Alþýðublaðið - 23.05.1967, Side 3
U Thant fer
til Kairó
JERUSALEM, 22. maí
(NTB-Reuter).
Levi Eskhol, forsætisráðherra
ísraels, hvatti til þess á þingi,
að Egyptar og ísraelsmenn fækk
uðu í herliðum sínum á landamær
imurn. Jafnframt hélt hann því
fram, að með því að fallast á
brottflutning gæzlusveita SÞ frá
Dráttarvéla-
námskeið
í sambandi við búvinnunám-
skeið Æskulýðsráðs Reykjavíkur
og Búnaðarfélags íslands, " verður
haldið stutt námskeið um með
ferð dráttarvéla í Slysavarnahús-
inu, Grandagarði, fimmtudaginn
25. maí kl. 17— 18.30, fyrir ald-
ursflokkana 14 — 16 ára.
Einnig verður kennd skyndi-
lijálp og lífgun með blástursað-
ferð.
Innflytjendur dráttarvéla munu
lána vélar til sýnikennslu og fá
unglingarnir að reyna þær.
Væntanlegir þátttakendur vin-
samlegast tilkynni þátttöku í
síma Æskuiýðsráðs, 15937, eða í
síma 20360 og 20135 í Slysavarna-
húsinu fyrir 24. maí n.k.
New Orleans, 22. maí (NTB-Reu
ter).
Ríkissaksóknarinn í New Orle-
ans, Jim Garrison, hefur sakað
,,vissa menn, sem vildu endur-
heimta Kúbu“, um morðið á
Kennedy forseta. Hann 6agði í
sjónvarpsviðtali í gærkvöldi að
bandaríska Ieyniþjónustan CIA
vissi hvaða menn hefðu verið við-
riðnir samsærið um að myrða for
setann o? kvaðst mundu halda á-
fram tilraunum sínum til að
sanna að um samsæri hefði verið
að ræða.
Garrison hélt því fram að for-
setamorðinginn, Lee Harvey Os-
wald, hefði verið leiguþý CIA,
andstæðingur kommúnista og
samstarfsmaður kúbanskra útlaga
er gátu ekki- gleymt liinni mis-
heppnuðu innrásartilraun í Svína
flóa 1961. Garrison sakaði CIA
um að torvelda rannsókn sína í
málinu. Talsmaður CIA hefur neit
að að l'áta hafa nokkuð eftir sér
um ásakanir Garrisons.
landamærunum. hefði U Thant,
framkvæmdastjóri SÞ, brotið í
bága við reglur, er fyrirrennari < [
hans, Dag Hammarskjöld, setti
Eskhol ssagði, að Hammarskjöld i
hefði skýrt ísraelsstjórn svo frá f
1957, að ráðgjafanefnd SÞ-gæzlu \
liðsins mundi fjalla um allar til- i
lögur um brottflutning gæzlu-
sveitanna en þessi nefnd mundi f
síðan ákveða hvort áskorun um
brottflutning sveitanna skyldi lögð
fyrir Allsherjarþing SÞ.
Eskhol hvatti til þess. að bönn
uð yrðu skemmdarverk og hryðju
verkastarfsemi gegn löndum, sem
aðild eiga að SÞ. Hann sagði, að
hermönnum Egypta við landamær
in í Sinaiauðninni hefði verið
fjölgað úr 3000 í 80000 síðustu
daga. Orsök spennunnar væru
auknar árásaraðgerðir Araba gegn
ísraelsmönnum, sem engu að síð
ur hefðu sýnt mikla stillingu,
en tekið skýrt fram þegar
skemmdarverk Sýrlendinga færð- \
ust í aukana, að þau yrðu ekki
látin viðgangast. Löngu áður en
liðssafnaður Egypta hófst hefðu
SÞ tilkynnt Egyptum, að fréttir
um liðssafnað og árásarundirbún-
ing ísraelsmanna væru ósannar.
□ U Thant til Kairó.
