Alþýðublaðið - 19.04.1967, Side 10
Leikhús
Frh. af 5. síðu.
Svein Halldórsson, hinn aldna
og reynda áhugaleikara, sem gaf
Ölafi bónda merkilega glöggan
svip, oig Líneyju Bentsdóttur sem
gerði Snjólaugu sambærileg skil.
Bergsveinn Auðunsson og Jón
Bragi Bjarnason eru vasklegir
piltar og lýstu þeim Eysteini
sterka og Magnúsi biskupsfóstra
samkvæmt því; þeirra elskuðu
Guðnýju lék Gyða Thorsteinsson
sem er falleg og myndarleg
stúlka en sýnilega alveg óreynd
á sviði. Gesti Gíslasyni varð ekki
mikið úr Kotstrandarkvikindinu
Freysteini; og Arni Kárason
minnti einkennilega mikið á
Valdimar Lárusson í gervi
Torfa í Klofa, engum
þeirra til framdráttar. En
Brynhildur Ingjaldsdóttir sómdi
sér sem frú Helga, og Loftur
Ánwtfidason gaf Ingólfi á Selfossi
einhæfan en trúverðugan svip.
Allt á litið (hygg ég að Baldvin
Halldórsson leikstjóri hafi reynzt
Leikfélagi Kópavogs þarfur mað
ur og gert það sem unnt var úr
efnum félagsins til sýningarinnar
Tin eins og vaninn er í íslenzk
um leikhúsum tókust hópsenur
sízt; almúigi á hlaðinu í Klofa
samanstóð af tómum skrýtnum
körlum, en sveinar Lénharðar af
skólastrákalegum væsklum. —
- Ó. J.
Kastljós
Frh. úr opnu.
við 400.000 háskólakennara lands
ins og hinar mörgu milljónir
bandariskra stúdenta. Hvergi er
óánægjan með stefnu Johnsons í
. Vietnammálinu jafnmikil og með
al þeirra.
En eins og nú standa sakir geta
samtökin ekki bent á nein önn-
ur úrræði en þau sem Johnson
forseti hefur reynt. Kjör Galbra
. iths í formannsembættið og ann
arra fyrrverandi samstarfsmanna
Kennedys forseta í trúnaðarstöð
ur innan samtakanna hefur leitt
• til þess að samtökin hafa á sér
’svip „Kennedy-úiSlagastjórnar'4.
En Robert Kennedy öldungadeild
í armaður hefur endurtekið þá yf
ii'lýsingu sína, að hann muni ekki
gefa kost á sér sem forsetaefni
í forsetakosningunum á næsta ári
og auk þess hefur hann skorað
á alla demókrata að styðja John
son..
Þing ADA skoraði varfærnis-
lega á Repúblikanaflokkinn að til
nefna framfarasinnaðan mann
ir fulltrúar á þinginu lögðu jafn
vel til, að samtökin byðu fram
þriðja forsetaefnið, en sú tillaga
fékk dræmar undirtektir. Eins og
nú standa sakir virðast margir
, meðlimir ADA munu skila auðu
•í forsetakosningunum á næsta
Skéiaskáld
Framhald af 7. síðu.
og gerðist í Ungverjalandi. En
það sem mér þótti allra leiðin-
legast við þetta, var þegar Thor
Vilhjálmsson kom upp á fundi í
Austurbæjarbíói og leyfði sér að
leiðrétta stríðið frá hendi Viet-
Cong. Við hljótum að viðurkenna
eitt, að það er glæpur áð drepa
mann. Og það er jafn mikill glæp
ur og að tefla mannslífum út i
dauðanna. Að heyja stríð, það er
að tefla mannslífum út í dauðann,
og það er að lejðrétta manndráp
að leiðrétta stríð á nokkurn hátt.
Menn láta aðeins svívirðast me'ð
því að reyna að leiðrétta stríð,
hvoru megin sem þeir standa.
Þetta stríð á að leysa með samn-
ingum. Og yfirleitt öll vandamál
á að leysa með samningum, því
þar sem heilinn hættir þar taka
hendurnar við.
Hvar stendurðu í stjórnmálum?
— Ja, ég yrði sennilega tal-
inn af Heimdellingum og Æsku-
lýðsfylkingarmönnum algjör gleði
kona í pólitík. Ég var t.d. einu
sinni í FUJ, svona til að kynna
mér það, og hafði þar einu sinni
framsögu á málfundi. Ég verð að
viðurkenna, að ég varð fyrir mikl-
um vonbrigðum með FUJ og dag-
aði þar eiginlega uppi og sagði
mig svo úr því. Ég held að eina
afstaðan, sem ég tek í pólitík,
sé að mér er ákaflega illa við
alla framsóknarmenn.
Hvert er álit þitt á þessum
blessaða her, sem við höfum hér?
