Alþýðublaðið - 31.05.1967, Qupperneq 4
Ritstjóri: Bemedikt Gröndal. Slmar 14900—14903. — Auglýsingasfmi:
14906. — Aðsetur: Alþýöuhúsiö við Hverfisgötu, Rvík. — Prentsmiðja
Alþýðuhlaðsins. Sími 14905. — Áskriftargjald kr. 105.00. — í lausa-
sölu kr. 7.00 eintakið. — Útgefandl: Aiþýðuflokkurinn.
Sjónvarp og stjórnmál
í GÆRKVÖLDI og fyrrákvöld áttu sér stað fyrstu
kosningaumræður í íslenzka sjónvarpinu. Má segja,
að hér hafi verið um tímamót að ræða. I>ótt íslenzka
sjónvarpið hafi ekki verið undirbúið nema á um það
'bil tveim árum og hafi ekki starfað nema í níu mán-
uði, er það þegar orðið ein af mikilvægustu menn-
ingarstofnunum íslenzku þjóðarinnar. Þ'að hefur far-
ið betur af stað en flestir þorðu að vona. Og í gær-
kvöldi og fyrrakvöld hélt það inn á nýja braut, sem
áreiðanlega á eftir að hafa mikla þýðingu fyrir fram-
þróun íslenzkra stjórnmála. Öllum, sem því hafa
'kynnzt annars staðar, ber saman um, að sjónvarp
hafi veruleg áhrif á skoðanamyndun almennings. Þess
'vegna skiptir miklu máli, hvernig af stað er farið,
bæði af hálfu sjónvarpsins og af hálfu stjórnmála-
flokkanna.
Utvarpsráð hefur markað mjög skynsamlega stefnu
varðandi notkun sjónvarpsins í kosningabaráttunni,
Og sjónvarpið sjálft leysti sitt verk prýðilega af
hendi. Flokkarnir komu einnig vel fram og í raun og
veru betur en þeir hafa gert í útvarpsumræðum um
langt skeið. Virðist svo sem sjónvarpið hafi haft holl
áhrif á flokkana varðandi málflutning, og er það sann-
arlega vel.
Útvarpið, H-listinn og l-listinn
ÞAÐ var tvímælalaust rétt afstaða hjá útvarpsráðí
að veita fulltrúum H-listans kost á að kynna stefnu
sína í sjónvarpinu og hljóðvarpinu og taka þátt í um-
ræðufundi. Sumir hafa hins vegar furðað sig á því,
að fulltrúar I-listans skuli ekki hafa átt kost á því.
Um það er að segja, að engin ósk mun hafa komið
fram frá fulltrúum I-listans um að fá að koma fram
sem sjálfstæður flokkur, enda er það kunnara en frá
'þurfi að segja, að I-listinn lítur ekki á sig sem flokk
og framboðið ekki sem utan flokka, heldur sem Al-
þýðubandalagsframboð. Og væntanlega dettur engum
í hug, að Alþýðubandalagið geti fengið tvöfaldan tíma
í sjónvarpi og hljóðvarpi. Fulltrúi Alþýðubandalags-
ins í útvarpsráði, Björn Th. Björnsson, hefur auðvitað
gert það af skömmum sínum að bera fram tillögu um,
'áð I-listinn fengi sérstakan ræðutíma. Með því hefur
hánn viljað undirstrika þá skoðun Alþýðubandalags-
insi að I-listinn sé sérstakur flokkur, Alþýðubandalag-
inu óviðkomandi. En gegn mótmælum I-listamann-
an.ra sjálfra varðandi það, að þeir væru flokkur, vildi
útvarpsráð að sjálfsögðu ekki fallast á það. Hefur út-
varpsráð því tekið rétta stefnu í þessu máli.
Fasteignir
FastelgnasaEan
Hátúni 4 A, NóatúnshÚstS
Simi 21870,
Úrval fastelgna viB RÍira
haefi.
Hilmar Valdimarsson,
fasteignaviðsklpti
Jón Bjarnason
hsestaréttarlögmaður.
Höfum jafnan til sölu
fiskiskip af flestum stærðum.
Upplýsingar í síma 18105 og á
skrifstofunni, Hafnarstræti 19.
FASTEIGNAVIÐSKIPTI I
BJÖRGVIN JÓNSSON
AUGLÝSIÐ
í Alþýðublaðinu
Hverfisgötu 18.
Símar 14150 og 14160
Kvöldsími 40960.
íbúðir í úrvali
Fasteignaviðskiptt
Gísli G. ísleifsson
hæstaréttarlögmaður.
