Alþýðublaðið - 22.04.1967, Side 16
tmSÍMSD
VORID ER KOMID
Nú er komið vor samkvæmt alman
akinu, þótt þess sjóist kannski
lítil merki á veðráttunni. Og þó
var eins að það væri eitthvað
bjartara umhorfs í gær og jafn-
vel í fyrradag líka, heldúr en ver-
ið hefur að undanförnu, þótt
frostið væri samt við sig áfram
og hitaveitan komin í stræk, eins
og alltaf þegar hennar er mest
þörf. Raunar þarf alls ekki að
vera svo bölvað að frost sé um
sumarmálin, að minnsta kosti var
það gamalla manna mál að það
vissi á gott sumar, þegar saman
frysi vetur og sumar. Við skulum
vona að þessi gamla veðurkredda
reynist rétt í ár, enda áreiðan-
lega sköpuð af reynslu og ekki
orðin til út í bláinn.
Vorið er sem sagt komið og
ejálfsagt dregur úr frostinu inn-
an tíðar, enda má búast við að
bráðum fari að hitna í kolunum,
þegar kosningarnar færast nær.
Þess má þegar sjá ýmis merki
-að keppendurnir í þeirn lands-
leik, sem nefnist kosningar, eru
farnir að hita sig upp, eins og
það heitir á íþróttamannamáli,
og farnir að undirbúa komandi
stórsigra. Það væri óskandi að
|>að hitnaði í fleiru heldur en
kolunum, þegar lengra kemur
fram á vorið enda segir máltæk-
íð — eða kannski var það skáld-
ið — að funi kveikist af funa,
og hvað er þá eðlilegra en hinn
innri hiti hafi áhrif á hina ytri
hlýju?
Sjálfsagt skrifa þ'ó ekki allir
undir þetta. Sumir líta ekki á þá
hlið kosninganna, sem kveikir í
mönnum og kemur þeim til að
volgna, heldur benda á aðrar.
hliðar sama fyrirbæris og segja
að hamagangur eins og kosning-
ar eigi ekki heima að vorlagi,
heldur færi bezt að hafa þær í
svartasta skammdeginu; það hæfi
nefnilega bezt að myrkraverk séu
unnin í myrkri. Út af fyrir sig
er þetta ekkert óaðgengileg kenn
ing, en nú er komið fram á sum-
ar, og þá er bjartari hugmyndin
orðin meira freistandi. Enda er
það líka ósköp eðlileg sjálfs-
bjargarviðleitni að reyna að hlýja
sér við heitar hugsanir í hita-
veitukuldanum.
Það er oft sagt, að vorið hafi
bætandí áhrif á mannfólkið; fólk
verði hjálpsamara og greiðvikn-
ara hvað við annað og hafi meiri
trú á náunganum heldur en áð-
ur, meðan vetrarmyrkrið grúfði
yfir. Það kann að vera eitthvað
til í þessu, að minnsta kosti var
óskabarn þjóðarinnar. Eimskipa-
félagið, svo hugulsamt á fyrstu
nótt sumarsins að skilja allar pen
ingahirzlur eftir opnar eða með
!
SUMARVÍSUR
í dag er loftið blítt og blátt
og bjart um fjallakamb,
og hjartað í mér hemst ei kyrrt,
en hoppar eins og lamb.
Ég gæti brugðið brandi á loft
og brotizt inn í haug
og rifið kjaft við kóng og prest
og kveðið niður draug.
Hver von og ósk er frjáls og fær
og feit um lend og hupp.
Og sérhvert kolflækt klögumál
sem kapall gengur upp.
/
*
lykla í skránum til þæginda fyr-
ir þá gesti, sem þar kynnu að
rekast inn um nóttina. Þessi
greiðasemi var vel þegin, enda
vandi vel boðnu að neita, svo að
aftur sé vitnað í gamalt og gott
máltæki.
En þó að vorið færist í allt og
alla, þá er þó einn söfnuður, sem
ekkj fær á sig vorblæ, jafnvel
þótt hann hitni ákaft annað veif-
ið. Það er bæjarstjórnin í Hafn-
arfirði; það er áreiðanlega eng-
in hætta á öðru en að þeir sem
þar sitja haldi áfram-að hrella
hverjir aðra og angra á alla lund,
alveg eins og það væri hörkuvet-
ur eða jafnvel ísöld enn við lýði.
Það er nefnilega einu sinni svo,
að til þess að kunna að meta
vorið og geta látið það hafa áhrif
á sig, þurfa menn að hafa til að
bera eiginleika, sem sumir menn
eiga því miður ekki mikið af;
, það er skopskyn.
Þess má geta að lokum að Bo-
eing fæddist í Mösfellssveit
og fluttist til Ðanmerkur með
foreldrum sínum þegar hann
var tíu ára gamall . . .
Þotufrétt í Mogga
Nú er sumardagurinn fyrstl
liðinn. Við skulum vona að
það komi líka eittlivert sumar
fyrir haustið.
Fötin hafa allt að segja. Það
komst ekkert líf í tuskurnar
í Eden fyrr en Adam og Eva
hættu að vera klæðlaus . . .
Það er undarlcgt að í þessunai
hcimi skuli enginn hafa
minnsta vit á bamauppeldi,
nema konur eins og ég, sent
engin börn eiga ...