— Já, einmitt. Styrmir Gunn-
arsson kom fram með þá fífla-
legustu 'hugmynd, sem ég hef
nokkum tíma heyrt í sambandi
við þennan her. Ég tek nú
kannski stórt upp í mig, en ég
gapti þegar ég heyrði hana. Hann
var á móti sjónvarpi, en með
her! Það er ekkert nema þjóð-
j erniskomplex á bak við þetta;
j heigulsháttur og smáborgarskap-
mr. Ég sé ekkert athugavert við
það, að við höfum bandarískt
sjónvarp hérna á meðan við höf-
um her. Við bætum ekkert með
! því að setja þannig púður yfir
j kýlið og loka sjónvarpinu. Það er
| verið að tala um bandarísk spill-
j ingaráhrif. Ég held að þetta sé
| algjör misskilningur. En ég er
j algjörlega á móti öllum milliter
| og milliterisma og ég vil reka
herinn héðan einsog skot. Það
var t.d. mjög sorgleg saga sem
kom fyrir mig, þegar ég gekk
Keflavíkurgönguna. Ég gekk einu
sinni Keflavíkurgönguna, ég við-
urkenni það. Og ég var meira að
segja svo duglegur, að ég byrjaði
einhvers staðar fyrir utan Hafn-
arfjörð og gekk í bæinn, fullur
af eldmóði og hugsjónum, og var
á móti öllu^sem varðaði her. Það
var samt dálítið skrítið, og ég var
oft að furða mig á því í göng-
unni, að það var ekkert nema
„Minnist Dominicu", „Hvað eru
Bandaríkjamenn að gera í Viet-
Nam“ og eitthvað í þessum dúr.
Af hverju mátti ekki vera spjald
þarna, sem á stóð „Hvað gerðist
í Ungverjalandi“, „Minnist Ung-
verjalands" eða „Minnist Eystra-
saltslandanna" eða eitthvað i þeim
dúr. Ja, ég sætti mig nú við
þetta og gekk niður í bæ. Síðan
kom ég á fund niðri í bæ og þar
hélt Ingimar Erlendur ræðu. Hún
var um það, að Bandaríkjamenn
væru að hrekkja gamalt fólk og
draga tennurnar úr smábörnum
og búa til úr því byggingarein-
angrunarefni eða eitthvað svoleið
is. Og allt í þeim dúr, að Banda-
ríkjamenn væru svo vondir. En
það kom hvergi fram að þetta
væri gegn her og hernaðaranda.
Þetta var anti-bandarísk ganga,
£0 19. apríl 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ
alls ekki anti-milliterisk, og um
leið var gangan fallin um sjálfa
sig. Enda veit ég það, að hópur
af fólki, sem ég þekki í Mennta-
skólanum, myndi hiklaust ganga
þessa göngu, ef hún væri ekki
siðferðislega rangt rekin og svona
mikill misskilningur á bak við
hana. Og á meðan blað einsog
Þjóðviljinn blæs þetta upp, eru
ekki nema vissir menn, sem fara
í þessa göngu. En ef hún yrði aft-
ur á móti rekin á þeim grund-
velli, að þetta væri gegn her, er
ég viss um að stór hluti iþjóðar-
innar mundi taka þátt í henni.
SKIPAtiítiCR# RIKISINS
Ms. Esja
fer vestur um land til fsafjarð
ar 27. þ. m. Vörumóttaka á
mánudag og þriðjudag til Pat-
reksfjarðar, Tálknafjarðar, Bíldu
dals, Þingeyrar, Flateyrar, Suð
ureyrar og ísafjarðar.
Farseðlar seldir á miðvikudag.
Ms. Blikur
fer austur um land til Siglu-
fjarðar 28. þ. m. Vörumóttaka
á mánudag og þriðjudag til
Hornafjarðar, Djúpavogs, Breið
dalsvíkur, Stöðvarfjarðar, Fá-
skrúðsfjarðar. Reyðarfjarðar,
Eskifjarðar, Norðfjarðar, Mjóa-
fjarðar, Seyðisfjarðar, Borgar-
fjarðar, Vopnafjarðar, Bakka-
fjarðar, Þóshafnar, Raufarhafn-
ar, Kópaskers, Húsavíkur. Akur
eyrar, Ólafsfjarðar og Siglu-
fjarðar.
Farseðlar seldir á miðvikudag.
M/S HerSubreið
fer vestur um land til Akureyr
ar 29. þ. m. Vörumóttaka á
mánudag og þriðjudag til Bol-
ungarvíkur, Ingólfsfjarðar, Norð
urfjarðar, Djúpavíkur, Hólma-
víkur, Hvammstanga, Blöndu-
óss, Skagastrandar og Sauðár-
króks.
Farseðlar seldir á miðvikudag.
ENSK
FATAEFNI
NÝKOMIN
Hltima
FJÖLIDJAN • ÍSAFIRDI
EINANGRUNARGLER
FIMM ÁRA ABYRGÐ
Söluumboð;
SANDSALAN S.F.
Elíiðavogi 115.
