Alþýðublaðið - 28.05.1967, Side 13

Alþýðublaðið - 28.05.1967, Side 13
Sunnudags AlþýðublaSið -- 28. maí 1967 13 SSml 41986 Fransmaður í London. (Allez France). Sprenghlægiles og snilldar vel eerð, ný, frönsk-ensk caraan- mynd í litum. Robert Dhéry Diana Dors. Sýnd kl. 5, 7 og 9. Bókmenntakynning kl. 2 JUDITH Frábær ný amerísk litmynd. Sopliia Loren ÍSLENZKUR TEXTI. Sýnd kl. 9. Líf í iuskunum Sýnd kl. 5 og 7. Hetja dagsins Barnasýning kl. 3. Allt til raflagna Rafmagnsvörur Heimilistæki. Útvarps- og sjónvarps- tæki. RAFMAGNSVÖRU- BÚÐIN S.F. Suðurlandsbraut 12 Sími 81670 BÆNDUR Nú er rétti tíminn til að skrá vélar og tæki sem á að selja. TRAKTORA MÚGAVÉLAR BLÁSARA SLÁTTUVÉLAR ÁMOKSTURSTÆKI Við seljum tækin. Bíla- og Búvélasalan v/Miklatorg, sími 23136. BÍLAMÁLUN - RÉTTINGAR BREMSUVEÐGERÐIR O. FL. BIFREIÐAVERKSTÆÐEB VESTURÁS HF. Súðavogi 30 — Sími 35740, yflinnUiqaripföfcl sJ.és. TÓNLIST OG VEIÐISKAPUR NÚ ERU raddir vorsins farnar að hljóma og hinir mildari tónar náttúrunnar láta blítt í eyrum okkar. Grammófónninn er nú ekki knúinn eins hart og á skammdegiskvöldum, þegar vindurinn hvein og regnið og hriðin buldi. Þá voru menn fegnir að gleyma ótíð og sút, stríði og amstri við vorsónötur og pastorala, eða gengu á vit við örlög meist- aranna. Oftast er það svo, að þeir skapa- sín mestu og dýpstu verk, þegar örlaga- stundin rennur upp. Þeir verða að nota tækifærið meðan tími vinnst til, koma á' blað því sem þeim finnst mestu varða og búnir að ganga með í huganum langan tíma. Þeir mega engan tíma missa, á morgun getur það verið of seint. Margir liristn af sér drungann og léttu sér upp í tónleikasölunum, þar sem er- lendir og innlendir listamenn glöddu eyru vor og hug. Nokkuð er víst, að flest eigum við ein- hverjar tónminningar, minningar frá því, sem við höfum lesið um líf tónskáldanna og ýmsa viðburði úr tónlistarlífinu, alvar- lega eða broslega. Þetta eigum við eftir að melta og rifja upp í sumar meðan við hvílum olckur frá beinni hlustun. Svo verð- um við orðin mátulega soltin í haust, er við tökum til við að hlusta á ný. Með aukinni veðurblíðu verður okkur æ oftar reikað út í góðviðrið, en einhvern veginn er það svo, að við verðum að hafa einhvern tiigang með útiverunni. Náttúru- skoðun, fjallapríl, blómasöfnun eru virð- ingarverð áhugamál, en þau binda öll hug- ann við viðfangsefnið og auðvitað er það gott og blessað. En ekkert veit ég eins hvíl- andi, en þó „andríkt,” þ.e.a.s. hvergi er betra að hugsa, en að vera við vatn eða tjörn með stöng í hendi. Þú hefur veiðina að ástæðu til að vera úti í náttúrunni, en hún er ekki það mikilvæg, að hún hleypi engri annarri hugsun að, og einmitt þá sækja að þér þær hugsanir, sem þú hafðir ekki tíma til að hugsa til enda í vetur, sem leið. Þá opnast fyrir þér það vandamál, sem þú gazt ekki leyst, þér birtast sýnir í hugskoti þínu, stef, sem þú náðir ekki alveg saman, hljómar í eyrum þér, þú ert að vinna úr því, sem þú viðaðir að þér í vetur, og í haust hefur þú auðgazt af verð- mæti, sem ekki verða frá þér tekin meðan þú hefur ráð og rænu. Jafnframt skynjar þú náttúruna allt í kring um þig og þú rennur raunverulega saman við hana. Það gerir ekkert til, þótt ekki bíti á hjá þér, ef til vill hefur þú gleymt að beita! Ef hugur þinn verður hins vegar of mett aður getur þú einbeitt þér við veiðarnar. Ýmsir munu segja, að tónlistaráhugi og veiðiskapur fari ekki saman, göfgi tónlist- arinnar ‘leyfi ekki að svipta lífi nokkrá skepnu, og nokkuð er víst, að mér hefur ekki tekizt að finna einn einasta mikils háttar tónlistarmann með veiðidellu, en það er nú ekki að marka. Schubert fyllist • meira að segja viður- styggð yfir aðförum veiðimannsins. En ér þetta ekki aðeins yfirdrepsskapur. Veiði- mennska