Alþýðublaðið - 25.04.1967, Síða 9

Alþýðublaðið - 25.04.1967, Síða 9
AF MALINOVSKY unni, en auk þeirra tvímenn- inganna voru marskálkarnir Ko- név og Malinovsky í þessari klíku. Með aðsto'ð úkrainsku marskálkanna bolaði Krústjov Zhukov marskálki úr embætti. Árið 1960 varð Gretsjko fyrsti varalandvarnaráðherra og ári síðar fékk hann sæti í miðstjórn- inni, en herinn er aðaláhuga- mál Gretsjkos en ckki stjórn- málin, og liélt hann hinum mik- ilsverðu embættum sínum eftir að vinur hans og vejunnari. Krústjov, var settur af. ★ STAÐGENGLARNIR. Ungir herforingjar komast nú til metorða um lei'ð og Gretsj- ko tekur við embætti landvarna- ráðhei-ra, en Ivan Jakubowsky verður áfram forseti herráðsins. Hershöfðingjarnir Sergei Soko- low og Ivan Pawlowsky hafa verið gerðir að marskálkum og skipaðir varalandvarnaráðherr- ar. Þannig bera nú þrír hersr höfðingjar titilinn 1. aðstoðar- landvarnaráðherra í sovétstjórn- inni og hvorki meira né minna en níu bera titilinn aðstoðarland varnaráðherra. ★ . Jakubowsky marskálkur er 55 ára að aldri. Hann tók við af Gretsjko sem yfirmaður sovézka herliðsins í Austur- Þýzkalandi 1957. Hann var skipaður herstjóri í Kiev- herstjórnarumdæminu 1965. ★ Sokolow marskálkur er 56 ára að aldri. Hann var yfir- maður vélvæddra hersveita á Finnlandsvígstöðvunum í heimsstyrjöldinni. Árið 1965 varð hann yfirmaður her- stjórnarumdæmisins Lenin- grads, og er hann talinn sérfræðingur í hermálum Norðurlanda. t ★ Pawlowsky marskálkur er 58 ára að aldri. Hann varð yf- irmaður sovézka heraflans í austurhlutum Sovétríkjanna í nóvember 1963. Hann var í fylgd með þeim Bresjnev, Podgorny og Kosygin, þegar þeir heimsóttu landamæra- héruðin, þar sem hætta er nú á vopnuðum átökum vegna deilu Kínverja og Rússa. — Hánn hefur oft farið hörð- um orðum um Kínverja. ★ ÁHRIF'HERSINS. Rússar virðast enn leggja meg- ináherzlu á varnir sínar í Evr- ópu. Mannabreytingarnar í sov- ézka landvarnaráðuneytinu benda til þess, ekki sízt sú stað- reynd að tveir fyrrverandi yfir- menn sovézka herliðsins í Au.- Þýzkalandi hafa verið hækkaðir í tign. En tilnefning Sokolows sýnir, að einnig er lögð áherzla á varnirnár í austurhluta Sovét- ríkjanna. Allir marskálkarnir og hers- höfðingjarnir í æðstu forystu hersins eru flokksmeðlimir. Flest ir eiga þeir sæti í mikilvægustu nefndum, allir hafa þeir verið sæmdir Leninorðunni, flestir oftar en einu sinni, en jafnframt eiga þeir það sameiginlegt, að ekki er hægt að líta á þá sem „pólitíska herforingja,” og stað- reyndin er sú, að þeir komast Andrei Gretsjko marskálkur. til metorða í flokknum í krafti cmbætta þeirra, sem þeir gegna í heraflanum. Margt bendir til þess, að nú- verandi valdhafar í Kreml ótt- ist ekki völd hersins í stjórnmál- unum. í þessu sambandi má minnast þeirra orða bandaríska sendiherrans, Charles Bohlens, sem er gjörkunnugur sovézkum máiefnum, að Rauði herinn í Sovétríkjunum h'afj ekki meiri áhrif en Hjálpræðisherinn í Bandaríkjunum. Herforingjarn- ir, sem nú gegna mikilvægustu embættum, hafa komizt til met- orða