Alþýðublaðið - 01.06.1967, Síða 14

Alþýðublaðið - 01.06.1967, Síða 14
 !I,,,,1,II,,,I1,III,,,1,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,I,,,,,I,,,I,I,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,Í,''1II,,I,1I|,1III1I,,1IIIII,,1,I,,,,III,I,I,,,,I,,,,,,,,1,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,I,,,,,I,,,,,,,,,,,,,,,,,,I,,( Hlátur og taugaspenna TOPKAPI. Bandarísk frá 1964. Leikstjóri og framleiðandi: Jules Dassin. Handrít: Monja Daniscliew- sky eftir sögu Eric Ambler, The Ligth of Day. Tónlist: Manos Hadjidakis. Kvikmyndun: Henri Alekan. Tónabíó. íslenzkur texti. JULES Dassin kann til verka. Hann gerði myi^lina Phaedra; nútímaútgáfu á,harm leiknum Hippolytos eftir gríska rithöfundinn Euripides. Sú mynd var frábær túlkun á ástartoarmleik; ást, sem er fyr- irfram vonlaus. Topkapi er ekki harmleikur. Hún er sakamálamynd, gaman- söm sakamálamynd. Nú snúast flestar sakamálamyndir um það, að þjófnaðurinn sé sem stórkostlegastur, framkvæmd hans sem fullkomnust. Gott og vel. í þessari mynd snýst þjófn- aðurinn um rýting, sem er al- settur dýrmætum smarögðum, en toann er geymdur í lista- safni Topkapi-hallarinnar í Ist anbul. Rýtingur þessi er festur á vaxmynd af soldáni, sem er 'geymd í glerbúri. í>að er Eliza- beth Lipp (leikin af Melinu Mercouri, eiginkonu Dassins), sem svo mjög girnist þessa smaragða. Hún fær til liðs við sig fyrrverandi elskhuga sinn, Walter Harper (Maxiinilian Schell). Þeim til aðstoðar eru Arthur Simpson (Peter Usti- nov), Cedric Page (Robert Morley) og fleiri góðir menn. Myndinni er eiginlega skipt í tvennt: Fyrri tolutinn er ihreinn gamanleikur, aðallega byggður uppá einum leikara — Peter Ustinov. Seinni hlutinn er látlaus spenna, taugaspenna. Sem sagt: hlátur og tauga- spenna. Hvers óskið þið frem- ur? Mjög vel hefur tekizt með val á leikendum í toin einstöku hlutverk. Eins og ég gat um áðan, vekur Peter Ustinov mesta kátínu, enda Óskars- verðlaunamaður fyrir leik sinn í þessari mynd. Hann leikur hér hrakfallabálk og 'hálfgerð- an aula. Gerir hann hlutverki sínu mjög iskemmtileg skil. Með svipbrigðum sínum og öllu h'átterni fær hann hvurn mann til að veina af tolátri. Túlkun Ustinovs á þessu tolut- verki er ekki ósvipuð og í myndinni Spartacus, en þar hlaut hann einnig Skara fyrir sinn leik. Akim Tamiroff er einnig mjög skemmtilegur, en toann fer með lítið tolutverk þjóns, sem virðist beinlínis gert til að hæfileikar toans fái notið sín. Þá er Robert Mor ley í essinu sínu, en liann er íslenzkum kvikmyndahúsgest- um eflaust að góðu kunnur. Melina Mercouri og Maximili- an Schell standa einnig fyrir sínu í aðalhlutverkunum. Topkapi er með ánægjulegri dægradvölum. P.S.: Orð misritaðist í dómi um kvikmyndina Venjulegur fasismi, þar sem greint var frá sovézkri kvikmyndatöku í Reykjavík og nágrenni fyrir fjórum árum, en átti að sjálf- sögðu að vera kvikmyndavika. Sigurður Jón Ólafsson. jii 1111111 iiiiiiiiiii,i,,,,ii,,,i,iniiiiiii,i,,i,iiii,iiiu,,,,,,im,,,,,,,,,,,,,iiiii,i,,M,,,ii,,,,ii,,iiii ,i,ii,iiiiiii,ii,ii,iiiii,i,iii,,,i,i,,i,,i,,,i,i,,,i,,,i,i,,,,,,,,,,m,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,i Þetta er teikning af hafrannsóknaskipinu Bjarna Sæmundssyni. Myndin birtist með ræðu Eggerts G. Þorsteinssonar ráðherra I þriðjudagsblaðinu, en