Alþýðublaðið - 29.04.1967, Page 5
Eftirlit með einokun og hringamyndun
. Á undanförnum árum toafa ís-
lendingar því miður dregizt nokk-
uð aftur úr nágrannaþjóðum !á
sviði löggjafar til verndunar neyt
endum gegn óeðlilegri verðlags-
myndun. Hér gilda að vísu víðtæk
og ströng lög um verðlagseftir-
lit, sem heimila sérstakri verð-
lagsnefnd að ákveða hámarksverð
eða hámarksálagningu á bæði inn
fluttum vörum og innlendri þjón-
ústu. En grundvallaratriði þess-
ara laga hafa staðið óbreytt síðan
fyrir hemsstyrjöldina, er slík
lagasetning var fyrst sett. Hún
var sett á tímum gjaldeyrisskorts
ög innflutningshafta. Gjaldeyris-
skorti og innflutningshöftum fylgir
vöruskortur innanlands ,en hætt
er við, að í kjölfar vöruskorts
sigli óeðlilegar verðhækkanir.
Það var mjög eðlilegt, að reynt
væri að sporna gegn þeim með
hámarksverði og hámrirksálagn-
ingu. Á styrjaldarárunum var
verðlagseftirlitið stóraukið vegna
þess sérstaka ástands, sem þá skap
aðist í viðskiptam'álum öllum. Frá
stríðslokum og þar til núverandi
ríkisstjórn tók upp nýja stefnu í
efnahagsmálum, mótaðist efna-
hagskerfið yfirleitt af ramgri
gengisskráningu, innflutningshöft-
um og meiri eða minni gjaldeyris
skorti, víðtæku ú'|flutningsbólta-
og innflutningsgjaldakerfi, auk
opinbers fjárfestingareftirlits.
Segja má að víðtækt eftirlit með
verðlagsmyndun einstakra vöru-
tegunda og einstakrar þjónustu sé
eðlilegur þáttur í slíku kerfi. Þeg-
ar frjá^rir viðskiptahættir eru
toins vegar orðnir traustir og sæmi
legt jafnvægi toefur skapazt í efna-
hagslífinu, eiga bein afskipti af
verðlagsmyndun einstakra vöruteg
unda ekki aðeins að vera óþörf,
toeldur geta þau jafnvel verið skað
leg, ef þau eru framkvæmd í ó-
heppilegu formi. Það er t.d. aug-
Ijóst, að sé verðlafjseftirlit tjll
langframa framkvæmt með því að
ákveða hámarksálagningu, slæv-
ist áhugi kaupmannsins á því að
toafa ódýra vöru á boiistólum.
Hann hefur þvert á móti hags-
muni af, að varan sé dýr, því að
þá verður álagning hans meiri.
Af þessum ástæðum og fleirum
hafa allar nágrannaþjóðir breytt
verðlagseftirliti sínu úr því horfi,
sem það er enn í hér, um leið og
þær toafa breytt skipun efnahags-
mála sinna á sama toátt og (hér
hefur verið að gerast undanfarin
6—7 ár. Nú eru opinber afskipti
af verðlagi í nágrannalöndunum
fyrst og fremst fólgin í því að
koma í veg fyrir, að verðlag sé ó-
eðlilega hátt veigna einokunarað-
stöðu framleiðenda eða seljenda
eða samtaka þeirra í því skyni að
halda uppi óþarflega háu verðlagi.
Hefur löggjöf um þetta efni gefizt
vel annars staðar og mikil reynsla
fengizt í þessum efnum.
Ríkisstjórnin hefur talið tíma-
bært, að athugaðir séu möguleik-
ar á setningu slíkrar löggjafar hér
á landi. Hér toafa margir aðilar
toagsmuna að gæta, launþegasam-
itök, neytendasamtök, kvenfélög,
samtök kaupmanna, iðrekenda og
vinnuveitenda og stjórnmálaflokk-
arnir, auk embættismanna, sem
um mál þessi f jalla. Fyrir skömmu
skipaði viðskiptam'álaráðuneytið
fjölmenna nefnd til þess að fjalla
um þessi mál og voru aðilar þeir,
sem ég nefndi, beðnir um að til-
nefna fulltrúa í nefndina, sem
starfa mun undir formennsku Þór-
halls Ásgeirssonar ráðuneytis-
stjóra í viðskiptamálaráðuneytinu.
