Alþýðublaðið - 04.06.1967, Page 15

Alþýðublaðið - 04.06.1967, Page 15
Sunnudags AlþýðublaðiS — 4, júní 1967 15 Viðtal við Gylfa Frh. af 1. síðu. flokkar sem verða í stjórn á næsta kjörtímabili, hverjir svo sem 'það verða, muni skoða það sem eitt megin verkefni sitt að reyna að tryggja viðskiptahagsmuni íslands í Vestur-Evrópu. Á þessu stigi er ómögulegt að segja, á hvern hátt það verður bezt gert. Allar upphrópanir um þetta mál nú eru kosningaáróður af ómerkileg- ustu tegund. — Þú hefur talaff og skrífað mikiff um landbún- aðarmál. — Já, og svo skemmtilega vill til, að þegar ég hóf umræður um hina röngu stefnu í land- búnaðarmálunum, þá voru gerð að mér hávær hróp úr ýmsum áttum. Það er hætt núna. Ég held, að flestir séu farnir að sjá, — og þá bændur alls ekki síður en aðrir, — að breyta verður um stefnu í þessum málum. Ef Alþýðu- flokkurinn hlýtur traust i þessum kosningum og rætt verður um, að hann haldi áfram stjómar- samstarfi við Sjálfstæðisflokkinn, verður að sjálf- sögðu að gera nýjan málefnasamning milli flokk- anna, og tel ég. að landbúnaðarmálin eigi að rera einn meginþáttur þeirra samningaviðræðna. — Viltu nefna fleira, sem þú telur Alþýffuflokk- inn eiga aff leggja áherzlu á af málefnum? — Ég tel, að hann eigi, hvort sem hann verð- ur í stjórn eða utan stjórnar, að leggja áherzlu á endurbætur almannatrygginganna og þá fyrst og fremst lífeyrissjóð fyrir alla landsmenn, og hann á að berjast fyrir áframhaldandi umbótum í húsnæðismálum og menntamálum. Uppbygging atvinnuveganna verður að sjálfsögðu einnig, eins og ávallt, áhugamál Alþýðuflokksins. Og að síð- ustu vildi ég nefna nauðsyn alhliða tollalækkun- ar, enda höfum við hæsta tolla allra nágranna- landa. Hins vegar verður tollalækkun að fara fram smám saman og samkvæmt áætlun, og áherzlu verður, vegna réttmætra hagsmuna ís- lenzks iðnaðar, að leggja á, að hráefnatollar lækki jafnan á undan tollum á fullunnum vörum. — Hvað viltu að síðustu segja um stjórnarsam- starfiff? — Ég tel það hafa verið heilsteypt og heið- arlegt. Ég tel Alþýðuflokknum hafa orðið meira ágengt í baráttunni fyrir sinum málum í sam- vinnu við Sjálfstæðisflokkinn en meðan hann hafði samvinnu við Framsóknarflokkinn og Al- þýðubandalagið í stjórn Hermanns Jónassonar. Hvort við eigum að halda áfram stjórnarþátt- töku tel ég eiga að fara eftir því, hvort við hljótum traust í kosningunum eða ekki. En hvort sem við verðum í stjórn eða utan stjórnar tel ég, að við eigum að leggja áherzlu á að vera ábyrgur og heiðarlegur flokkur, sem hefur hug- sjónir jafnaðarstefnunnar að leiðarljósi og hefur það að æðsta markmiði að gera íslenzkt þjóð- félag betra og réttlátara. Eineygði Frh. af 5. síðu. tveimur árum við sjúkrabeð hertogans í London. Drottningin hvatti til þess fundar og samræ’ðurnar voru nánari en venjuleg kurteisis- orð. Sagt er, að það hafi glatt' hertogann mjög, en hann hafði þá legið sex vikur á sjúkrahúsi og gengizt undir hvern uppskurðinn á fætur öðrum. Elízabet drottning var mjög hænd að frænda sínum, þegar j hún var barn, og eftir að hann | fór í útlegð hittust þau eins j oft óg kringumstæður leyfðu. j Ein manneskja stóð í vegi j fyrir fjölskyldusáttum alveg þar til Elízabet var krýnd. Það RADiONETTE tœkin henta sveitum Jandsins. Meö einu handtaki má kippa verkinu innan úr tækinu og senda það á viðkomandi verkstæði — ekkert hnjask með kassann — auðveldara í viðhaldi. Radionette-verzlunin Aðalstræti18 sími 169 95 ÁRS ÁBYRGÐ Aðalumboð: Einar Farestveit & Co. hf. Vesturgötu 2 Nauðungarupphoð arrnað og síðasta á hluta í Ránargötu 13, hér í borg, þingl. eign Brynhildar Berndsen, fer fram á eigninni sjálfri, föstudaginn 9. júní 1967, kl. 3,45 síðdegis. Borgarfógetaembættið í Reykjavík. Nauðungaruppboð