæjar skriflega fyrir 13. apríl. — Stjórnin. inu vakti ungur Akureyringur, Finnur Garðarsson, sem synti 100 m skriðsund á 1:01,5 mín. Það er mjög gott afrek. Finnur er eitthvert mesta sundmannsefní, sem hér hefur komið fram um árabil. Ekki er vafi á því, að hann nær fljótlega betri tíma en mínútu, þegar hann lagfærir snúninginn. Annars voru það unglingarnir, sem mesta athygli vöktu eins og oft áður á sundmótum. Ung stúlka úr Ægi, Helga Gunnars- dóttir, setti t.d. nýtt telpnamet, synti 50 m bringusund á 41,6 sek. Ungur KR-ingur, Ólafur Þ. Guðmundsson náði ágætum ár- angri í 50 m skriðsundi og Guð- mundur Ólafsson (sonur Ólafs Guðmundssonar) sigraði í 50 m bringusundi á góðum tíma. í sundgreinum þeirra fullorðnu setti sveit Ármanns met í 3x50 m þrísundi kvenna, synti á 1:47,8 mín. Gamla metið átti sveit Ár- manns, 1:51,2 mín. í sveitinn eru Eygló Hauksdóttir, Matthildur Guðmundsdóttir og Kolbrún Krist jánsdóttir. í öðrum greinum kom fátt á ó- vænt, Hrafnhildur Guðmunds- dóttir, ÍR sigraði í 100 m baksundi og 50 m flugsundi, en hún var alllangt frá sínu bezta að þessu sinni. Davíð Valgarðsson, ÍBK sigraði í 50 m skriðundi og 100 m flugsundi, en var einnig all- langt frá sínu beztu, enda ekki í æfingu. Keppni í 200 m bringu- sundi var mjög skemmtileg, þar hafði Leiknir Jónsson, A, forystu lengst af, en Gestur Jónsson, SH fór fram úr á síðustu leiðinni. Hörður B. Finnsson, ÍR sigraði í 50 m bringusundi eftir harða keppni við Leikni. í boðsundunum var geysileg þátttaka, 11 sveitir í boðsundi kvenna og 16 í boðsundi karla. HELSTU ÚRSLIT: í 100 m skriðsund kvenna: mín. Hrafnhildur Kristjánsd., Á 1:06,5 Ingunn Guðmundsd., Self. 1:11,4 Ellen Ingvadóttir, Á. 1:13,0 Kristín Sölvadóttir, SH 1:15,2 200 m bringusund karla: mín. Gestur Jónsson, SH 2:45,6 Leiknir Jónsson, Á 2:47,3 Árni Þ. Kristjánsson, SH 2:47,9 Ólafur Guðmundsson, Self, 2:56,4 50 m skriðsund karla: mín. Davíð Valgarðsson, ÍBK 27,1 Framhald á 15. síðu. Hrafnihildur Guðmundsdóttir, ÍR sigraði nöfnu sína úr Ármanni í 100 m. baksundi. Hrafnhildur Guðmundsdóttir þjálfar sundfólk & Selfossi og kom með glæsilegan flokk' a ÍR-mótið. Aðeins einn nýliöi í landsliði í handbolta Landsleikir íslendinga og Svía á sunnudag og mánudag Gestur Jónsson, SH sigraði í 200 m. bringusundi á góðum tíma. Landsleikir íslendinga og Svía í handknattleik fara fram 9. og 10. apríl n.k. og hefjast kl. 20.15 bæði kvöldin. Forsala aðgöngu- miða hefst í Bókaverzlun Láus- ar Blöndál í Vesturveri og við Skólavörðustíg í dag. Sænska landsliðið kemur á sunnudagsnótt og dvelur hér til fimmtudags. Svíarnir greiða sinn ferðakostnað sjálfir, en HSÍ sér um uppihald. Formaður HSÍ sagði við fréttamenn í gær, að þetta væri í fyrsta sinn, sem samband- ið gerði samkomulag um lands- leiki lá jafnréttisgrundvelli. Væri HSÍ Svíum mjög þakklátt fyrir þann skilning, sem þeir sýndu íslenzkri íþróttahreyfingu með þessu. Svíar hafa löngum verið for- ystuþjóð í handknattleik og ávallt í fremstu röð. Þeir hafa tvívegis verið heimsmeistarar 1954 og 1958 og oftast í verðlaunasæti. Á síðasta HM var Svíþjóð í fimmta sæti, vann Vestur-Þýzkaland í keppni um 5. og 6. sæti. Auk þess sigruðu Svíar Pólverja í HM. Fjórum sinnum áður hafa í&- lendingar og Svíar leikið landa- leiki í handknattleik. Svíar sigr- u0u í þrjú fyrstu skiptin, en f HM 1964 sigraði ísland Svíþjóð1 12:10, eins og mörgum er enn £ fersku minni. Sá leikur fór fram í Bratislava. íslenzka liðið hefur verið val- ið og er skipað sem hér segir: ii Auðunn Óskarsson FH. I. Geir Hallsteinsson FH. Gunnlaugur Hjálmarsson Fram, fyrirliði. Hermann Gunnarsson Val. j Jón H. Magnússon Víking. 'j Framhald á 15. síðu. Körfubolti í kvöld í kvöld verða leiknir þessic tveir leikir í 1. deild: ÍR - KFR. KR — Ármann. Leikið verður í Laugardals- höllinni og hefst keppnin kl. 8,15« Sveit Ármanns setti nýtt íslandsmet: Góð þatttaka ein- kenndi sundmót ÍR 6. aprít 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.