Jafnframt hefur tekizt að fá hing-
að til lands einn af helztu embætt
ismönnum þeirrar stofnunar í Dan
mörku, sem um þessi mál fjallar,
Adolf Sonne, skr(ifstofustjóra í
GYLH Þ. 6ÍSLAS0H
LAUGARDAGSGREIN
Einokunareftirlitinu í Kaupmanna
höfn. Mun toann starfa með nefnd-
Snni í mánaðartíma, skýra frá
skipun þessara mála á Norður-
löndum, aðstoða við samningu
frumvarps um þessi efni og gera
tillögur um tilhögun framkvæmda.
•Ætti frumvarp um þetta efni að
geta verið til á næsta hausti, ef
sæmileg samstaða næst um meg-
inatriði í nefndinni. Hér er um at-
hyglisvert mál að ræða, sem von-
andi fæst á farsæl lausn.
ÁBERANDI er hvað stóru bátarn
ir bera meira úr býtum en þeir
Utlu þ.e. bátar 20 til 100 lesta. Ósk
andi væri að eittlivað væri hægt
að hlynna að smærri bátunum því
algjört atvinnuleysi vofir yfir frysti
húsunum í Reykjavík að sumrinu
ef þessir bátar hverfa alveg. Það
má segja að það sé alger draum
óramaður sem lætur sér detta í
hug að kaupa bát af þessari stærð
í dag, og ætla sér hagnað af.
að mjög vel á þessum stutta tíma
sem hann hefur verið að.
Af þorskanótabátunum er held
ur lítið að frétta, þeir skrapa nokk
ur tonn á dag þá sjaldan sem gef
ur. Algengasti afli þeirra yfir
alla vertíðina er 150—200 tonn,
sem einhverntíma hefði þótt lé-
legt á svona stór skip. Örn HE. er
við Noreg og var meiningin að
veiða síld en þar hafa verið stöð
ugar ögæftir. Örfirisey RE. tók
uppl atvinnulífinu í verkunar-
stöðvunum eins og er. Þormóður
Goði landaði 413.5 lestum í Reykja
vík og Víkingur um 410 lestum á
Akranesi. Þá er Sigurður að landa
um 420 lestum um þessar mundir.
Afli þessara togara hefur fengizt
við A-Grænland. Maí er á þeim
slóðum og er síðast fréttist var
hann kominn með um 200 tönn af
þorski og mun hann eiga að sigla
með það og fara í slipp úti. Þor
kell máni var í dag fimmtudag
ails 23/4 24/4 25. apríl 26. apríl 27. apríl alls
Ásberg 106.990 5.470 17,220 26.040 155.720
Ásbjörn 398.000 28.680 626.680
Ásgeir 537.040 17,640 14.210 618.890
Ásþór 641,640 16,330 31.900 689.870
Hafþór 269.680 10.830 4.900 11.590 297.000
Helga 510.410 18,150 20.000 548.560
Helga II. 383,070 22.170 21.660 426.900
Húni II. 470,130 47.350 517.480
Ól. Bekk 314.300 314.300
Sig. Bj. 23.910 9.670 33.580
Aðalbj. 88,410 1.770 1.160 91.340
Ásbjörg 126,470 1,420 1.880 129.770
Blakkur 299,190 23.170 322.360
Fróði 160.080 1.600 3.880 165.560
Geir 143,010 0,220 6.070 149.300
Hrönn II. 60,280 60.280
ísl. II. 129,170 0,890 2.030 132.090
Kári Söl. 222.160 17.290 239.450
Sjóli 217.990 0.590 218.580.
Smári 98.650 0,460 3.220 102.330
Sædís 354.590 7.140 21.950 3.170 ' 386.850
Valur . 143.080 0,400 4.320 147.800
Víkingur 208,260 7.040 12.090 227.390
Þór. Ól. 127.420 5.890 6.620 139.930
Eins og sjá má er vertíðin
ekki gæfuleg hjá allflestum bát
unum. Ásbjörninn hefur sigið tölu
vert á og er Valdi á Ásþór kom
inn í hættu með að verða aflahæst
ur. Ármann á Helgu II. hefur fisk
loðnunótina á mánudag og ætlaði
austur að Langanesi á loðnuveið
ar en ekki hef ég frétt af árangri.
