Alþýðublaðið - 23.05.1967, Qupperneq 1
ÞriSjudagur 23. maí 1967 - 48. árg. 120. tbl. •- VERð !££
Mikið tjón
í eldsvoða
Hver er þróunin í
sjávarútveginum?
EIGNIR sjávarútvcgs og fiskiðnaðar I skipum, verksmiðj-
um_ vélum og öðrum fjármuuum hafa aukizt um rúmlega
50% frá árslokum 1958 til ársloka 1966. Miðað við verðlag árs-
ins 1960 námu þessar eignir 1958 2600 milljónum, en 1966
4045 milljónum.
í árslok 1958 voru fiskiskip yfir 100 brúttólestir 49 að tölu,
samtals 7561 brúttólest, en 1. desember 1966 voru þau 181,
samtais 40470 rúmlestir brúttó. Aukningin nemur því yfir
400 %. Afkastageta sildarverksmiðja á Austurlandi var í
árslok 1958 13820 mál á sólarhring. en í árslok 1965 36350
mál. Afkastageta síldarverksmiðja við Suðurland og Vesturland
var í árslok 1958 10900 mál á sólarhring, en var í árslok 1965
orðin 38500 mál. I
Rvík, SJÓ.
Milúð tjón varð í eldsvoða í
gærmorgun að Skúlagötu, en þar
brunnu tveir braggar og eru þeir
gjörónýtir.
Slökkviliðið fékk tilkynningu
kl. 9.40 um að eldur væri laus í
tveimur bröggum að Skúlagötu 40.
Var annar bragginn alelda, er að
var komið, en hann er í eigu Fiat-
Þessa mynd af eldinum tók
Stefán Nikulásson í gær/
^ umboðsins, en í þeim bragga eru
| bifreiðir ryðvarðar með svonefnd
; ri Tectyl-ryðvörn. Við hliðina á
honum er bragígi, seni er eig*.
Tryggva Ólafssonar, en hann var
notaður sem geymsla og verfe-
stæði fyrir Hjólbarðaverkstæðið
Barðann. Eldurinn var slökktur á
einni klst., en braggarnir brUnnu
þó mjög mikið og eru algerlega
ónýtir.
Um tíma var óttast, að eldurina
Framhald á 14. síð«.
Sjötíu bíða bana 1
eldsvoða í Brussel
Briissel 22. maí (NTB-AFP).
Gífurlegur eldsvoði varð í Brússel í dag. Eldur kom upp í stóru
vöruhúsi og læsti eldurinn sig fljótlega í nálæg hús án þess að
slökkviliðið fengi við nokkuö ráðið og óttast er að um 70 manns að
minnsta kosti hafi farizt.
Seinna breiddist eldurinn svo
enn út í fleiri hús í miðhluta
Brussel, þar sem eru bæði verzl-
anir og íbúðir, og greip mikil
skelfing um sig í borginni.
Allt slökkvilið borgarinnar var
kvatt út og í gærkvöldí var enn
barizt við að ráða niðurlögum elds
ins. Margir slökkviliðsmenn munu
hafa farizt f eldinum og meðan
þeir reyndu að ráða niðurlögum
eldsins í vöruhúsinu hrundi önn-
ur hlíð byggingarinnar á þá og
brunabifreiðar. Flestir sem fór-
ust voru starfsfólk vöruhússins og
viðskiptavinir, sem ekki komust
út, en stukku út um glugga í
logandi klæðum. Fundizt hafa 22
látnir, en fimmtíu er enn sakn-
að af þeim rúmlega þúsund
manns, sem inni í vöruhúsinu
voru, um 100 manns eru særðir.
Eldurinn breiddist svo fljótt út,
að fimm nálæg hús í hverfinu
urðu eldtungunum að bráð.
Seint í gærkvöldi, er álitið var,
að tekizt hefði að komast fyrir
eldinn, var tilkynnt um, að eld-
ur hefði blossað upp á ný og nú
væri stór benzíngeymir í hættu.
Fjölsóttur
fundurá
Iðugardag
Alþýðuflokksfélag Reykjavíkur
hélt glæsilegan hádegisverðarfund
í Iðnó sl. Iaugárdag. Húsfyllir
var og mikill sóknarhugur hjá
fundarmönnum. Sýndi fundurin*
það vel, að Alþýðuflokksfólk I
Reykjavík er staðráðið í því að
tryggja það að Eggért G. Þor-
steinsson verði áfram kjördæma-
kosinn þingmaður Reykjavíkur.
Björgvin Guðmundsson, formað
ur Alþýðufl.fél. setti fundinn
og bauð viðstadda velkomna.
Kvað hann þetta fyrsta hádegis-
verðarfund Alþýðuflokksins en
aðsóknina að honum sýna að rétt
væri að halda fleiri slíka fundi.
— Ræðumenn á fundinum vom
Gylfi Þ. Gíslason, ráðherra, efsti
maður A-listans í Reykjavík og
Sigurður Ingimundarson, alþing-
ismaður, 3. maður A-listans í
Framhald á 14. síðu.
Frá hádegisverðarftmdinum.
Gylfi Þ. Gíslason að halda
ræðu. (Ljósm.: Bjarnleifur).