Alþýðublaðið - 04.06.1967, Page 7

Alþýðublaðið - 04.06.1967, Page 7
Sunnudags AlþýðublaðiS — 4. júní 1967 7 Það tók mannkynið tvær millj- ónir ára að verða milljarður ein- staklinga. Það var um árið 1800. 100 árum síðar hafði þessi fjöldi tvöfaldazt. Þriðji milljarðurinn varð til á þrjátíu árum, sá fjórði kemur til með að verða til á tutt ugu árum og verður kominn í heiminn árið 1875 eða þar um bil. Fimmti milljarðurinn verður til á 12 árum, sjötti milljarður- inn sér dagsins ljós innan tíu ára þar frá. Og það verður um alda mótin 2000. Um það bil 2/3 hlut- ar þess fólks, sem nú byggir ,,hinn þróaða heim'1 koma til með að lifa aldamótin, en meðalajdur inn fer síhækkandi á þessum slóð um. Þessi gífurlega mannfjölgun hef ur margan vanda í för með sér. Mest er fólksfjölgunin í Asíu. (Kína), Afríku og Suður-Amer- íku, þar sem víða er ríkjandi hungursneyð og matvælafram- leiðslan dregst aftur úr fólks- fjölguninni með hverju ári, sem líður. Vísindamenn leita sífellt að ráðum til að vinna næringar- efni — og þá fyrst og fremst eggjahvítu — úr forðabúri nátt úrunnar, — en enginn hefur trú á því, að unnt verði að halda lífinu í sex milljörðum manna á mannsæmandi hátt. „Hið mikla hungur kemur," segja sumir. „Það er þegar kom- ið“, segja aðrir, ,,og framtíðin hefur ekki upp á annað að bjóða en herðingu sultarólarinnar". En það vantar ekki bara fæðu. — Atvinnuleysi er líka yf- irvofandi. í vanþróuðu -ríkjunum er þriðji hver maður atvinnulaus eða að minnsta kosti ófær um að sjá sér farboða með eigin kaupi. DR. MARTIN Luther King, rit- höfundurinn Jean-Paul Sartre, suður- afríska söngkonan Mirian Makeba og sænski ráðherrann frú Alva Myrdal eru meðal þeirra kunnu manna sem boðnir hafa verið til ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um kynþáttamisrétti í Suður-Afríku, sem haldin verður í Dar es Salaam í Tanzaníu dag- ana 15. til 28. júlí næstkomandi. Stórir hópar fæddra og ófæddra barna eiga eftir að koma á vinnu markaðinn, sem á það sameigin- legt með matvælaframleiðslunni, að hann þenst ekki út í sama mæli og mannkyninu fjölgar. Það er óraunhæft að hugsa sér, að fjárstyrkir frá Vesturlöndum geti nokkru verulegu umbreytt. Hungrið helzt þannig í hendur við almenna þjóðfélagslega kreppu undir merki atvinnuleys- isins. Engin þorir að hugleiða_ hvað þetta getur leitt af sér. Von manna er fyrst og fremst bundin við takmörkun barneigna og fjölskylduáætlun. Slíkar að- gerðir koma auðvitað í staðinn fyrir efnahagslega aðstoð, en stjórnmálamenn og vísindamenn | eru alveg sammála um, að án þess að barneignir verði takmark aðar, verði öll hjálparstarfsemi tilgangslaus, þegar fram í sækir. Mörgum finnst, að of seint hafi verið komið auga á gildi takmörk- unar barneigna í sambandi við þró unarlöndin. Þegar ýmis konar varn ariyf voru tekin í notkun í þessum löndum, lækkaði dánartala barna um rúmlega helming, og enda þótt mörg þessara barna lifi til þess eins að alast upp við hung- ur, hefur meðalaldurinn hækkað nokkuð. (í Indlandi er meðalaldur karlmanna ennþá undir 45 ára, — en 68-70 á Vesturlöndum). í Indlandi hefur nú í tíu ár verið uppi hafður mikill áróður og áætlanir um takmörkun barn- eigna, en framfarirnar hafa orðið hægar vegna þess, að erfiðlega hefur gengið að fá stjómir hinna einstöku fylkja til að fram- fylgja því, sem ríkisstjórnin ætlar sér. Indira Gandhi sagði nýlega, að fjölskylduáætlunin væri aðal- atriðið í uppbyggingu þjóðfélags- 55 lönd — þeirra á meðal Danmörk, Finnland og Svíþjóð — hafa fengið boð um að taka þátt' í ráðstefnunni og sama er að segja um ýmsar stofnanir. Umræðurnar verða lagðar til grundvallar skýrslu sem Alls- herjarþingið fjallar síðan um á komandi hausti. Ráðstefnan hefst með yfirliti yfir pólitískt, hernaðarlegt og efnahagslegt ástand í landinu og hlutverkið sem þeir gegna til viðhalds kynþáttamisréttinu — apartheid. Ennfremur er rætt um það, livaða afleiðingar á'- standið