TOGARARNIR: Afli togaranna
hefur verið með bezta móti und-
anfarið og má segja að þeir haldi
kominn með um 120 lestir, mest'
þorsk. Sýnilegt er að stærri skip
in bera af við veiðar á fjarlæg
um miðum og er því nauðsynlegt
fyrir okkur að drífa okkur í því
að endurnýja togaraflotann. Þó
hægt sé að tala um bókfært tap
á togurunum þá er ég hræddur
um að tapið á verkunarstöðvun
um og að ekki sé talað um frysti
húsin yrði öllu meira ef þessi
þjóðþrifatæki, sem togararnir eru,
'eiga eftir að deyja út. Sölurnar
í Englandi hafa verið með mikl
um ágætum. Egill Skallagrímss
seldi í Hull á mánudaginn 216 tonn
fyrir 19.,288 pund. Harðbakur seldi
207 tonn fyrir 17,639 pund, Jón
Þorláksson seldi á miðvikud. 106
tonn fyrir 10.131 pund og I. Arn_
ars. seldi á fimmtud. 150,5 t. fyr-
j ir 13.912 pund. Úranus komst ekki
að eins og ætlað var og bíður
með um 145 tonn. í næstu viku
selja með vissu þeir Kaldbakur
og Surprise og miklar líkur einn
ig á að þeir Sléttbakur og Maí
selji afla sinn ytra.
Iíallveig Fróðadóttir hefur leg
ið hér við bryggjurnar í um eitt
ár. Er hún búin að vera í klössun
og einnig þurfti að senda gírinn
Frh.
10. síðu.
MINNING:
Karl V. Kjartansson
í DAG verður gerð frá Kefla
víkurkirkju útför Karls Vil-
hjálms Kjartanssonar. En hann
lézt í Sjúkrahúsinu í Keflavik
21. þ.m. eftir erfiðan sjúkdóm,
sem hann bar með frábærri hug-
arró og karlmennsku.
Karl var fæddur í Stykkis-
hólmi 7. apríl 1915 og var því
iiýlega orðinn 52 ára að aldri. í
Stykkistoólmi bjuggu þá foreldr-
ar hans, Kjartan Ólason nú skrif
stofumaður hjá Rafveitu Kefla-
víkur og kona hans Sigríður Jóns
dóttir.
Með foreldrum sínum flutt-
ist Karl til Keflavíkur 1928 og
þar átti hann heima síðan.
Karl var elztur af 8 systkinum.
Eitt þeirra, Ra'gnar, dó í bernsku
en 6 eru nú á lífi: Sigtryggur,
Ólafur, María, Jón Ragnar Ás-
berg og Lúðvík, öll í Keflavík, og
ívana, búsett í Bandaríkjunum.
Karl byrjaði snemrna að vinna
öll algeng verkamannastörf liér
í Keflavík, og þá fyrst og fremst
við sjóinn. Hann var landmaður
við vélbátana hér og sýndi þar
sem annars staðar sérstakan dugn
að og trúmennsku í störfum. Um
15 ár vann hann á Keflavíkur-
flugvelli. Var hann þar flokks-
stjóri og vann sér traust yfir-
manna sinna fyrir skyldurækni
og reiglusemi í störfum.
Fyrr á árum vann hann oft
við síldarsöltun á Siglufirði. Þar
kynntist hann eftirlifandi konu
sinni Theódóru Ásu Þórarins-
dóttur frá Lundi í Vestmanna-
eyjum. Þau giftust 4. júlí 1949
og stofnuðu heimili, snoturt og
aðlaðandi í íbúð sem Karl hafði
byggt á efri hæð toússins, Klapp-
Karl V. Kjartansson
arstíg 8 í Keflavík og þar áttu
þau heima siðan.
Þau áttu einn son, Kristján
Þór. Hann er fæddur 29. apríl
1957 og er því 10 'ára í dag.
Áreiðanlega verður þessi dagur
Kristjáni litla ávallt minnisstæð-
ur, er hann nú á tíu ára af-
mælisdeginum kveður hinztu
kveðju ástkæran föður, er var
honum svo ástríkur Ojg umhyggju
samur.
Var sambúð þeirra hjóna rrieö
ágætum og þau afar samhent úm
toeill heimilisins, enda var Karl
umhyggjusamur heimilisfaðiri,
sem allt vildi í sölur leggja fytir
sína fjölskyldu.
Hér er kvaddur verkamaður
starfsfús og starfsglaður, sem var
ávallt stétt sinni til sóma með
skyldurækni sinni og reglusepii.
Enda var hann alltaf virtur og
Framhald á 10. síðu.
ALÞÝÐUBLAÐiÐ 5
29. apríl 1967