U Thant sagði blaðamönnum
skömmu áður en hann lagði af
stað til Kairó í kvöld, að hann ’
mundi ekki heimsækja önnur
Arabaríki eða ísrael í ferðinni.
Framhald á 14. síðu.
Hverfisstjórar
í Melaskólaumdæmí.
Mætið í kvöld, þriðju-
dag kl. 20,30 að Suð-
urlandsbraut 12.
UMDÆMISSTJ ÓRI.
sofa, Sofa,
Um leið og hundruð skólaungl-
inga taka einkunnabækur og
hlaupa út i vorið setjast aðrir
við prófborð og búa sig undir
ennþá meiri lestur. í gær-
kvöldi fóru tvær ungar stúlk-
ur flugleiðis norður á Akur-
eyri til þess að gangast undir
stúdenspróf þar. Við hittum
þær að máli á Reykjalundi i
gær. Þær voru þá önnum kafn
ar við að setja niður í töskur
bæði fatnað og bækur og
skeyttu því engu, þótt sólin
skini úti og vermdi þá, sem
sátu í geisla hennar.
Þessar ungu stúlkur heita
Elín Þorsteinsdóttir Snædal
og Þuríður Baxter. Elín er tvít
ug að aldri, en hefur verið
veik frá barnæsku og verður
nú að vera í hjólastól, en hún
lætur þó engan bilbug á sér
finna. Foreldrar hennar búa á
Skjöldólfsstöðum í Jökuldal,
en Elín segist nú lítið vera
heima nema um hásumarið.
Hún fór í Menntaskólann á
Akureyri, bjó á heimavistinni
þar, og kunni prýðilega við
ig. í haust þurfti hún að gang-
ast' undir aðgerð og hefur síð-
an dvalizt á Reykjalundi. En
hún hélt náminu áfram og um
áramótin kom vinkona hennar
Þuríður og settist að hjá henni.
Þær fengu lánaðan svefnstól
handa Þuríði og svo fóru þær
að lesa.
Þuríður er Reykvíkingur.
Fór fyrst í Menntaskólann í
Reykjavík, en eftir eins vetrar
dvöl þar, hætti hún námi. Eft-
ir tvö ár komst hún svo að
raun um, að hana langaði til
að halda áfram og fór þá norð-
ur á Akureyri í menntaskól-
ann þar. Ilún segist hafa ver-
ið haldinn miklum námsleiða,
þegar hún hætti í þriðja bekk,
— en eftir að hún byrjaði aft-
ur, hafi sér fundizt mjög gam-
an að læra.
Þeim vinkonunum kom sam-
an um, að latínan væri sér-
staklega skemmtileg. Það væri
eins og að ráða krossgátu að
þreifa sig fram úr latínuköfl-
unum. Þuríður sagði svo, að
sér þætti gaman að frönsku,
— en Elín nefndi íslenzku.
Þær eru ekki alveg búnar
að komast yfir allt námsefn-
ið, en vonast til að Ijúka því
á milli prófa. Það er ágætt
næði á Reykjalundi og lestur-
inn hefur gengið vel. „Við töl-
uðum alveg út', þegar ég kom
um áramótin“, sagði Þuríður,
,,og síðan liefur þetta gengið
ágætlega". — Þær segja, að
það geti vel verið að þær haldi
áfram að lesa saman í fram-
tíðinni, ef þær fara þá ekki
sín í hvora deildina í háskól-
anum. En báðar eru þær enn-
þá óákveðnar, hvað þær ætla
að læra að loknu stúdents-
prófi.
Það fyrsta, sem þær segjast
ætla að gera, þegar prófunum
er lokið, — er að sofa, SOFA
......í marga daga samfleytt.
Myndin hér til hliðar var
tekin við opnun vörusýning-
ar fimm Austur-Evrópulanda
í Laugardalshöllinni á laug
ardag. Var mikið fjölmenni
við opnunina og margar ræð
ur haldnar. Að lokinni opnun
athöfninni var sýningin opn
uð almenningi og hefur að-
sókn að henni verið mjög
góð yfir helgina.
23. maí 1967
ALÞYÐUBLAÐIÐ 3