Alþýðublaðið - 23.05.1967, Síða 16
®Msm
Reykjavíkurvaldið
Það er ekki að því að spyrja að
allt þarí að vera mest og merki-
legast í henni Reykjavík. Þegar
Reykjavíkurvaldið lætur á sér
kræla, þá er nú ekki verið að
Imgsa um jafnvægi í byggð lands-
ins eða hvað þaö nú heitir, þetta
sem hljómar svo fallega í munni,
en enginn veit hvað merkir.
Reykjavíkurvaldinu dugir til dæm
is ekki að eiga menn í framboði
í öllum kjördæmum landsins, held
xir verður það líka að hafa fleiri
lista í Reykjavík en annars stað-
ar. Víðast hvar þykir mönnum
fullnóg að hafa fjóra lista í kjöri,
en Reykvíkingum dugir ekki færri
en sex. Nágrannabyggðirnar, sem
Reykjavík líka, þótt þær auðvit-
að séu það ekki, reyna auðvitað
iað keppa við stóra bróður og eru
með fimm lista, enda eru þær
svæði eða STÓR-REYKJAVÍK,
flestar á svokölluðu Reykjavíkur-
stundum þykjast vera hálfgildings
sem sumir kalla. Sú nafngift er
að vísu mikill misskilningur frá
sjónarmiði Reykjavíkurvaldsins,
því að auðvitað er engin þörf á
að Kópavogi sé bætt við Reykja-
vík til þess að hún sé stór. Það
er meira að segja mikið álitsmál,
fivort Ihún sé ekki því stærri, því
minni hluti sem af henni er tek-
inn. Vesturbærinn einn út af fyrir
sig er þannig raunverulega miklu
stærri heldur en þegar Austur-
bænum og Kleppsholtinu er bætt
við, svo að ekki sé nú minnzt á'
Árbæjarhverfið, — en þetta er
kapítuli út af fyrir sig, sem hér
skal ekki rekja lengra.
Nú er það segin saga, að hver
sú nýjung sem fram kemur í höf-
uðborginni hlýtur með tímanum
að breiðast út til hinna dreiíðu
byggða, og þess vegna má alveg
bóka það að áður en mörg ár
verða liðin, verði listarnir líka
orðnir fimm eða sex í hverjum
kosningum úti á landi, en auð-
vitað má þá líka gera ráð fyrir
því að Reykvíkingum dugi þá ekk
ert minna en tíu eða tólf. Við
þessu er að vísu ekkert að segja,
baksíðan er jafnvel á því að þelta
sé í alla staði hin ágætasta þró-
un. Lokamarkið hlýtur nefnilega
að vera að hver maður sé stjórn-
málaflokkur út af fyrir sig, og
þróun síðustu mánaða virðist' ein-
dregið benda til þess, að því
marki verði innan tíðar náð. Nú
eru kjósendur í landinu víst farn
ir að nálgast hundrað þúsund, og
þá er alveg sjálfsagður hlutur að
flokkarnir verði jafnmargir. Þess-
ari flokkafjölgun fylgir að vísu
Sjúkdómsgreiningin
Ég vaknaði í morgun með hroll og höfuðverk
og hálft' um eins og festur upp á þráð,
og ég var eins og vankuð og vingluð rollukind
og vissi ekki nokkur sköpuð ráð.
Ég dreif mig því í skyndi að finna doktorinn minn
með sín dýrlegu instrúment og spritt,
og útskýrði sem ljósast hvaða Ijóður væri á,
hversu laklegt væri heilsufar mitt.
Og doktorinn var hægðin sjálf og lieimtaði mig úr,
ég hóstaði og andaði djúpt
og rak út úr mér tunguna og sagði a-a-a ....
en ekki féll mér verknaðurinn ljúft.
Svo lagði karlinn frá sér instrúmentin öll
og íhugandi strauk sinn bera koll:
Þessi kvillaskratti er algengur nokkuð nú í vor
og við nefnum hann kosningahroll.
ýmislegt annað, sem sumum kann
að þykja horfa til nýlunda, t.d.
gefur auga leið að menn verða
að fá leyfi til þess að vera í fleir-
um en einum flokki samtímis. Það
er líka alveg augljóst má'l, að þeir
hljóta að öðru jöfnu að vera
beztu flokksmennirnir, sem hafa
í flestum flokkum verið og náð
sér þannig í dýrmæta reynslu.
Raunverulega er það spurning,
hvort ekki væri rétt að þeim væri
bannað að ganga í stjórnmála-
flokka, sem ekki væru fyrir í ein-
hverjum öðrum stjórnmálaflokki.
Yrðu flokkarnir allir, fjórir,
fimm eða sex eða hundrað þús-
und eða hve margir þeir kunna
að verða, sammála um að gera
þetta að höfuðatriði flokkslaga
sinna, þá er enginn efi á' því, að
stjórnmálalíf í landinu tæki allt'
miklum stakkaskiptum. Og þau
stakkaskipti yrðu áreiðanlega til
bóta. Því er nefnilega stundum
svo farið með hluti að þeir geta
ekki breytzt nema á einn veg, og
út af fyrir sig má það vera mönn
um nokkur huggun.
— Þú trúir þó ekki á óskabrunna,
Karl. ..
•— Sögðust þér þjást af stelsýki?
— Bankasendillinn er lengi á leiðinni... bara að ckkcrt hafi nú
komið fyrir hann.
Ég lék heilmikið hjá Leik-
félagi Hafnarfjarðar og í einu
leikriti hjá Leikfélagi
Reykjavíkur fyrir mörgum ár
um. En svo lagðist ég í barn
eignir....
Þjóðviljinn
Það er ekki heiðarlegt a9
svíkja undan skatti Og þó
gera margir heiðarlega til-
raun til þess....
Sjónvarpið er alltaf að koma
með eitthvað nýtt. Bráðum
verður hægt að sjá þar 39
ára gamlar litmyndir....
Mér skilst að tæknin hafi
gert heiminn minni. Nú
kemst hann allur fyrir á ör
lítilli Ijósmyndafihnu .w