Alþýðublaðið - 29.04.1967, Síða 1
Laugardagur 29. apríl 1967 - 48. árg. 95. thl. - VERÐ 7 KR.
Úr sýning-arsal Náttúrugripasafnins (Ljósm.: Bjl. Bjl.)
Náttúrugripasafnið
opnar á nýjan leik
Rvík, —SJÓ. ,
Náttúrugripasafn íslands opnar 1.
maí nýjan sýningarsal að Hverfis
götu 116, en slíkur sýningarsalur
hefur ekki verið starfræktur frá
1960, er hann var lagður niður í
landsbókasafninu sakir þrengsla
Er því mikill fengur að þessum
sýningarsal, en hann er 100 ferm.
að stærð og því engan veginn full | sem skildi.
nægjandí. Náttúrufræðistofnunin |
hefur átt í miklum erfiðleikum I
með að fá nýtt húsnæði, en hús-
næðið að Hverfisgötu 116 er. að
eins til bráðabirgða. Er reyndar í
bígerð að reisa nttúrugripasafn
á háskólalóðinni, en þeim fram
kvæmdum hefur ekki miðað fram
Hinn nýi sýningarsalur Náttúru
gripasafnsins er að Hverfisgötu
116 3. hæð gegnt nýju lögreglu
stöðinni.
í þessum nýja sýningarsal getur
að líta íslenzka fugla og spendýr,
einnig erlend dýr, steina o.fl. Er
Framhald á 15. síðu.
Papandreou niðurbrotinn maður:
AÞENU, 28. apríl (NTB-Reuter)
N.
— Erlendum blaðamönnum var í
dag leyft að tala við Georg Pap.
andreou fyrrum forsætisráðlierra
í fyrsta skipti síð'an herinn geröi
byltingu I Grikklandi í síðustu
viku. Hinn aldni stjórnmálamað-
ur virðist vera niðurbrotinn mað-
ur, andlega og líkamlega, en hann
fékk hjartaáfall þegar hann var
handtekinn aðfaranótt laugardags
og hefur síðan dvalizt á sjúkra-
húsi gríska liðsforingjafélagsins í
útjaðri Aþenu.
Þeim feðgum Georgi og Andr-
easi Papandreou varð sundurorða
þegar þeim var leyft að hittast
á sjúkrahúsinu í gær, að sögn
fréttaritara dönsku fréttastofunn-
ar Ritzau. Georg Papandreou sak-
aði son sinn um að hafa komið
af stað sundrungu í Miðflokka-
sambandinu og leitt flokkinn út í
pólitískar hörmungar sem leiðtogi
vinstri arms flokksins. Fundi feðg-
anna lauk með því að Papandreou
.gamli hrækti framan í son sinn
í bræðiskasti, herma heimildar-
menn Ritzaus.
Georg Papandreou, sem er 81
árs að aldri, hafði beðið um leyfi
til að hitta son sinn, sem hefur
verið stefnt fyrir rétt, sakaður
um landráð vegna hlutdeildar í
starfsemi Aspida (skjöldurinn),
leynifélags vinstrisinnaðra liðs-
foringja.
□ Sætir góðri meðferð
Þegar blaðamennirnir hittu
Papandreou í dag sat hann í hæg
Framhald á 14. síðu.
Fara ekki til
Grikkiands
KAUPMANNAHÖFN, 25. apríl
(NTB-Reuter) — Menntamálaráð-
herrar Norðurlanda hafa ákveðið
að sitja ekki fund menntamála-
ráðherra Evrópu, sem halda á í
Aþenu dagana 9.-11. ma, að sögn
„Berlingske Tidende" í dag. Fund
urinn verður haldinn á veguin
Evrópuráðsins og var ákveðinn
fyrir löngu.
Framhald á 14. síðu
Maður
drukknar
Það slys vildi til á miðviku-
daginn, að matsveinninn á vélbátn
nm Sunnutindi frá Djúpavogi Sig-
urður Emilsson, féll útbyrðis og
drukknaði.
Var vélbáturinn á veiðum suð-
tir af Ingólfshöfða. Vissi síðast til
Sigurðar kl. 17, en um klukku-
tíma síðar var hans saknað og
lióf báturinn þá leit að honum
ásamt fjórum öðrum bátum. Bar
sú leit engan árangur.
Er álitið, að Sigurður liafi ætl-
að að tæma ruslið, er hann féll
útbyrðis. Suðvestan bræla var og
4—5 vindstig.
Sigurðnr var 48 ára að 'aldri
og ókvæntur, en fyrirvinna aldr-
aðrar móður.
Neytendasamtökin í kartöflustrí
Fvík, — SJÓ.
Svo sem kunnugt er kærðu Neyt
endasamtökin Grænmetisverzlun
landbúnaðarins sl. haust fyrir að
selja blöndu af ætum og óætum
skemmdum og óskemmdum kart
öflum í öllum hugsanlegum hlut
föllum í umbúðum með villandi
eihkennum. Grænmetisverzluínin
hefur haft einokun á sölu og inn
flutningi kartaflna, en að áliti
Neytendasamtakanna, er frjáls
innflutningur kartaflna, eina ráð
ið til lausnar þessu máli. Hafa
samtökin sent ráðherra bréf, þar
sem farið er á leit, að innflutning
ur á kartöflum verði gefinn frjáls.
Þar eð nokkur uppskerubrestur
hefur orðið sl. haust og Grænmet
isverzlunin er eina innflutnings
fyrirtækið á því sviði, hafa neyt
endur mátt gjalda þesg í verði
jafnt' sem vörugæðum qg þjónustu
Undanfarna mánuði hafa verið
fluttar inn kartöflur frá Danmörku
og líkað almennt vel. Er því eðli
legt, að borin séu saman kjör ís-
lenzkra og danskra neytenda.
Sveinn Ásgeirsson, formaður
Neytendasamtakanna, er nýkom-
inn af fundi Norrænnar samstarfs
nefndar um neytendamálefni, er
haldinn var í Stokkhólmi. Sveinn
kynnti sér mál þessi í Kaupmanna
höfn frá sjónarmiði neytenda og
ræddi einnig við samtök danskra
kartöfluútflytjenda. Danir flytja út
kartöflur víða um heim, en hafa
ekki orðið varir við einokun nema
á íslandi, og er því greinilegt að
þetta einokunarkerfi gerir gæfu
muninn.
F.o.b. verð hinna dönsku kart
Framhald á 15. síðu.