i'yrir dugnað sinn og hæfnl í hermennsku, ekki vegna stjórn málaskoðana eða afskipta af stjórnmálum. Marskálkar Sovétríkjanna eru 37 talsins, en þeim titli halda þeir ævilangt og njóta þar af leiðandi margra forréttinda og mikillar virðingar. Tvær gamlar kempur frá byltingunni, Voro- shilov, 86 ára, og Budjonny ridd- araliðsmarskálkur, 84 ára, eiga enn sæti í forsætisnefnd Æðsta ráðsins og ,aðrir marskálkar gegna enn mikilsverðum trúnað- arstörfum þótt komnir séu á eft- Framhald á bls. 15. ur fyrir það, hve örlátur hann var á fé til lista og hversu vel hann, reyndist listamönnum. — Hófst nú tímabil í ævi Haydns, sem lengi mun verða minnzt í sögu tónlistarinnar. Nú kom fyrst í ljós til hlítar sú fádæma frjósemi, sem í honum bjó. Hann ' hafði þarna umráð yfir ágætri hljómsveit, sem hann gat not- fært sér eftir vild sinni, því að hljóðfæraleikararnir dáðu hann og voru honum auðsveipir. Og þarna urðu til verkin, hvert af öðru, sem síðar urðu heimsfræg. Eru þar efst á blaði tónverkin „Sköpunin” og „Árstíðirnar.” Þessi tónverk hafa bæði verið flutt hér á landi. Það var 18. desember 1939, sem Páll ísólfs- son réðist í að flytja „Sköpun- ina,” þrátt fyrir mikla erfiðlcika á húsnæði til slíks, sem var þá hér í Reykjavík. En eins og efa- laust mai’gir muna, var „Sköp- unin” flutt í stórum bifreiðaskála að viðstöddu miklu fjölmenni og við mikla hrifningu. „Árstíðirn- _,ar” voru fluttar hér vorið 1943 og var stjórnandinn Róbert A. Ottósson. Þeirri tónsmíð var ákaf- lega vel tekið, sem og verðugt var. Haydn varð 77 ára gamall, en hann dó árið 1809. Margir „mótiv”-safnarar safna frímerkjum með myndum af frægum tónskáldum og hljóð- færaleikurum. Þeir hafa um all- auðugan garð að gresja, þar sem eru frímerki Austurríkis, Ték- kóslóvakíu og Þýzkalands. Deiídarhjúkrunarkonustaða Staða deildarhjúkrunarkonu við taugasjúk dómadeild Landsspítalans er laus til umsókn ar. Allar nánari upplýsingar veitir forstöðu kona Landsspítalans í síma 24160 og á staðn um* J Reykjavík, 24. apríl 1967. . Skrifstofa ríkisspítalanna. Hjúkrunarkonur óskast Hjúkrunarkonur vantar í taugasjúkdómadeild Landsspítalans. Allar nánari upplýsingar veit ir forstöðukona Landsspítalans í síma 24160 og á staðnum. Reykjavík, 24. apríl 1967. Skrifstofa ríkisspítalanna. Hjúkrunarkonur óskast H j úkrunarkonur vantar í Landsspítalann vegna sumarafleysinga. Upplýsingar veitir for stöðukonan í síma 24160 og á staðnum. Reykjavík, 24. apríl 1967. Skrifstofa ríkisspítalanna. Ljósmæður óskast Ljósmæður vantar á Fæðingardeild Landsspít alans til afleysinga í sumarleyfum. Upplýsing ar veitir forstöðukona Landsspítalans í síma 24160 og á staðnum. Reykjavík, 24. apríl 1967. Skrifstofa ríkisspítalanna. Húseigendaíélag Reykjavíkur AÐALFUNDUR Húseigendafélags Reykjavíkur verður haldinn í húsakynnum félagsins að Bergstaðastræti 11 föstudaginn 28. apríl 1967 kl. 17,30. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin. Auglýsið í Alþýðublaðinu 25. apríl 1967 ALÞÝÐUBLAÐIÐ $

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.