og tónlist virðast eiga rætur sín- ar að rekja til frumstæðra hvata, sem að vísu hafa fágazt, tónlistin er óraunveru- legri, huglæg, en veiðimennskan tengd hinni ófrávíkjanlegu lífsbaráttu og þess vegna miskunnarlausari. Þegar við höfum fengið nóg af hinni gljáfægðu siðmenningu, gefum við villl- manninum örlítið lausan tauminn, og hvað er þá saklausara en veiða sér í soðið? Síðustu dagana er víst fremur dræm sala í sígildum hljómplötum og orsökin sjálfsagt vorið. Væri ekki einsýnt að hljómplötusalar hefðu tvískiptar verzlanir — leggðu aðal- áherzluna á plötusölu á vetrum, en sneru sér aðallega að veiðiútbúnaði á sumrum — ekkert mundi skapa betri tengsl miíli sölumanna og viðskiptavina, né örva söl- una meira á hvoru tveggja vörunni? Að svo mæltu óska ég öllu tónlistaráhuga- fólki hóflegrar veiði í sumar. — G. P. Viðtal við Eggert Frh. af 1. sfðu. glæsilegra fiskiskipa bætzt í flota okkar. Væru skip þessi búin hin- um fullkomnustu tækjum. Án þess- ara nýju skipa hefði ekki tekizt að afla nema lítils hluta þess sjáv- arafla, sem borið hefði uppi efna- hagslífið á undanförnum árum. Ráðherrann sagði, að um mán- aðamótin júní—júlí mundi koma hingað til lands nýtt glæsilegt síldarleitarskip, Árni Friðriksson. Væru miklar vonir bundnar við það skip. Jafnframt hefði verið samið um smíði á véla- og tækja- útbúnaði nýs hafrannsóknarskips, en smíðin á boli skipsins yrði boðin út í næsta mánuði, en það á að heita Bjarni Sæmundsson. Þá hefði nefnd verið skipuð til þess að athuga hvaða skuttogarar hentuðu íslendingum bezt, en fyrirsjáanlegt væri, að íslending- ar yrðu að ráðast í kaup skuttog- ara. Eggert G. Þorsteinsson sagði, að sjávarútvegurinn hefði verið aðaltekjulind þjóðarinnar undan- farin ár og svo yrði áreiðanlega enn um langa framtíð. Markaðs- verð á útflutningsvörum okkar hefði verið hagstætt þar til á miðju sl. ári, er skyndilega hefði syrt í álinn með þeim afleiðing- um, er skjótt hefðu sagt' til sín í öllum starfsgreinum þjóðfélags- ins. Kvaðst Eggert vilja segja sjó- mönnum og útvegsmönnum það til verðugs hróss, að þeir hefðu tek- ið afleiðingum verkfallsins karl- mannlega. Eggert kvað það bjargfasta skoðun sína, að sjávarútvegurinn yrði enn um langa framtíð aðal- atvinnuvegur þjóðarinnar, enda þótt unnið yrði að því að byggja Mætti ekkert spara til uppbygg- ingar sjávarútvegsins. Að lokum sagði Eggert, að reynsla hans af stjórnarsam- starfinu þau tæp 2 ár, er hann hefði verið í stjórninni, hefði verið góð. Samstarfið hefði ver- ið heilt án allra undirmála. Það yrði ráðið að kosningum loknum. hvort stjórnarflokkarnir héldu sam starfinu áfram. Vígstaða Alþýðu- flokksins í samningum eftir kosn- ingar færi eftir úrslitum kosn- inganna. Því meira fylgi, sem Alþýðuflokkurinn hlyti, þvi meiri á'hrif mundi hann hafa í hugsan- legu stjórnarsamstarfi eftir kosn- ingar. Allir velunnarar Alþýðu- flokksins, allir þeir, er kynnu að meta hálfrar aldar starf flokksins yrðu því að vinna að því að gera hlut flokksins sem stærstan í komandi kosningum. T rúlof unarhrlngar Sendum gegn póstkröfa. Fljöt afgreiðsla. Guðm. Þorsteinsson KuUsmlður Bankastrætl 12. MELAVÖLLUR! Á morgun, mánudag kl. 20,30 leika ÞRÓTTUR - BREIÐABLIK Dómari: Guðmundur Haraldsson. Mótanefnd. ÚTBOÐ Tilboð óskast í smíði á innréttingum í sjúkradeildir borgarsjúkrahússins í Fossvogi. Útboðsgögn eru afhent í skrifstofu vorrl, gegn 3.000,— króna skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað miðvikudaginn 28. júní kl. 11.00. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR VONARSTRÆTl 8 - SÍMI 18 800 Kópavogur Börn óskast til að bera Alþýðublaðið til áskrif enda við Nýbýlaveg. Upplýsingar í síma 40753.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.