Sími 30120. Pósthóif 373.
Minningarorð:
Friðþjófur Thorsteinsson
Hinn 13. apríl sl. andaðist hér í
í borg Friðþjófur Thorsteinsson
verzlunarmaður, eftir mikla van-1
heilsu.
Friþjófur var fæddur 28. á-
gúst 1895, og var því kominn á
áttræðisaldur, er hann lézt.
Með Friðþjófi er fallinn í val
inn, einn af frumherjum knatt-
spyrnuíþróttarinnar hér á landi,
óg einn í hópi þeirra snjöllustu,
sem hafa haslað sér völl undir
merki þessarar göfugu íþróttar.
Fyrsti opinberi knattspyrnu-
kappleikurinn, sem talið er, að
fram hafi farið hérlendis, var á
aldarafmæli Jóns forseta Sig-
urðssonar, órið 1911. Þar var
Friðþjófur í hópi leikmanna, og
tryggði meira að segja félagi
sínu, Fram, sigurinn, með því að
skora úrslitamarkið á síðustu
mínútunni.
Friðþjófur gerðist félagi í
Fram, á unga aldri, og stóð þar
stöðugur undir merkinu allt til
aldurtilastundar. Þessum fyrsta
sigri sínum fyrir Fram árið 1911
fylgdu margir á eftir, á komandi
árum, að frumkvæði Friðþjófs.
Það er flestra manna mál, sem
til þekkja, að vart hafi í fylk-
ingu íslenzkra knattspyrnu-
manna, komið fram öllu glæsi-
legri knattspyrnumaður, en Frið
þjófur. Hann var flestum leikn-
ari, skotfimari og sprettharðari.
En þó efniviðurinn sé góður,
verður enginn óbarinn biskup.
Æfing og aftur æfing skapar
meistarann. Þetta skildi Frið-
þjófur öðrum betur og hagaði
sér þar eftir, með þeim árangri
að hann verður alltaf minnst
þegar góðrar knattspyrnu er get-
ið.
Á yngri árum dvaldi Frið-
þjófur í Skotlandi. Hann var þar
öll fyrri styrjaldarárin. Þar
komst hann fljótt í kynni við
knattspyrnuna, og lék þar árum
saman með atvinnuliði, en sem
áhugamaður. Eftir heimkomuna
lék hann að nýju með sínu
gamla félagi, eða þar til hann
enn á ný fluttist af landi brott
Sumardagurinn fyrsti
Aðgöngumiðar að skemmtunum Sumargjafar
í Austurbæj'arbíói, Laugarásbíói, Réttarholts-
skóla og Tjarnarbæ, verða seldir í húsunum
sjálfum frá kl. 4-6 í dag, síðasta vetrardag og
frá kl. 1 á morgun, Sumardaginn fyrsta.
SUMARGJÖF.
Innilegar þakkir færi ég öllum þeim mörgu er
sýndu mér vinarhug á sjötugsafmæli mínu 6.
þ. m. með gjöfum, skeytum og hlýjum hand-
tökum,
GUÐMUNDUR I. MAGNÚSSON,
Hafnargötu 70, Keflavík.
og til Kanada, þar sem hann
dvaldi í 10 ár.
Friðþjófur var í undirbúnings
og móttökunefnd A.B., sem kom
hingað í heimsókn árið 1919,
fyrst erlendra knattspyrnuliða.
Hann lék og í úrvalsliðinu
gegn A.B. Friðþjófur kom heim
aftur frá Kanada árið 1934, m.a.
fyrir atbeina Fram, og tók þá
upp hinn félags.lega og íþrótta-
lega þráð að hýju, þar sem áður
var frá horfið. Hann hóf m.a.
þjálfun í félaginu, og þá var
fyrst hafizt handa um innanhúss
æfingar. Auk þess tók Friðþjóf-
ur þátt í beinu félagslegu starfi
með því að starfa í stjórn og
sem fulltrúi í KRR. Má því
segja að Friðþjófur lægi ekki á
liði sínu í störfum fyrir sitt
gamla og góða félag.
í skemmtilegu viðtali við
Friðþjöf í 50 ára afmælisriti
Fram, viðurkennir hann, að leik
menn sem séu nú munu leiknari,
en áður en þeir séu hættir að geta
skotið á mark. Hér hittir hin
aldna kempa naglann á höfuðið,
og gat djarft úr flokki talað,
því einn af meginþáttum í knatt
spyrnuhæfni hans, var ótrúleg
skotfimi. Þurfti vart nokkur um
skóinn að binda, eftir skot hans.
Með Friðþjófi Thorstei.nsson
er horfinn af leikvéllinum, mik-
-ilhæfur íþróttamaður drengur
góður, lundléttur og velviljað-
ur, jafnt í striti og starfi fé-
lagsmálanna sem hins daglega
lífs.
Útför hans verður gerð í dag
frá Dómkirkjunni.
Einar Björnsson.