þá féll skýringartexti niður. Minningarorð: PÉTUR ÁSMUNDSSON GAMLI félagi og samherji. Nú ertu horfinn sýnum, en minn ingin lifir hjá þínum gömlu vinum og samherjum. Pétur Ásmundsson frá Köfn í Garði andaðist á sjúkrahúsinu í Keflavík 1. maí 1967, 67 ára að aldri. Pétur sálugi var Þingey- ingur að ætt og ólst upp á Húsa- vík, en fluttist suður í Garð, litlu eftir 1920 og átti heima hér að mestu leyti upp frá því. Svo vildi til að toann átti heima á næsta bæ við mig fyrstu misser in, og tókust fljótlega með okk- ur kynni, þó að meiri yrðu síð- ar, þegar við fórum að starfa saman í verkalýðsfélaginu. Hann var góður liðsmaður þar og toélt fast fram skoðunum sín- um, en var þó mjög samvinnu- þýður, og lét lítt undan síga, þótt í harðbakkann slægi. Nokkru eftir að hann fluttist toingað suður, kvæntist liann ungri stúlku, Guðmundu Egg- ertsdóttur frá Kothúsum, og hygg ég að það hafi verið hans mesta happ á lífsleiðinni. Nokk- ru seinna brutust þau í að byggja yfir sig, sjálfsagt af litl- um efnum, lítið toús, en snoturt, ■eins og allt sem Pétur sálugi lagði hönd á, en það bar með sér sérstakan þokkasvip. .Þeim hjónum varð tveggja barna auðið, sem toæði eru upp- komin, en þau eru Kristján Karl, búsettur í Sandgerði, og Guðríður, sem búsett er í Eng- landi. Hún kom heim, eftir að faðir toennar lagðist toelsjúkur og hjúkraði honum dag og nótt, til að létta honum seinasta áfangann. Það tel ég sýna vel hvern mann hún hefur að geyma. Ég man ennþá vel þegar Pétur sálugi kom fyrst hingað suður, þá í blóma lífsins, rúmlega tví- tugur, tove toann var fríður sýn- um, hár og beinvaxinn, og hve mikil reisn var yfir honum, á allan hátt, en það, sem mér hef- ur þótt einna merkilegast við Ihann, er tove hann toélt þeirri rejsn, allt til hins seinasta, jafn þjáður og hann var seinustu vik urnar, en því átti ég mjög gott með að fylgjast með, þar sem við vorum lengst af hans sjúkra húsvist, á sömu stofu. En nú ertu horfinn gamli vin- ur og félagi — um stundarsakir, en það verður ekki að líkindum langt þar til að ég kem á eftir, Saigon 31. 5. (NTB-Reuter) Bandarískar sprengjuflugvélar gerðu í dag harðar árásir á olíu- birgðastöðvar og annað um það bil sex og toálfan kílómeter frá tojarta Haipong-borgar. Þessar á- rásir komu á óvart, því að áður höfðu fregnir hermt, að Johnson forseti hefði ákveðið, að ekki mætti kasta sprengjum á Haipong og Hanoi nema að fengnu sér- stöku leyfi hjá honum. með minn poka á bakinu, sem sjálfsagt verður þungur. Ég kveð þig svo minn gamli 'samherji og vona að við toitt- umst aftur einhversstaöar í til- verunni og höldum á rétti okkar við betri skilyrði. Vertu sæll og ég veit að þér líður vel. Flugslys Framhald af 1. síðu. fórst farþegaflufivél við Vest- mannaeyjar, sem einnig var í eigu I’lugsýr.ar. Að sinni verður ekki gefið upp nafn flugmannsins, þar eð ekki liafði nást til allra aðstand enda, er blaðið fór í prentun. Koparpípur og Rennilokar. Fittings. Ofnkranar, Tengikranar, Slöngukranar, Blöndunartæki. Burstafell byggingavöruverzlun Réttarholtsvegi 3. Sími 3 88 40. T rúlof unarhrlngar Sendum gegn póstkröfu. Fljót afgreiðsla. 1 Guðm. Þorsteinsson gullsmiður ! Bankastræti 13. Hallmaim Sigurðsson frá Lambhúsum. : í ' 1 1 .....I .. I 14 1- júní 1967 ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.