Alþýðublaðið - 27.04.1967, Side 14
Auglýsing
um skoðun bifreiða í
Lögsagnarumdæmi Kópavogs
Samkvæmt umferðarlögum tilkynnist hér
með, að aðalskoðun bifreiða fer fram 2. maí
til 1. júní n.k., að báðum dögum meðtöldum3
svo sem hér segir:
Þriðjudaginn 2. maí .. .. Y-1 til Y-100
Miðvikudaginn 3. maí .. .. Y-101 - - Y-200
Föstudaginn 5. maí .. .. Y-201 - - Y-300
Mánudaginn 8. maí .. .. Y-301 - - Y-400
Þriðjudaginn 9 . maí . ... Y-401 ■ —Y-500
Miðvikudaginn 10. maí .. .. Y-501 - - Y-600
Fimmtudaginn 11. maí'.. .. Y-601 - - Y-700
Föstudaginn 12. maí .. .. Y-701 - - Y-800
Þriðjudaginn 16. maí .. .. Y-801 - - Y-900
Miðvikudaginn 17. maí .. .. Y-901 - - Y-1050
Fimmtudaginn 18. maí .. .. Y-1051 - - Y-1200
Föstudaginn 19. maí .., .. Y-1201 - - Y-1350
Mánudaginn 22. maí .. .. Y-1351 - - Y-1500
Þriðjudaginn 23. maí .. .. Y-1501 - - Y-1600
Miðvikudaginn 24. maí .. .. Y-1601 - - Y-1700
Fimmtudaginn 25. maí .. .. Y-1701 - - Y-1800
Föstudaginn 26. maí .. .. Y-1801 - - Y-1900
Mánudaginn 29. maí .., .. Y-1901 - - Y-2000
Þriðjudaginn 30. maí .. .. Y-2001 - - Y-2100
Miðvikudaginn 31.jnaí .. .. Y-2101 - - Y-2200
Fimmtudaginn lv júní .. .. Y-2201 - - Y-2300
Bigreiðaeigendum ber að koma með bifreið-
ir sínar að Félagsheimili Kópavogs, og verður
skoðun framkvæmd þar daglega kl. 9—12
og 13—16,30.
Við skoðun skulu ökumenn bifreiðanna leggja
fram fullgild ökuskírteini.
Sýna ber skilríki fyrir því, að ljósatæki hafi
verið stillt, að bifreiðaskattur og vátrygging-
ariðgjald ökumanna fyrir árið 1967 séu greidd,
og fögboðin vátrygging fyrir hverja bifreið sé
í gildi. Hafi gjld þessi ekki verið greidd eða
ljósatæki stillt, verður skoðun ekki fram-
kvæmd og bifreiðin stöðvuð, þar til gjöldin
eru greidd. Gjöld af viðtækjum í bifreiðum
skulu greidd við skoðun.
Vanræki einhver að koma bifreið sinni til
skoðunar á réttum degi, verður hann látinn
sæta sektum samkvæmt umferðarlögum og
lögum um bifreiðaskatt og bifreiðin tekin úr
umferð, hvar sem til hennar næst. Þetta til-
kynnist öllum, sem hlut eiga að máli.
Bæjarfógetinn í Kópavogi 20. apnl 1967,
SIGURGEIR JÓNSSON.
fþróttir
Frh. af 11. síðu.
Loks er það rúsínan í pylsu-
endanum, landsleikur við Dani í
Kaupmannahöfn 23. ágúst.
Ekki ber á öðru en verkefnin
verði næg fyrir knattspyrnumenn
ina í sumar og nú er það þeirra
að standa sig sem bezt, ekki endi- j
lega að sigra í hverjum leik, en i
sýna þokkalega getu og góða fram
komu.
Reynir Karlsson sem sér um
þjálfun A-liðsins, en liann ásamt
Sæmundi Gíslasyni skipa lands-
liðsnefndina. Þjálfari unglinga-
landsliðsins er Guðmundur Jóns-
son.
Leit aö manni
Frh. af 3. síðu.
Miklar annir hafa verið hjá
Norðurflugi síðustu daga og í
fyrradag var m.a. flogið til Djúpa
vogs með konu, sem var nýkom-
in af Sjúkráhúsinu á Akureyri.
Lent var í fjörunni á Djúpavogi
í miklum sjógangi, en flugvöllur-
inn þar er enn ónothaefur. Lend-
ing og flugtak tókst vel, en flug-
stjóri í ferðinni var Torfi Gunn-
laugsson.
LeftieiÖir
Frli. af 2. síðu.
skattar hafa nú verið felldir nið-
ur á Norðurlöndum.
Til nýlundu má það teljast í
fargjaldamálum, að nú eru komin
til sögu svonefnd ungmennafar-
gjöld innan Evrópu, en þá er ung
mennum, 12—22 ára, veittur af-
láttur 25% fullra fargjalda, sé
farmiði keyptur fram og til baka.
Hópar 20 ungmenna eða fleiri fá
þar að auki 10% afslátt og fritt
far fyrir fararstjóra, sem eldri er
en 22 ára.
Nýleg tollalækkun á flugfragt
hefir leitt til stórfelldrar aukn-
ingar á flutningi varnings með
flugvélum, og nýtur hin nýja sam-
eiginlega afgreiðsla flugfélaganna
mikilla vinsælda meðal kaupsýslu
manna.