annað og síðasta á hluta í Bræðraborgarstíg 15, hér í borg, þingl. eign GuðrúnarÁg. Júlí- usdóttur, fer fram á eigninni sjálfri, föstu- daginn 9. júní 1967, kl. 3 síðdegis. Borgarfógetaembættið í Reykjavík. var Mary konungsmóðir, sem ekki vildi kenna tengdadóttur sína. Uppeldismálaþing Frh. af 3. síðu. Þar á ofan bættist það sem kallast mætti óeðlilegt1 ástand, sem væri seta erlends herliðs í landinu og sjónvarpsútsending þess. Þetta ástand kallaði á við- nám og minnti á ávarp 60 menn- inganna, sem hann taldi hafa haft talsverð áhrif. Hann sagði, að heimsmenning- in yrði stórum fátækari, ef ís- lendingar glötuðu þjóðerni sínu; á því taldi hann hættu, ef ekki yrði að gáð og benti á örlög Hjalt- lendinga, Orkneyinga og íra. Ein- angrunin toefði bjargað okkur hingað til, en nú væri hún úr sögunni. Próf. Þórhallur gat um athugun sem gerð hefði verið á skólabörnum á áhrifasvæði Kefla- víkursjónvarpsins og utan þess. Hún leiddi m. a. í ljós, að í Döl- um vissi 100% barna, hvernig Þjóðsöngur íslendinga byrjaði, á Snæfellsnesi 91%, í Reykjavík 87%, á Suðurnesjum 71%. — Á Suðurnesjum vissi 15% barna hver var „sómi íslands, sverð og skjöldur.” í sambandi við þingið er ’kennslutækjasýning. í dag kl. 10 segir Andri ísaks- son frá skólarannsóknum og hring borðsumræður verða um kenn- aramenntun. Kl. 13,30 flytur Jón E. Guð- jónsson erindi um Ríkisútgáfu námsbóka. Forseti þingsins er Þórarinn Þórarinsson, fyrrum skólastjóri. Ritari Ragnar Kristjánsson. Þing- inu lýkur í dag. í _ Leslð Alþýðublaðið Kaffisala á FÖGUR er leið um Álftanes á góðviðrisdegi og margur leggur þar leið sína að vori til. Á sunnu daginn kemur gefst fólki tæki- færi til að koma við í Samkomu- húsinu á Garðaholti og kaupa ágætar veitingar hjá konum í Kvenfélagi Garðahrepps, sem efna þennan dag til kaffisölu til ágóða fyrir Garðakirkju, sem ný lega hefur verið endurreist. Og þess er gott að minnast í þessu sambandi, að það var einmitt fyrir forgöngu Kvenfélags Garðahrepps, að þessi fornfræga kirkja var reist úr rústum. Og æ síðan hefur kirkjan notið stuðnings Kvenfélagsins í ríkum mæli. Á sunnudaginn gefst og safnaðarfólki og öðrum tæki- færi til að vera við guðsþjón- ustu í Garðakirkju, en þennan dag munu bæði Garðakórinn og Trúlofunarhrfngar Sendum gegn póstkröfn. Fljót afgreiðsla. Guðm. Þorsteinsson gullsmiður Bankastræti 12. Framhald af 4. síðu. Þótt það séu tíu ár frá því, að Dayan stjórnaði her ísra- els, er ennþá' litið á hann sem mesta hernaðarsérfræðing ísra els. Hann var fyrir nokkrum mánuðum lengi á vígvellinum í Suður-Vietnam, þar sem hann fékk nýja reynslu í hern- aði. Fimmtugur er í dag Albert Imsland, Selvogsgrunni 26, starfs maður tojá Rafmagnsveitu Reykja víkur. Hann er heima í dag. Garððholti kór ameríska safnaðarins á Keflavíkurflugvelii syngja í kirkjunni, en kaffisalan toefst að lokinni guðsþjónustu eða kl. 3 síðdegis. Vil ég þakka Kvenfélagskon- um stuðning þeirra fyrr og nú við kirkju sína og önnur mál- efni sveitarinnar og tovetja sem flesta til að leggja leið sína að Görðum á sunnudaginn. Bragi Friðriksson. FRYSIIKISTUR Frystikistur þrjár stærðir: 275 lítra kr. 13.550.- 350 lítra kr. 17.425,- 520 lítra kr 21,100,. ...#P n ft-át VIÐ0Ð3NST0RG SiMI 10322 Rðfvirkjar Fotosellurofar, Rakvélatenglar, Mótorrofar, Höfuðrofar, Rofar, tenglar, Varhús, Vartappar. Sjálfvirk vör, Vir, Kapall og Lampasnúra í metratali, margar gerðir. Lampar í baðhcrbcrgi, ganga, geymslur. Handlampar. Vegg-,loft- og lampafalir inntaksrör, járnrör 1” li/4” IY2" og 2”, í metratali. Einangrunarband, margir litir og önnur smávara. — Allt á einum stað. Rafmagnsvörubúðin s.f. Suðurlandsbraut 12. Sími 81670. — Næg bílastæði. —

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.