Alþýðublaðið - 25.04.1967, Side 16
EQ£SÖD
Kóngar í spilum og tafli
Það eru nú meiri ósköpin sem
ganga á í heiminum. Meira að
segja Grikkir eru farnir að gera
byltingar og láta eins og það
siæðu enn yfir miðaldir eða þeir
væru í Afriku. Og það er engan
veginn séð fyrir endann á því enn
livað þar kann að gerast. Það
gæti jafnvel farið svo að Danir
sætu á endanum uppi með tengda
soninn, sem trónar í Grikklandi
en enginn virðist þó vita hvort
lieldur er fangi eða fangavörður
eins og stendur. En það skipitir
lieldur engu meginmáli, aðalatrið
ið er að fangelsanir koma mjög
við sögu í Grikklandi (þessa dag
ana og eiga eflaust eftir að gera
það í. fyrirsjáanlegri framtíð.
Það er eitt af því fyrsta sem
kennt er í mannkynssögu, að ]ýð
ræðið sé grískt. Nú orðið væri
rétt að bæta við þessar upplýs
ingar; það er að segja hugtakið
Þó var það svo í gamla daga, að
til var lýðræði í Grikklandi. En
það var í gamla daga, aldgamla
daga meira að segja. Vagga lýð
ræðisins stóð í Grikklandi, en
það er þar í landi enn i vöggu
Iiafi það ekki hreinlega orðið
barnadauðanum, sem lierjar öll
vanþróuð ríki, að bráð.
Úr því hefur enn ekki fengizt
skorið hver var hlutur konungsins
í byltingunni um daginn, og eng
inn virðist vita, hvort hann var
heldur með henni eða móti, en
Iiins vegar dettur engum í hug að
Iiann hafi verið hlutlaus. Það er
nefnilega það, sem gerir kónginn
í Grikkjandi ólíkan öðrum kóng
•um, að hann er að reyna að vera
kóngur í alvöru, en ekki bara
einhvers konar spilakóngur, eins
og stéttarbrærður hans norðar
í álfúnni.
Annars væri kannski réttara að
segja að gríski kóngurinn láti
eins og liann sé taflmaðúr, kóng
ur á talfborði. Hann vill sjálfur
vera með í leiknum, en það hefur
auðvitað vissar hættur í för með
ser. Það gæti nefnilega farið svo
að hann yrði gerður mát. Eins ög
er virðist þó ekkert benda til
að svo sé , en öll óvissan um
aídrif hans og afstöðu gæti bent
til þess, að hann hafi orðið patt
og það eru ekki góð örlög kóngi
á taflborði,
Já, Iþað gengur mikið á í heim
inum. Fyrir utan þessi læti í
Grikklandi er auðvitað al]t vit
laust austur í Asíu og suður í
Afríku og eiginlega hvert sem lit
ið er. Og það þarf ekki einu
sinni að fara út fyrir lands-
steinana til þess að rekast á ill
deilur. Hér eru kosningar að nálg
ast, og undirbúningur þeirra er
að því leyti líkur hamaganginum
í Grikklandi, að hér eru margir
kóngarnir á skákborðinu og þeir
eiga eflaúst einhverjir eftir að
verða bæði mát og patt. L.S.G.
r
Ls pau' 9J
— Eg vil gjarnan biðja um eitt
fat af vel stórum túmötum. . .
>
j:
:
>
>
'
Alþingissonnetta
>
‘i
'*
;>
»
>’
i>-
»
:»
;»
»
:
'»
»
I
Þar sem í vetur þys var oft á fjölum
og þjóðskörungar nefjum saman stungu
og mæltu af snilld á Snorra og Ara tungu
og sniðuglega héldu uppi tölum
og fram á nætur heyrðist skrjáfa í skjölum
og skáldin lagafrumvörp kváðu og sungu
hátt eins og þoldu þeirra gömlu lungu
— þögnin glymur nú ein í tómum sölum,
Og þar sést enginn þjóðskörungur meir.
Þinghúsið mitt, í ógnar reiðileysu
andaðu létt, nýtt lið mun vitja þín.
í kjördæmunum bráðum birtast þeir
brosandi hver og einn í framboðspeysu
og faðma að sér flqkksatkvæðin sín.
ísskápa og allar að'rar raf-
magns-heimilistækja- raf-
lasna- og vélaviffgerðir.
Auglýsing í Vísi.
Mér þykja atburðirnir í
Grikklandi sanna aff það sé
bezt að hafa ekki aöra kónga
en þessa í spilunum.
Þaff er della aff þetta sé fyrsta
geimslysiff, sem varff þarna í
gær. Ég hef vitaff um marg-
vísleg slys í geimi áffur . . .
Guffi sé lof aff pilsin eru nú
orðin eins stutt og hægt er.
Þá hljóta þau nefnilega bráð
um aff fara að síkka aftur