Alþýðublaðið - 04.06.1967, Blaðsíða 14

Alþýðublaðið - 04.06.1967, Blaðsíða 14
14 4. júní 1967 - Sunnudags AlþýðublaSið LaugardalsvöIIur: í kvöld (sunnudag) kl. 20,30 leika VALUR - Í.A. Dómari: Magnús Pétursson. Akureyri: í dag (sunnudag) kl. 17.00 leika Í.B.A. - FRAM Dómari: Baldur Þórðarson. Laugardalsvöllur: Á morgun (mánudag) kl. 20,30 leika. K.R. - Í.B.K. Dómari: Einar H. Hjartarson. M Ó T A N E F N D . 19 MANNA CHEVROLETBIFREIÐ árgerð 1955 til sölu að Tilraunastöðinni að Keldum. Upplýsingar í síma 17300 frá kl. 9—12, næstu daga. Varúð á vegum Framhald af bls. 2. ið að þýðingu og uppselningu nokkurra áróðursbæklinga. Þann 13. nóv. var framkvæmda- nefnd um hægri umferð ritað bréf og boðin öll sú a'ðstoð, er V.Á.V. gæti lagt fram og að gagni mætti koma varðandi undirbúning verð- andi bréytingu á umferðarreglum. Samtökin hafa liaft samband við sambærileg félög á Norðurlönd- um og víðar. Margar tillögur voru samþykkt- ar á þessum aðalfundi, sem flest- ar snertu meiri kennslu í um- ferðarregium og uppbyggingu betra vegakerfis. Núverandi formaður samtak- anna er Björn Pétursson, en framkvæmdastjóri er Sigurður Ágústsson. X A FEugfélag íslands Frh. af 2. síðu. Svo var ráð fyrir gert að fiug gæti haíizt' síðsumars 1937, en vegna tregra sam- gangna við útlönd og ýmissa eríiðleika, kom fyrsta flugvél félagsins til landsins í apríl árið eftir og var fyrst flogið til Akureyrar 2. maí. Fyrsta farþegaflug til Rvíkur var 4. maí og fyrsti farþeginn var Ingólfur Kristjánsson bóndi að Jódísarstöðum í Eyja- firði. Þrátt fyrir margháttaða erf- iðleika við flugreksturinn flaug flugvélin, sem var eins hreyfils Waco sjóflugvél og bar einkennisstafina TF-ÖRN, til margra staða þetta sumar og til áramóta voru fluttir 770 farþegar. Árið 1939 lét' Agnar Kofoed- Hansen af störfum hjá fél. en við tók Örn Ó. Johnson, sem þá gerðist eini flugmaður og forstjóri og síðartalda starf- inu hefur hann gegnt síðan. Snemma árs 1940 var félag- ið endurskipulagt, hlutafé auk- ið og aðalstöðvar þess fluttar til Reykjavíkur. Jafnframt var nafni félagsins breytt í Flug- félag ísiands h.f. Allt' frá þessum árum hef- ur starfsemi Flugfélags íslands vaxið, stundum mjög hratt, en á öðrum tímabilum hægara. Flugvélaeign félagsins hefur einnig aukizt jafnt og þétt. Árið 1941 hófust fyrstu reglulegu flugferðirnar innan- lands, milli Akureyrar og Reykjavíkur og ári síðar milli Reykjavíkur og Egilsstaða. Þá var einnig keypt fyrsta tveggja hreyfla flugvélin af Beechcraft gerð 1942, tvær tveggja hreyfla flugvélar frá De Havilland 1944, og fyrsti Katalína flug- báturinn sama ár. íslenzk á- höfn sótti flugbátinn til Banda- ríkjanna og flugið til íslands var sögulegur viðburður: — Fyrsta flug íslenzkrar flugvél- ar og flugáhafnar yfir Atlants hafið. Fiugstjóri í ferðinni var Örn Ó. Johnson, aðstoð- arflugmaður Smári Karlsson og vélamaður Sigurður Ingólfs- son. Auk þeirra af styrjaldar- ástæðum, tveir Bandaríkja- menn. Þessi flugbátur, sem bar einkennisstafina TF-ISP og var í daglegu tali kallaður „Pétur gamli” flaug svo fyrsta milli- landaflug Flugfélags íslands og þar með fyrsta millilanda- flug íslendinga, með farþega og póst 11. júlí 1945. Flogið var frá Reykjavík til Largs Bay í Skotlandi og aftur heim daginn eftir. Flugstjóri í þeirri ferð var Jóhannes R. Snorra- son, yfirflugmaður félagsins. Bráðlega eftir þetta eignað- ist Flugfélag íslands tvær Katalínaflugvélar til viðbótar og árið 1946 fyrstu Douglas- DC-3 flugvélina. Þessar tvær gerðir flugvélar báru í mörg ár hita og þunga innanlands- fiugsins og enn í dag fljúga DC-3 flugvélarnar til ýmissa staða innanlands og til Græn- lands. í kjölfar fyrsta millilanda- ifluglsins voru sumarið 1945 flognar tvær aðrar ferðir til útlanda, þ.