Alþýðublaðið - 01.06.1967, Side 4
eq&mcd
Ritstjórl: Benedikt Gröndal. Simar 14900—14903. — Auglýsingasíml:
14906. —Aðsetur: Aljiýðuhúsið við Hverfisgötu, Rvik. — Prentsmiðja
Alþýðublaðsins. Sími 14905. — Áskriftargjald kr. 105.00. — t lauaa-
sölu kr. 7.00 eintakið. — Útgefandi: Alþýðuflokkurlnn.
„Litlo, Ijóta klíkan"
I-LISTINN eða Hannibal Valdimarsson og stuðn-
ingsmenn hans gefa út blað í Reykjavík, Nýja Al-
þýðubandalagsblaðið. í síðasta tölublaðinu er á for-
síðu ljót lýsing á andstæðingum H'annibals í Alþýðu-
toandalaginu. Þar eru nokkrir flokksmenn Hannibals
þeir Ingi R. Helgason, Guðmundur Hjartarson, Guð-
mundur J. Guðmundsson og Kjartan Ólafsson kall-
aðir „litla, ljóta klíkan“. Til bragðbætis eru þeir
sagðir „klíka ljósfælinna va’ldastreitumanna og skoð-
<analausra braskara". Þessi klíka, segir blaðið, vilji
nú sýna, að þeir hafi öll völd í Alþýðubandalaginu í
sínum höndum. En formaður Alþýðubandalagsins vill
líka hafa þar völd. Blaðið segir: „Það er ekkert
leyndarmál, að framboð Hannibals o.fl. þýðir fullkom-
ið uppgjör við þessi myfkraöfl og baráttu við þau“.
Þetta er allt saman hressilega mælt. Formaðurinn
vandar flokksmönnum sínum ekki kveðjurnar. En
baráttan gegn „litlu, ljótu klíkunni“ kemur óneitan-
lega fram á dálítið undarlegan hátt. Aðstandendur
I-listans leggja áherzlu á, að atkvæði þau, sem honum
verða greidd, skuli teljast atkvæði greidd Alþýðu-
bandalaginu og þannig verða til þess að styðja
„litlu, ljótu klíkuna“. Um leið og frambjóðendur I-
listans biðja menn um að kjósa sig, eru þeir að biðja
um að styrkja „klíku ljósfælinna valdastreitumánna
og skoðanalausra braskara".
Ef I-listamennirnir hefðu í alvöru meint uppgjör
við „litlu, ljótu klíkuna", hefðu þeir áuðvitað klofið
Alþýðubandalagið og hafið baráttu gegn því, fyrst
þeir telja það á valdi „Ijósfælinna valdastreitumanna
og skoðanalausra bráskara1'. En annað hvort er héi
engin alvara á ferð eða þá að Hannibal er að áskilja
sér uppbótarsætisrétt hjá Alþýðubandalaginu, ef hann
nær ekki kosningu. Svo gæti nefnilega farið, einmitt
ef Hannibal nær ekki kosningu, að hann ætti rétt á
uppbótarsæti flokksins í Reýkjavík. Þá virðist
Hannibal ætla að taka sæti á Alþingi með tilstyrk
atkvæða, sem „litla, Ijóta klíkan“ hefur safnað. Má
varla á milli sjá, hvort ósmekklegra er, að Hannibal
setjist á þing með tilstyrk „lilu, ljótu klíkunnar“,
eða að atkvæði I-listans fleyti kommúnistum eins og
Geir Gunnarssyni eða Ragnari Arnalds á þing. En
út á þetta gengur vitleysan í Alþýðubandalaginu.
KiíðlKLEFANUM
ALLT A SAMA STAÐ
SINGER VOGUE
HILLMAN HUNTER
kr. 23í.000.-
kr 218.800.-
STERKIR. VANDAÐIR OG SPARNEYTNIR FÓLKSBÍLAR.
KOMIÐ, SKOÐIÐ OG KYNNIÐ YÐUR GREIÐSLUSKILMÁLA.
EgiEB Vilhjálmsson h.f,
LAUGAVEGI 118 SJMI 22240.
★ BRÉP UM SJÓNVARPIÐ.
Sjónvarpsáhorfandi hefur sent
okkur alllangt bréf um sjónvarpið. Rúmsins vegna
getum við þó ekki birt bréfið í hoild: „Ég hef ver-
ið að bíða með að senda ykkur línu vegna þess,
a ég hef alltaf verið að búast við að sjá bréf um
þetta efni hér á krossgötunum, en þar sem af því
hefur ekki orðið enn læt ég þetta ekki dragast
lengur.
Mér þótti sjónvarpið fara aldeilis freklega út
fyrir sinn hring í þættinum Á öndverðum meiði
riú fyrir skömmu. Forstjóri einkafyrirtækis veittist
þar harkalega að fjarstöddum manni og bar upp
á hann falsanir og hverskyns átölur og svívirðing-
ar aðrar fylgdu í kjölfarið.
Stjórnandi þáttarins veitti manninum nokkrar
átölur og benti honum á' að halda sér í skefjum,
en allt kom fyrir ekki. Maðurinn var greiniiega
staðráðinn í að misnota sér aðstöðu sína og nota
sér það að enginn var til andsvara.
Ég hélt' satt að segja að það væri algild regla
bæði hjá sjónvarpi og hljóðvarpi að líða ekki slík-
ar árásir á fjarstadda. Hefði sá sem ráðizt var á
verið viðstaddur, hefði allt öðru máli gegnt, hann
hefði þá getað varið sitt mál og svarað á'sökunum.
Það verða held ég að teljast alvarleg mistök
hjá stjórnanda þessa þáttar og yfirmönnum sjón-
varpsins að sýna þennan þátt eins og hann varð.
Sjálfsagt var að klippa árásirnar úr þættinum, eða
taka hann upp aftur, ef slíkt er nauðsynlcgt.
★ TILLAGA UM EFNI.
Ég veit með fullri vissu, því ég
hef rætt þetta við ýmsa, að mönnum fannst þarna
ailtof langt gengið og græðir enginn á svona mál-
flutningi. Annars fannst mér þessi þáttur í heild
ósköp daufur og umræðurnar hálfdapurlegar. Þá
var ólíkt meira líf í þættinum þar sem rætt var
um Víetnamstríðið. Hann var eins og þessir þættir
eiga að vera því þar voru menn virkilega á' önd-
verðum meiði.
Eins og allir aðrir verð ég að ljúka þessu bréfi
með hrósi um sjónvarpið. Ég reyni að missa aldrei
af fréttunum, en læt mikið af erlenda skemmtiefn-
inu lönd og leið, enda hef ég annað við tímann
þarfara að gera. Ég hef talsvert horft á sjónvarp
erlendis, einkum þó í Danmörku og það verð ég
að segja, að mér finnist fréttirnar hér fullkomlega
standast samanburð við fréttir danska sjónvarps-
ins, enda þótt ég viti, að starfslið hér er mörgum
sinnum færra.
Þá vil ég að lokum koma liér fram með hug-
mynd, sem ég veit ekki hvort er nokkurs virði.
Hvernig væri það ef sjónvarpsmenn sýndu okkur
myndir innan úr sjónvarpinu. Segðu okkur frá og
útskýrðu til dæmis hvernig skemmtiþættir verða
til, eða eitthvað á' þá lund. Eins væri gaman að sjá
framan í eithvað af því fólki, sem þarna vinnur
og aldrei birtist á skerminum. Það hlýtur að verða
allstór hópur
S j ónvarpsáhorfandi.
4 1. júní 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