Auk hinna föstu áætlunarferða
munu bæði Cloudmaster- og Rolls
Royce flugvélar Loftleiða fara all
margar leiguferðir á sumri kom-
anda, og má þar t.d. nefna Lun-
dúna- og Mallorcaferðir Sunnu,
Útsýnarferðir til Lundúna og ír-
landsferðir, sem Lönd & Leiðir
skipuleggja.
Þess má geta, að Loftleiðir
skipuleggja nú viðdvöl í Luxem-
borg með svipuðum hætti og héi
í Reykjavík. Er þó einungis gert
ráð fyrir sólarhrings viðdvöl, sem
ætti að geta verið heppileg fyrii
þá sem eru að hefja eða ljúka
Evrópuferð. Farþegum er séð fyr
, 'r farkosti milli flugvallar eðs
járnbrautarstöðvar og fyrsta fl
gistihúss, þar sem borðað er og
dvalizt. Farið er í kynnisför uir
Luxemborg með leiðsögumanni
Allur er dvalarkostnaðurinn frá
645,75 til 839,67 kr. og samsvar-
ar hann 15 og 19,50 Bandaríkja
dölum, sem greiddir eru fyrir jafr
langa dvöl gesta hér á íslandi.
Daglegar ferðir áætlunarbif
reiða eru milli Luxemborgar, Par
ísar og Kölnar og Frankfurt, oí
eru þær í beinum tengslum vií
flugferðir Loftleiða. Góðar sam
göngur eru einnig í lofti mill
Luxemborgar og annarra landa,
en auk járnbrautarferðanna trygg-
ir allt þetta farþegum Loftleiða ó-
dýra og fróðlega viðdvöl í Lux-
emborg og þægilegar ferðir milli
Luxemborgar og annarra landa.
Loftleiðir hafa nú eigin skrif-
stofur í San Francisco, Chicago,
New York, Kaupmannahöfn, Ham-
borg, Frankfurt, París, Vínarborg,
Glasgow, I.ondon -og Luxemborg,
en aúk þess sérstakar umboðs-
skrifstofur í 25 borgum víðsveg-
ar um heim. Nýjasta umboðsskrif
stofan er í Mexíkó og annast for-
stjóri hennar sölumál Loftleiða í
Mið- og Suður-Ameríku. Hann var
nýlega á ferð hér í Reykjavík og
táldi markaðshorfur Loftleiða góð’
ar á sölusvæði sínu.
í sl. marzmánuði lauk námskeiði
34 stúlkna, sem ráðgert er að hefji
störf hjá Loftleiðum, sem flug-
freyjur, á sumri komanda, en á-
ætlað er að alls muni um 170 flug '
freyjur vinna hjá Loftleiðum í
sumar.
Hestamannamót
Frh. af 2. síðu.
senda 3 hesta til keppni. í hinum
flokknum verða klárhestar með
tölti og koma fram tveir hestar
frá hverju félagi. Hvert félag vel-
ur sína hesta heima í héraði. í
kappreiðum verður keppt í skeiði,
stökki 300 m og 800 m og verða
veitt há verðlaun.
Tilkynningar um þátttöku í gæð
ingakeppni og kappreiðum skal
senda til framkvæmdastjóra móts
ins eigi síðar en 15. júní n.k.
Hdstam/annafélögifc hafa skipað
| framkvæmdanefnd mótsins og eiga
f sæti í henni fimm menn, þeir
J Einar Þorsteinsson ráðunautur
Búnaðarsambands Suðurlands,
sem er formaður nefndarinnar,
Árni ísleifsson tamningastjóri S
Hellu, Bergur Magnússon fram-
kvæmastjóri Fáks í Reykjavík,
Gunnlaugur Sigmundsson bóndi,
Syðra-Langholti.
Framkvæmdastjóri mótsins er
ráðinn Steinþór Runólfsson á
Hellu og fulltrúi hans verður Árni
ísleifsson Hellu.
Undirbúningur mótsins er haf-
inn fyrir nokkru og mun hesta-
mannafélagið Geysir taka að sér
verklegar framkvæmdir, enda
verður mótið haldið á skeiðvelli
þess og athafnasvæði.
Eldur á
Akureyri
í fyrrinótt kom upp eldur í kjall
ara hússins að Sólvangi, sem er
rétt ofan við Lystigarðinn á Ak
ureyri. Eldurinn kom upp í þvotta
potti í kjallaralnum og brann
þvottahúsið að innan og urðu
þar talsverðar skemmdir. Fjórir
hestar voru í skúr áföstum við hús
ið og fylltist hann af reyk. Var
talsvert stímabrak við að koma
hestunum út og mátti ekki tæpara
standa að þeim yrði bjargað.
SVEINN H.
VALDIIVIARSSON
hæstaréttarlögmaður
Sölvhólsgata 4 (Sambandshús
3. hæð).
Símar: 23338 — 12343.
Sparisjóður Alþýðu
OPNAR LAUGARDAGINN 29.APRÍL
Kl. 9 f.h. að Skólavörðustíg 16, inngangur frá
Óðinsgötu.
Sparisjóðurinn annast alla innlenda banka-
starfsemi.
Afgreiðslutími er kl. 9 til 4, á föstudögum kl.
9 til 4 og kl. 5 til 7, og á laugardögum
kl. 9 til 12.
SPARISJÓÐUR ALÞÝÐU.
14 27. apríl 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