í Suður-Afríku kunni að hafa fyrir heimsfriðinn og hvaða alþjóðlegar ráðstafanir beri að gera til að uppræta kynþáttamis- réttið og nýlendustefnuna á þessu svæði. ins. Nú sem stendur fjölgar Ind- verjum um 30000 manns á dag, — en sú tala þyrfti að lækka verulega. í Japan hefur bezt skipan kom- izt á þessi mál, — en þar hefur fólksfjölgunin lækkað á 20 árum úr 34 fæðingum á þúsundið nið- ur í 17. Löglegar fóstureyðingar hafa verið lausnarorðið þar. Á Formósu hefur verið tekið stórt skref í þá átt að takmarka fólks fjölgun — með bandarískri að- stoð. Svíar hafa veitt fé til þessarar starfsemi í Pakistan og sömuleið is á Ceylon, en þar hefur nokk- uð áunnizt. Túnis Marokkó, Maur itius, Nepal og Tj'rkland bíða eft ir sams konar-aðstoð og fleiri lönd eru á biðlista. En það er engan veginn einfalt mál að koma þessu í kring. Sú tækni, sem enn þekkist í þessum efnum, er engan veginn fullnægj andi. — Til þess að hún komi að haldi, þarf aðgæzlu og sjálf- stjórn, sem ekki er öllum gefin. — Og í þeim löndum, þar sem katólska kirkjan hefur sterk ítök, eru önnur vandamál i þessu sam- bandi. Páfinn hefur enn ekki tek ið opinberlega neina nýja afstöðu í þessu máli, þótt það sé knýjandi nauðsyn. Enn sem komið er leyf- ir katólska kirkjan ekki takmörk un barneigna í neinni mynd og í lok síðasta árs birtu bandarískir biskupar yfirlýsingu, þar sem þeir mótmæltu áróðrinum fyrir tak- mörkun barneigna. Sem svar fengu þeir heilsíðu auglýsingu i The New York Times um nauðsyn fjölskylduáætlana, undirritaða af fremstu vísinda- og menntamönn um, sem ekki voru háðir kirkj- unni. Þetta mál hefur í nokkur ár ver ið í rannsókn hjá nefnd innan Vatíkansins og í fyrra lá fyrir álit nefndarinnar. En það var svo róttækt, að formaður nefnd arinnar færðist undan því að leggja það fyrir páfann, svo að talsmaður hins róttæka meirihluta tók það verk að sér. Fyrir nokkru kom svo hirðisbréf páfa, — en þar vantaði alveg þá opinberu afstöðu í þessu máli. sem beðið var eftir. — Páfi ræðir í bréfi sínu mikið um hungursneyðina í heiminum og leggur áherzlu á það, að samstaða þjóðanna sé eina lausnin. En spurninguna um tak- mörkun barneigna sagði hann að- eins, að það ,gæti verið freist- andi“ að reyna að koma í veg fyrir offjölgun mannkynsins. Meira sagði hann ekki. Þær milljónir rétttrúaðra, sem höfðu beðið eftir opinberu leyfi páf- ans, fengu enga úrlausn, — en ýmsir leggja þó þann víða skiln- ing í orð hans, að katólska kirkj- an muni ekki setja sig upp á móti aðgerðum í þessa átt, — þótt hún leyfi þær ekki í orði. í sögu kirkjunnar má lesa um athyglisverða hliðstæðu. f upp- hafi miðalda var mikið um það fíoðn/r d ráðstefnu um kynþáttamál deilt, hvort það væri syndsam- legt að taka vexti af lánsfé. Kirkjan taldi að svo væri. En það kom í ljós, að þjóðfélagið gat ekki verið án þessara peninga, — og teknir voru vextir af lánum eins og allir þekkja í dag. En enn þann dag í dag er það form- leg skoðun katólsku kirkjunnar, að það sé syndsamlegt að krefj- ast vaxta. Líklega verður tak- möi’kun barneigna lögð í sömu skúffu í siðaboðageymslu katólsku kirkjunnar, — sem tíminn liefur rykfellt. Þess vegna má búast við því, að á næstu níu árum verði miklu meira á sig lagt til þess að koma á fjölskylduáætlun í Austurlönd- um og Suður-Ameríku, þar sem þörfin er brýn. Brátt bætist Af- ríka í hópinn, en til þessa hafa af ýmsum ástæðum, ekki skapazt út af eins mikil vandræði af þessu þar. Hinn mikli barnadauði á meðal annars þátt í því. En þeg ar hinar nýfrjálsu þjóðir í Af- ríku hafa komið skipulagi á heil brigðismál sín og dánartala barna lækkar — verður fjölskylduáætl un ófrávíkjanleg nauðsyn. Það er mikið vei’k að vinna í þessum efnurn. En því Grettis- tnki verður að lyfta, hvað sem það kostar, annai-s líður mann- kynið meiri þrautir en sögur greina, — og hefur þó ýmislegt á dagana drifið til þessa.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.