Jón L. Bjarnason
Til sölu
FAST E I G NAVAL
Skólavörðustíg 3A. — II. hæð,
Símar 22911 og 19255.
HÖFUM ávallt til sölu úrval af
2ja-6 herb, íbúðum, einbýllshús-
um og raðhúsum, fullgerðum og
í smíðum í Reykjavík, Kópa-
vogi, Seltjarnarnesi, Garðahreppl
og víðar. Vinsamlegast hafið sam
band við skrifstofu vora, ef þér
ætlið að kaupa eða selja fasteign
lr_
JÓN ARASON hdL
Sölumaður fasteigna:
Torfi Ásgeirsson
Kvöldsími 20037.
Höfum ávallt til sölu úr-
val íbúða af flestum
stærðum og gerðum,
ýmist fullbúnum eða í
smíðum.
FASTEIGNA
SKRIFSTOFAN
AUSTURSTRÆTI 17 4. HÆD. 'SlMl: 17466;
Hvert viljið þér fara?
Nefnið staðinn. Við flytjum
yður, fljótast og þœgilegast.
Hafið samband
við ferðaskrifstofuTnar eða
/VtVIEFttíD/VCVr
Hafnarstræti 19 — sími 10275
krossgötum
★ KEÐJUBRÉF.
★ HVERS Á AUSTURVÖLLUR
AÐ GJALDA?
Svokölluð keðjubréf hafa undan-
farið gengið Ijósum logum í skólum landsins og
víðar. Kennari hefur sent okkur sýnishorn af einu
slíku bréfi. Það er svohljóðandi:
„Sendu innan 4 daga í pósti 20.00
krónur til fyrstu adressu á listanum, sendu síðan 4
bréf til vina þinna með þessum texta, slepptu fyrstu
adressunni, en skrifaðu þína neðst. Eftir 20 daga
færð þú 2.500,00 krónur í pósti.
Slíttu ekki keðjuna, því þá stöðv-
ast hún alveg. Hún byrjaði 12./3.’58 og hefur ekki
stöðvazt síðan, hugsaðu um okkur hinar, þú sendir
20.00 krónur og færð 2.500.00 krónur. Ef þú vilt
ekki vera með, sendu þá bréfið til neðstu adressu.”
Síðan koma neðan undir bréfinu
fjórar adressur, nöfn og heimilisföng fjögurra
manna e'ða kvenna, og þessar adressur halda áfram
að endurnýja sig, þangað til einhver slítur keðj-
una. — Ástæða er til að vara fólk við þátttöku í
þessari endaleysu. Sumir eru svo auðtrúa, að þeir
halda, að þeir fái þessar 2.500.00 krónur, sem talað
er í um bréfinu, erí auðvitað er það bara blekk-
ing. Þeir, sem ekki kæra sig um að láta hafa sig
a’ð fíflum, ættu þess vegna að fleygja svona keðju-
bréfum umsvifalaust í ruslakörfuna.
Austurvöllur hefur jafnan verið
augnayndi Reykvíkinga, enda vandað til skreyt-
ingar á honum undanfarin sumur. Margir hafa látið
það eftir sér að setjast á bekk einhvers staðar í
námunda við Jón Sigurðsson og virða fyrir sér
marglit og skrautleg blómabeðin, þegar allt hefur
náð fullum vexti og þroska. Austurvöllur hefur
verið einn fagurlegast skreyttur garður bæjarins.
Nú bregður hins vegar svo við, að þar sjást engin
blóm. Og ekki nóg með það. Þakið hefur verið með
grasþökum yfir öll beðin meðfram grasstígunum,
svo að sýnilega er ekki ætlunin að rækta þar neinar
skrautjurtir meir. Ég ætlaði varla að trúa mínum
eigin augum, þegar. ég kom á' Austurvöll á sunnu-
dagsmorguninn og tók eftir þessu nývirki 1 garð-
skreytingu höfuðborgarinnar. Ég held líka, að fleir-
um hafi komið þetta á óvart en mér. Mér sýndist
jafnvel einhver furðusvipur á andliti Jóns Sig-
urðssonar, sem öðrum fremur hefur átt þess kost
að gleðja sig við allt blómaskrautið í þessum gamla
og virðulega garði. Það væri heldur ekkert undar-
legt. Mér er spurn: Hvað kemur til? Hvers á
Austurvöllur að gjalda? — S t e i n n.
XA í kjörklefanum
yimmm
4 31. maí 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