Alþýðublaðið - 31.05.1967, Síða 8

Alþýðublaðið - 31.05.1967, Síða 8
ÓBmenn í sjónvarpið Þetta eru fjórmenningarnir, sem stofnuðu „Óðmenn“ fyrir ári síðan, en nú hefur sú breyting orðið á, að Pétur Östlund skipar sæti Engilberts Jensen. Walker Brothers hætta John Maus, sólógítarleikari. UM nokkurra vikna skeið hefur því verið fleygt fram, að Walker Brothers væru að hætta og nú eru þessar munnmælasögur orðn- ar að staðreynd. Bræðurnir hafa gengið sinn feril á enda. Ekki eru þverrandi vinsældir ástæðan, held ur ósamkomulag og óánægja hjá þremenningunum. Fyrsta platan þeirra kom út fyrir tveim árum, „Love her“, og rauk fljótlega uppí efsta sætið á vinsældarlistanum. Þá kom „Maki it easy on yourself“; það náði að vísu ekki efsta sætinu, en það gerði hins vegar lagið „My skip is coming in“. Síðan hafa mörg iög Walker Brothers komizt á vinsældarlistanum. Þá kom „Make SVIÐS LJÓS a’int gonna shine any more“. „I need you“ og „Stay with my baby“. Um sama leyti og tilkynnt var að þeir félagar kæmu ekki oftar fram í sviðsljósið kom út með þeim L.P. plata og ein tveggja laga, en titillagið á henni heitir „Walkin’ in the rain“. John Maus, sólógítarleikari „Walker’s segir: Loksins er ég frjáls og óháður. LÖGIN MÍN 1. Edelyeiss .......Vince Hill 2. This is my song .. Petula Clark 3. Puppet on a string Sandie Shaw 4. Það hrygga fljóð Savanna tríóið 5. Happy together Graham Boony Mjöll Hólm heitir úng og efni- ieg dægurlagasöngkona, sem syng ur í Klúbbnum um þessar mund- ir með hljómsveit Elfars Berg. Þátturinn kom nýlega að máli við' hana og fékk upp hjá henni uppá- haldslögin, sem birt' eru hér að ofan, en nú gefum við Mjöll orð- ið: Ég hef ekki heyrt mörg lög með Vtnce, en þetta lag greip mig strax og ég heyrði það og mér finnst sérstaklega gaman að syngja það. Ég hef nýlega heyrt annað lag með honum, „A woman need love“, einkar fallegt, sam- ið af honum sjálfum. Ég hef alltaf haft ánægju af söng Petulu Clark. Þetta lag Chaplins er ekki ýkja viðamikið. Það er fyrst og fremst flutning- ur Petulu, sem hefur skapað því vinsældir. „Puppet on a string“ er eitt af þessum lögum, sem almenningur grípur strax, en er þeim mun fljót EINS og kunnugt er hafa samn- ingar tekizt með Félagi ísl. hljóm listamanna" og íslenzka sjónvarp- inu. Nú nýlega var tekin upp fyrsta beat hljómsveitin, en það voru Óðmenn frá Keflavík. Vegir þess- arar hljómsveitar hefur mjög far- ið vaxandi, enda eru þetta úrvals hljóðfæraleikarar og söngurinn er skýr og góður. Öll lögin, sem pilt- arnir flytja í þessum sjónvarps- þætti eru eftir meðlimi í hljóm- sveitinni. Þetta prógramm Óð- manna kemur á skerminn í byrj- un næsta mánaðar, en mjög hef; ur verið til þess vandað. Um svipað leyti og Engilbert Jensen gekk yfir í Hljóma frá Óðmönnum, tók Pétur Östlund sæti hans, en hann var sem kunn ugt er áður í Lúdó sextett. Þessi tilfærsla er dálítið kaldhæðnis- leg, því á sínum tíma vék Engil- bert úr Hljómum fyrir Pétri, þannig að þetta virðist vera eins konar þögult einvígi á milli trommuleikaranna. Fyrsti ávöxturinn af þessum samningi sjónvarpsins og hljóð- færaleikaranna kom í ljós nú ný- lega, er Hljómsveit Ragnars Bjarnasonar birtist í. fyrsta sinn í íslenzku sjónvarpi og flutti fjög ur lög í þætti Steindórs Hjör- leifssonar, „Á rauðu ljósi“. Tvö laganna voru kóperuð beint af nýjustu ulötu þeirra félaga, en það kom miður vel út. Hins veg- ar var dúett þeirra Ragnars Bjarnasonar og Jóns Sigurðssonar um Hamborgarreynsluna sérstak- lega skemmtilegur, en umrætt lag Frh. á 15. síðu. Mjöli Hólm ari að fá leið á þeim. Sandie er ákaflega skemmtileg söngkona og hefur sérkennilegan söngstíl. „Það hrygga fljóð", lag Savánna tríósins, hef ég sett í fjórða sæt- ið. Þetta er einstaklega fallegt írskt þjóðlag við vel gerðan texta eftir Sigurð Þórarinsson. í söngn- um mæðir mest á Troels og skil- ar hann sínu hlutverki einstak- lega vel, að því er mér finnst. „Happy together” hefur hlotið miklar vinsældir undir flutningi Framhald á 15. síðu. 1. Eniil Jónsson ráðherra. 6. Óskar Halldórsson húsgagnameistari. 7. Svavar Árnason oddviti. Aðalfundur Félags bryta Aðalfundur Félags bryta var haldinn að Ilótel Holti, mánudag inn 29 maí. Böðvar Steinþórsson formaður félagsins setti fundinn og stjórnaði honum. Gefin var skýrsla yfir starfsemi félagsins liðið ár og lagðir fram reikning- ar þess og styrktarsjóða. Kaup og kjarasamningum hef- ur verið sagt upp og hafa tvíveg- is átt sér stað viðræður við vinnuveitendur, síðast 23. maí ásamt fulltrúum frá Félagi mat- reiðslumanna. Fundurinn samþykkti að óska eftir endurskoðun á lögum nr. 5071961 um bryta og matreiðslu- menn á farskipum og fiskiskip- um. Foi-maður gat þess að á 40 ára afmæli samtaka matreiðslu- og framreiðslumanna er haldið var hátíðlegt á s.l. vetri hefði Félag bryta gefið eftirlíkingu af kjöt- exi og glasabakka, sem nota skyldi við fundarstjórn á þing- um Sambands matreiðslu- og framreiðslumanna og á fundum Félags matreiðslumanna svo og á fundum Félags framreiðslu- manna. Ríkharður Jónsson hafði gert gripi þessa, er kjötöxin úr fílabeini og svartvið, en glasa- bakkinn er 'hnotuviðarskál. Böð- var Steinþórsson afhenti gripi þessa á afmælisfagnaði 8. marz s.l. Við fundarstjórn skal slá með kjötexinni á glasabakkann. Böðvar Steinþórsson var end- urkjörinn formaður félagsins í sjöunda sinn, óg með lionum voru endurkjörnir: Anton Líndal Friðriksson gjaldkeri, Kári Hall- dórsson ritari, Elísberg Péturs- son varaformaður og Frímann Guðjónsson fjármálaritari. Vara stjórn: Rafn Sigurðsson og Bjarni Bjarnason. Að fundi loknum þáðu brytar kaffiveitingar í boði Þorvaldar Guðmundssonar hótelstjóra að Hótel Holt. 3 31. maí 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.