á.m. til Kaupmanna- hafnar. Félagið samdi vorið 1946 við Sottish Airlines um leigu á flugvélum til milli- landaflugsins unz Flugfélag íslands eignaðist sína fyrstu Skymasterflugvél, sem kom til landsins 1948 og hlaut nafn ið „Gullfaxi.” Farþegafjöldinn hafði á þess um árum aukizt úr 770 fyrsta árið upp í næstum 27 þús. árið 1948. Við tilkomu hinnar nýju miliilandaflugvélar hljóp fjörkippur í flutningana og ár- ið 1949 eru fluttir yfir 32 þús. farþegar. Árið 1956 voru farþegar 70 þúsund og brýn nauðsyn á að afla nýrra flug- véla til millilandaflugs. Keyptar voru tvær nýjar millilandaflugvélar af Vis- count-gerð, sem komu til landsins 2. maí 1957 og hófu þegar áfætlunarflug á milli- landaleiðum félagsins. Árið 1950 gerðist Flugfélag fslands aðili að IATA, alþjóðasam- bandi flugféiaga og hefur síð- an tekið þátt í hinni alþjóð- legu samvinnu um flugmál. Árið 1950 hófust einnig Grænlandsflug félagsins, en Grænlandsferðir Faxanna eru nú orðnar æði margar og þeir hafa víða lent, flutt farþega, póst og vörur. í fyrstu var flogið með Katalína flugbátum en síðan með Skymasterflug- vélum og DC-3 flugvélum. — Síðan 1961 er Skymasterflug- vél og áhöfn staðsett á Græn- landi til ískönnunarflugs með suðurströnd landsins og enn- fremur ér haldið uppi flug- ferðum með DC-3 flugvél bú- inni skíðum til einangraðra stöðva á austurströnd landsins haust og vor. Flutningar með flugvélum félagsins jukust jafnt og þétt og 1961 keypti félagið Cloud- master flugvél til flugs á miili landaleiðum. Endurnýjun flug- flotans til innanlandsflugs var orðin aðkallandi, en um ýms- ar gerðir flugvéla var að velja. Víðtækar athuganir fóru fram og niðurstaðan varð, að ákveð- ið var að kaupa skrúfuþotur af Fokker Friendship gei'ð. Fyrsta Eriendship skrúfuþota félagsins kom til landsins í maí 1965 og önnur ári síðar. Um þessar mundir á félagið þriðju Friendship skrúfuþot- una í pöntun og er hún vænt- anleg til landsins í marz næsta ár. Árið 1962 fluttu flugvélar Flugfélagsins í fyrsta sinn yf- ir 100 þús. farþega og árið 1967 urðu farþegar . félagsins yfir 160 þús. í allmörg undanfarin ár liöfðu Flugfélagsmenn fylgzt með þeim flugvélategundum sem komu á' markaðinn með tilliti til þarfa félagsins, en lengi vel voru aðeins byggðar þotur til flugs á lengri leiðum og því lítt hentugar. Snemma árs 1965 hófust fyrir alvöru athuganir og rannsóknir á því hvaða gerðir flugvéla myndu henta bezt er millilandaflug- floti félagsins yrði endurnýj- aður. Niðurstaðan er alþjóð kunn: Félagið ákvað að kaupa þotu af gerðinni Boeing 727 sem er væntanleg til landsins í þessum mánuði. Með tilkomu íslenzkrar þotu á flugleiðum milli íslands og ná’grannaland- anna, skapast gjörsamlega ný viðhorf í fer'ðamálum. Ferða- tíminn styttist um allt að því helming og þægindin umfram það sem var í hinum gömlu góðu skrúfuvélum er meiri en orð fá lýst'. Fargjöld með hinni nýju þotu verða þó hin sömu. íslendingum hafa jafnan ver- ið flugmálin hugstæð. Það sannar svo ekki er um að villast, hin tiltölulega langa flugsaga. Saga Flugfélags íslands í 30 ár er saga þrotlauss starfs þar sem skin og skúrir skiptust á eins og í mannlífinu yfirleitt. Sigrarnir hafa þó ótvírætt verið fleiri en það sem miður hefur farið og það er öllum þeim, sem á undanförrium árum hafa lagt fluginu lið, fagnaðarefni að laust eftir 30 ára afmælið tekur Flugfélag íslands nýjan farkost í notkun: fyrstu þot- una, sem ennþá styttir ferða- tímann milli íslands og ná- grannalandanna og færir okk- ur sem þetta land byggjum inn í þotuöldina. Lesið Alþýðublaðið Hjartkær eiginmaður minn og faðir okkar Guðmundur Stefánsson Kársnesbraut 29, sem andaðist 30. f.m. verður jarðsunginn frá Árbæjar- kirkju í Holtum, þriðjudaginn -6. júní kl. 2. Bílferð verður frá Kalkofnsvegi kl 12 á hádegi. Lára Pálmarsdóttir og börn. Við þökkum innilega samúð og vináttu, við andlát og útför Sigurveigar Guðrúnar Björnsdóttur Einnig þökkum við öllum þeim, sem heiðruðu minningu her.nar, með blóma- og minningagjöfum. VANDAMENN. Þökkum okkur sýnda samúð og vinarhug við andlát og útför Þorfinns Guðbrandssonar múrara. ’ Ólöf Runólfsdóttir. Jónína Þorfinnsdóttir, Ragnar Edvardsson, Sigrún Gísladóttir, Gunnlaugur Þorfinnsson,

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.