Alþýðublaðið - 25.04.1967, Side 1

Alþýðublaðið - 25.04.1967, Side 1
Þriðjudagur 25. apríl 1967 - 48. árg. 91. tbl. ~ VERÐ KR. 7 Fyrsta geimferðarslysið, sem vitað er um MOSIÍVU 24. apríl (NTB). Vladimir Komarov ofursti bcið' bana þeg ar geimfarið „Sojus l.“ hrapaði til jarðar með gífurlegum hraða síðdegis í dag. Geimfarið var í sjö kílómetra f jarlægð frá jörðu þeg ar fallhlífar þess vöðluðust saman. Komarov er fyrsti geimfarinn sem ferst í geimnum og fyrsti sovézki geimfarinn sem farið hafði tvær geimferðir. Geimfarinu var skotið frá Baj konur aðfaranótt sunnudags og hafði það því verið rúman sólar hring á lofti þegar slysið varð. Tilkynnt var um slysið 12 og hálfri klukkustund eftir að síð ast var sagt frá samtölum milli Komarovs og geimstöðvarinnar á jörðu niðri. Góðar heimildir í Moskvu lierma hins vegar, að Komarov hafi ekki verið þögull síðustu 12 klukkustundir ferðarinnar held ur þvert á móti tilkynnt um tækni bilanir um borð í geimfarinu. Hann bað um leyfi til að lenda vegna bilananna og var það veitt í hinni opinberu tilkynningu um slysið segir, að hann hafi lok- ið verkefni sínu þegar honum var skipað að snúa til jarðar aft ur. Allt bendir til þess að Komarov liafi stýrt „Sojusl.“ inn á rétta braut til lendingar og slysið hafi orðið þegar hann hafði að mestu lokið við fyrsta hluta lendingar innar, hemlun geimfarsins í efstu lögum gufuhvolfsms. Fallhlíf arriar opnuðust eins og ráðgert hafði verið, en vöðluðust saman. Geimfarið hrapaði á ægilegri ferð til jarðar og hraðinn var svo mik ill að Komarov hafði ekki tíma til að varpa sér út í fallhlíf með því að þrýsta á hnapp í sæti sínu Hann lézt samstundis. Orðrómur komst fljótt á kreik um það í Moskvu, að eitthvað hefði komið fyrir, og ljóst var að ,,lzvestia“ mundi ekki koma út eða að útgáfu blaðsins mundi seinka. Kl. 16,30 að ísl. tíma barst síðan stutt og áhrifamikil frétt frá Tass: Géimfarinn Vladimir Komar ov fórst í tilraunaferð með geim farinuu „Sojusl.“ Moskvuútvarpið og sjónvarpið gerðu hlé á útsend ingum sínum, og í yfirlýsingu er miðstjórn kommúnistaflokksins gaf út skömmu síðar sagði, að Vladimir Komarov yrði um ei lífð tákn hetjulundur og dirfsku. Nafn hans yrði hvatning til nýrra dáða fyrir heiður föðurlandsins. Ferð ,,Sojusl.“ var fyrsta geim ferð Hússa í 25 mánuði, en þann tíma notuðu Bandaríkjamenn til að setja nokkur ný geimferðar met. Eftir geimskotið var því hald Framhald á 13. síðu. Sjónvörplð í málaferlum? Reykjavík, — KB Líklegt er talið að Sjón- varpinu verði mjög bráð- lega stefnt fyrir meiðandi ummæli, sem þar voru ný- lega látin falla um vikublað í Reykjavík. í umræðuþætti síðastliðinn föstudag sagði Thor Vilhjálmsson eitthvað á þá leið, að ekki væri á- stæða til að fara niður á skolpræsaplanið, plan Mánu dagsblaðsins. Út af þessum ummælum Thors mun Agn- ar Bogason ritstjóri ætia sér að höfða mál gegn Sjónvarp- inu fyrir að flytja orð sem Framhald á 14. ísðu. Vladimir Komarov ofursti Utanríkisráðherrafundurinn I dag í dag hefst í Reykjavik utanríkis- í'áðherrafundur Norðrirlanda og | stendur í 'tvo daga. Utanríkisráð- | herrar Finnlands, Islands, Noregs ! og Svíþjóðar taka þátt í fundinum I en af hálfu Dana Hans Sölvhöj, ráðherra, þar eð Jens Otto Krag forsætis- cg utanríkisráðherra er forfallaður vegna útfarar dr. Kon rad Adenauers. Fundurinn hefst í Áttihagasal Hótel Sögu kl. 10 árdegis og verð- NORÐMENN KREFJAST SKAÐABÓTA í NTB-frétt frá Bergen í gær segir að frásögn Bergens Tid- ende í fyrri viku um skemmdir á síld frá íslandi hafi vakið riiikla athygli hér á landi og kom ið af stað mik|um umræðum. Á laugardag hafi borizt fregnir um að norsku verksmiðjurnar krefj ist 3,6 milljóna íslenzkra króna skaðabóta og hafi það valdið ís lendingum miklum áhyggjum. Þá segir í fréttinni, að norsku niðursuðuverksmiðjurnar, sem nú ætli að höfða mál, hafi samtals keypt 10.729 tunnur af íslenzkri kryddsíld. 1601 tunna sé enn á ís landi og sé neitað að taka við því magni. Af þeirri síld, sem til Noregs var flutt reyndust 4294 tunnur ónýtar og er kráfizt fullra bóta fyrir um 1000 tunnur, sem varð að tína úr og fleygja úr 1735 tunnum og fyrir kostnaði við Framhald á 14. síðu ur framhaldið kl. 15 eftir hádeg- isverðarhlé. í kvöld munu þátt- takendur sitja kvöldverðarboð rík isstjómarinnar að Hótel Sögu. Á morgun hefst fundur kl. 10 ár- degis, kl. 13 heldur utanríkisráð- herra hádegisverðarboð að Ilótel Borg og að því loknu er ráðgert að fljúga til Surtseyjar og Vest- mannaeyja með Fokker Friend- ship vél Flugfélags íslands, ef veður leyfir. Um kvöldið snæða ráðherramir kvöldverð í sendiráð- unum og þá verður einnig hald- inn fundur deildarstjóra utanrík- isráðuneytanna. Utanrikisráðheira Finna, Ahti Karjalainen kom fyrstur hinna er lendu ráðherra til fundarins; hann kom með Flugfélagsvél í fyrra- kvöld. Utanrikisráðherra Noregs John Lyng kom með einkaþotu í gærkvöldi og Torsten Nilsson ut- anríkisráðherra Svíþjóðar og Hans Sölvhöj riáðherra frá Danmörku komu með Flugfélagsvél seint í gærkvöldi. Reykjavík, — Hdan. Um kl. 16.00 í gær stóf> Sif, flug- vé] landhelgisgæzlunnar togarann Brandur GV 111 að meintum ó- löglegum veiðum um 3V6 sjómílu innan fiskveiðitakmarkanna suð- vestur af Eldey. Togarinn sinnti ekki boðum flugvélaránnar að halda til hafnar og svehnaði vélin því yfir lionum til kl. 22.00 að varðskipið Þór kom aff honum Varðskipið var væntaol^gt til Reykjavíkur með togarann um kl. 6 í morgun.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.