Alþýðublaðið - 19.04.1967, Síða 4
Eitstjóri: Beiicdikt Gröndal. Simar 14900—14903. — Augiýsingasíml:
14906. — Aösctur: Alþýöuhúsiö viö HverXisgötu, Rvík. — Prentsmiðja
Alþýðublaðsins. Simi 14905. — Áskrlftargjald kr. 105.00. — i lausa*
sölu kr. 7.00 eintakið. — Útgeíandi: Aiþýðuflok'kurinn.
Listamannal aun
GYLFI Þ. GÍSLASON hefur gegnt embætti mennta
málaráðherra á ellefta ár. Á þessu tímabili hefur
verið meira gert á sviði listanna en nokkru sinni
fyrr, og viðhorf rík'isvaldsins til listamanna hefur
-gerbreytzt. Deila má um gildi þeirra listaverka, sem
hver kynslóð skapar, en um hitt verður ekki efazt,
að undanfarinn áratug hafi alþýða manna í landinu
■notið fjölbreyttari og meiri ávaxta listanna í ríkari
mæli en nokkru sinni fyrr.
Eitt verkefni hefur lengi vafizt fyrir Alþingi og
ráðamönnum. Það er að finna viðunandi skipan á
úthlutun þeirra listamannalauna, sem ríkið veitir ár
hvert. Um skeið hefur þingið kosið til þess nefnd
á hverju ári, og hefur sú skipan ekki þótt vera til
frambúðar.
Á þessum vetri tókst Gylfa Þ. Gíslasyni að ná víð-
tæku samkomulagi við samtök listamanna um frum-
varp til nýrra laga um listamannalaun. Var flutt
um málið xstjórnarfrumvarp, sem Alþingi hefur nú
afgreitt sem lög. Er þetta merkur áfangi og ber að
vona, að þessi skipan reynist vel. Um hana er meiri
og betri samstaða en áður hefur fengizt um þessi
mál, og er því ástæða til að vona, að þessi lausn
menntamálaráðherra á áralöngu vandamáli reynist
farsæl.
Höfundar og bókasöfn
UNDANFARIN ÁR hafa listamenn náð miklum ár-
angri í sókn sinni til sanngjarnra launa fyrir verk
sín, sérstaklega þau sem hægt er að endurtaka eða
endu.hjóta. Tónskáldin hafa náð miklum árangri með
STEFI, samtökum um flutningsrétt. Ríkisútvarpið
eitt greiðir því til dæmis um 4 milljónir á ári, enda
notar það geysimikla tónlist í hljóðvarpi og sjónvarpi.
Rithöfundar hafa lengi bent á, að þeir fái engar
greiðslur fyrir þúsundir lesenda, sem taka bækur
•þeiira að láni úr bókasöfnum. Slíkur lestur hlýtur
að krms að nokkru leyti í stað kaupa á viðkomandi
bólíum. Flefur lengi reynzt erfitt að finna fram-
'lívæmanlega lausn á þessu máli.
Nú heíur Alþingi samþykkt stjórnarfrumvarp, sem
menntamálaráðherra flutti um þetta efni. Greiðsla
til höfimda mun teljast sem annar kostnaður við
bókasÖfnin, eins og eðlilegt er, og skiptast milli ríkis
og sveitarfélaga. Er hér ekki um miklar fjárhæðir
að ræða, en öllu mikilsverðari viðurkenningu fyrir
íslenzka rithöfunda.
4 19. apríl 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ
mm mm
á krossgotum
SJÓNVARPINU ÞAKKAÐ.
„Sjónvarpsglápandi" skrifar:
„Flestir held ég, að séu ánægðir með íslenzka
sjónvarpið og gegnir í rauninni furðu vel það
fyrirtæki hefur tekizt og mega þeir sem for-
dæmdu það muna hvílíku moldviðri þeir þyrluðu
upp í sambandi við. stofnun þess.
ÍÉg verð þó að segja að mér finnst að meira
megi vera af íslenzku efni og helzt skemmtiefni,
því ekki er um auðugan garð að gresja hjá okk-
ur. Síðastliðið föstudagskvöld brá þó lieldur en
ekki til hins betra, þá hóf í sjónvarpinu göngu
sína nýr íslenzkur skemmtiþáttur, flutt var bráð
skemmtilegt (og napurt) smáleikrit og fengu marg
ir þar óþvegna ádrepu, hópur af börnum undan
Eyjafjöllum fluttu nokkur lög, af svo mikilli
snilld, að gaman var að, sýndur var dans og hjól-
reiðapar skemmti og síðast en ekki sízt kynnti
Bryndís Schram mjög smekklega. Sérstaklega
fannst mér fyrsta atriðið fallegt, er hún söng og
dansaði. Ég vil þakka sjónvarpinu fyrir þennan
þátt og vona að fleiri eigi eftir að fylgja og mun
ið að efnið á að vera íslenzkt, ekki erlend stæling,
svo sem léleg eftirlíking af Keflavíkursjónvarp-
inu. Það er engum vafa bundið að við getum lagt
til efni sjálfir, og ég vonast eftir öðru slíku
kvöldi sem llra fyrst.“
+ MEIRA INNLENT EFNI.
„Sjónvarpsglápandi" mælir hér áreiðanlega fyr
fyrir munn margra. Almenn ánægja virðist vera
með íslenzka sjónvarpið, og það hefur raunar far
ið fram úr öllum vonum. meira að segja hinna
bjartsýnustu. Slíkt ætti að vera góð uppörvun fyrir
þá, sem við sjónvarpið starfa og hafa ef til vili
búizt við misjöfnum dómum eins og gengur, því
að öll byrjun er erfið. Flestir munu einnig geta
r þau orð bréfri
að hafa sem mest af vönduðu innlendu efni, ,og
vonandi er, að sjónvarpið sjái sér það fært í fram
tíðinni. — Við þökkum bréfið. — Steinn.
Áskriftasími Alþýðublaðsins er 14900
MEGRUNARKEXIÐ FÆST MEÐ:
OSTABRAGÐI
SITRÓNUBRAGÐI
VANILLUBRAGÐI
APPELSÍNUBRAGÐI
A
SUKKULAÐIBRAG ÐI
EITTHVAÐ FYRIR ALLA
ÚTSÖLUSTAÐIR: A P Ó T E K I N
LIMMITS - TRIMETTS