Alþýðublaðið - 31.05.1967, Side 4

Alþýðublaðið - 31.05.1967, Side 4
Ritstjóri: Bemedikt Gröndal. Slmar 14900—14903. — Auglýsingasfmi: 14906. — Aðsetur: Alþýöuhúsiö við Hverfisgötu, Rvík. — Prentsmiðja Alþýðuhlaðsins. Sími 14905. — Áskriftargjald kr. 105.00. — í lausa- sölu kr. 7.00 eintakið. — Útgefandl: Aiþýðuflokkurinn. Sjónvarp og stjórnmál í GÆRKVÖLDI og fyrrákvöld áttu sér stað fyrstu kosningaumræður í íslenzka sjónvarpinu. Má segja, að hér hafi verið um tímamót að ræða. I>ótt íslenzka sjónvarpið hafi ekki verið undirbúið nema á um það 'bil tveim árum og hafi ekki starfað nema í níu mán- uði, er það þegar orðið ein af mikilvægustu menn- ingarstofnunum íslenzku þjóðarinnar. Þ'að hefur far- ið betur af stað en flestir þorðu að vona. Og í gær- kvöldi og fyrrakvöld hélt það inn á nýja braut, sem áreiðanlega á eftir að hafa mikla þýðingu fyrir fram- þróun íslenzkra stjórnmála. Öllum, sem því hafa 'kynnzt annars staðar, ber saman um, að sjónvarp hafi veruleg áhrif á skoðanamyndun almennings. Þess 'vegna skiptir miklu máli, hvernig af stað er farið, bæði af hálfu sjónvarpsins og af hálfu stjórnmála- flokkanna. Utvarpsráð hefur markað mjög skynsamlega stefnu varðandi notkun sjónvarpsins í kosningabaráttunni, Og sjónvarpið sjálft leysti sitt verk prýðilega af hendi. Flokkarnir komu einnig vel fram og í raun og veru betur en þeir hafa gert í útvarpsumræðum um langt skeið. Virðist svo sem sjónvarpið hafi haft holl áhrif á flokkana varðandi málflutning, og er það sann- arlega vel. Útvarpið, H-listinn og l-listinn ÞAÐ var tvímælalaust rétt afstaða hjá útvarpsráðí að veita fulltrúum H-listans kost á að kynna stefnu sína í sjónvarpinu og hljóðvarpinu og taka þátt í um- ræðufundi. Sumir hafa hins vegar furðað sig á því, að fulltrúar I-listans skuli ekki hafa átt kost á því. Um það er að segja, að engin ósk mun hafa komið fram frá fulltrúum I-listans um að fá að koma fram sem sjálfstæður flokkur, enda er það kunnara en frá 'þurfi að segja, að I-listinn lítur ekki á sig sem flokk og framboðið ekki sem utan flokka, heldur sem Al- þýðubandalagsframboð. Og væntanlega dettur engum í hug, að Alþýðubandalagið geti fengið tvöfaldan tíma í sjónvarpi og hljóðvarpi. Fulltrúi Alþýðubandalags- ins í útvarpsráði, Björn Th. Björnsson, hefur auðvitað gert það af skömmum sínum að bera fram tillögu um, 'áð I-listinn fengi sérstakan ræðutíma. Með því hefur hánn viljað undirstrika þá skoðun Alþýðubandalags- insi að I-listinn sé sérstakur flokkur, Alþýðubandalag- inu óviðkomandi. En gegn mótmælum I-listamann- an.ra sjálfra varðandi það, að þeir væru flokkur, vildi útvarpsráð að sjálfsögðu ekki fallast á það. Hefur út- varpsráð því tekið rétta stefnu í þessu máli. Fasteignir FastelgnasaEan Hátúni 4 A, NóatúnshÚstS Simi 21870, Úrval fastelgna viB RÍira haefi. Hilmar Valdimarsson, fasteignaviðsklpti Jón Bjarnason hsestaréttarlögmaður. Höfum jafnan til sölu fiskiskip af flestum stærðum. Upplýsingar í síma 18105 og á skrifstofunni, Hafnarstræti 19. FASTEIGNAVIÐSKIPTI I BJÖRGVIN JÓNSSON AUGLÝSIÐ í Alþýðublaðinu Hverfisgötu 18. Símar 14150 og 14160 Kvöldsími 40960. íbúðir í úrvali Fasteignaviðskiptt Gísli G. ísleifsson hæstaréttarlögmaður. Jón L. Bjarnason Til sölu FAST E I G NAVAL Skólavörðustíg 3A. — II. hæð, Símar 22911 og 19255. HÖFUM ávallt til sölu úrval af 2ja-6 herb, íbúðum, einbýllshús- um og raðhúsum, fullgerðum og í smíðum í Reykjavík, Kópa- vogi, Seltjarnarnesi, Garðahreppl og víðar. Vinsamlegast hafið sam band við skrifstofu vora, ef þér ætlið að kaupa eða selja fasteign lr_ JÓN ARASON hdL Sölumaður fasteigna: Torfi Ásgeirsson Kvöldsími 20037. Höfum ávallt til sölu úr- val íbúða af flestum stærðum og gerðum, ýmist fullbúnum eða í smíðum. FASTEIGNA SKRIFSTOFAN AUSTURSTRÆTI 17 4. HÆD. 'SlMl: 17466; Hvert viljið þér fara? Nefnið staðinn. Við flytjum yður, fljótast og þœgilegast. Hafið samband við ferðaskrifstofuTnar eða /VtVIEFttíD/VCVr Hafnarstræti 19 — sími 10275 krossgötum ★ KEÐJUBRÉF. ★ HVERS Á AUSTURVÖLLUR AÐ GJALDA? Svokölluð keðjubréf hafa undan- farið gengið Ijósum logum í skólum landsins og víðar. Kennari hefur sent okkur sýnishorn af einu slíku bréfi. Það er svohljóðandi: „Sendu innan 4 daga í pósti 20.00 krónur til fyrstu adressu á listanum, sendu síðan 4 bréf til vina þinna með þessum texta, slepptu fyrstu adressunni, en skrifaðu þína neðst. Eftir 20 daga færð þú 2.500,00 krónur í pósti. Slíttu ekki keðjuna, því þá stöðv- ast hún alveg. Hún byrjaði 12./3.’58 og hefur ekki stöðvazt síðan, hugsaðu um okkur hinar, þú sendir 20.00 krónur og færð 2.500.00 krónur. Ef þú vilt ekki vera með, sendu þá bréfið til neðstu adressu.” Síðan koma neðan undir bréfinu fjórar adressur, nöfn og heimilisföng fjögurra manna e'ða kvenna, og þessar adressur halda áfram að endurnýja sig, þangað til einhver slítur keðj- una. — Ástæða er til að vara fólk við þátttöku í þessari endaleysu. Sumir eru svo auðtrúa, að þeir halda, að þeir fái þessar 2.500.00 krónur, sem talað er í um bréfinu, erí auðvitað er það bara blekk- ing. Þeir, sem ekki kæra sig um að láta hafa sig a’ð fíflum, ættu þess vegna að fleygja svona keðju- bréfum umsvifalaust í ruslakörfuna. Austurvöllur hefur jafnan verið augnayndi Reykvíkinga, enda vandað til skreyt- ingar á honum undanfarin sumur. Margir hafa látið það eftir sér að setjast á bekk einhvers staðar í námunda við Jón Sigurðsson og virða fyrir sér marglit og skrautleg blómabeðin, þegar allt hefur náð fullum vexti og þroska. Austurvöllur hefur verið einn fagurlegast skreyttur garður bæjarins. Nú bregður hins vegar svo við, að þar sjást engin blóm. Og ekki nóg með það. Þakið hefur verið með grasþökum yfir öll beðin meðfram grasstígunum, svo að sýnilega er ekki ætlunin að rækta þar neinar skrautjurtir meir. Ég ætlaði varla að trúa mínum eigin augum, þegar. ég kom á' Austurvöll á sunnu- dagsmorguninn og tók eftir þessu nývirki 1 garð- skreytingu höfuðborgarinnar. Ég held líka, að fleir- um hafi komið þetta á óvart en mér. Mér sýndist jafnvel einhver furðusvipur á andliti Jóns Sig- urðssonar, sem öðrum fremur hefur átt þess kost að gleðja sig við allt blómaskrautið í þessum gamla og virðulega garði. Það væri heldur ekkert undar- legt. Mér er spurn: Hvað kemur til? Hvers á Austurvöllur að gjalda? — S t e i n n. XA í kjörklefanum yimmm 4 31. maí 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.