Alþýðublaðið - 07.06.1967, Síða 5
UNGT FÖLK
RÆÐIR UM KOSNINGARNAR
MJÖG er nú skammt til kosn-
inga. Forystumenn stjórnmá'la-
flokkanna hafa nú þegar látið
ljós sitt' skína, bæði í hljóðvarpi
og sjónvarpi, í blöðum og á
mannfundum. Kjósendur, en svo
eru allir þeir nefndir fyrir kosn-
ingar, sem náð hafa tuttugu og
eins árs aidri, halda sínar kapp-
ræður, ýmist á vinnustöðum, á
lieimilum eða jafnvel á' götum
úti. Alþingi götunnar, eins og
kunnur stjórnmálamaður orðaði
það, er í fullum gangi, og næst
komandi mánudag verður lýðum
ljóst, hverjum það hefur skipað
á bekki alþingis við Austurvöll,
hverjir fara með stjórn landsins
næstu fjögur árin.
Blaðamaður Alþýðublaðsins
leit inn á einn vinnustað um
kaffileytið síðdegis í gær. Úr
kaffistofunni bárust háVærar
raddir ungra manna, og var auð-
heyrt', að ekki ríkti algjör ein-
ing um hvernig landinu skyldi
stjórnað í.næstú framtíð.
Þetta var á Viðtækjavinnu-
stofunni h.f., Laugarvegi 178 og
í stormahléi tókum við tvo unga
menn tali, þá Ásgeir Þormóðs-
son og Ólaf Þorsteinsson.
Ásgcir Þormóðsson.
Stefnumál AlþýÖu-
flokksins hafa náð
fram aö ganga
ÁSGEIR er húsgagnasmiður,
lauk námi um sl. áramót og hef-
ur síðan starfað á Viðtækja-
vinnustofunni.
— Hvenær vaknaði á’hugi þinn
á stjórnmálum, Ásgeir?
- Ég var aðeins fjórtán ára,
Iþegar ég gekk í Fél. ungra jafn-
aðarmanna.
— Telur þú, að núverandi rík-
isstjórn hafi vel tekizt að koma
fram stefnumálum jafnaðar-
manna?
— Alþýðuflokknum hefur tek-
izt að hera fram til sigurs mörg
af sínum höfuðstefnumálum, og
mætti nefna þeirri fullyrðingu
til stuðnings stórátak í húsnæð-
ismálum, launajafnrétti kvenna
og sífellt víðtækari trygginga-
löggjöf. Fyrir iðnnema er það
ómetanlegur stuðningur, að hafa
fengið aðild að byggingaráætl-
uninni í Breiðholti.
— Hvað vilt þú segja okkur
um starfsaðferðir stjórnarand-
stöðunnar?
— Þær hafa einkennzt af ó-
þarfa barlóm, og hefur framsókn
verið í fararbroddi þeirra úrtölu
manna. í því sambandi mætti
minnast á landbúnaðarmálin,
sem um langan tíma hafa ver-
ið rekin á óheilbrigðum grund-
velli, og hefur Gylfi Þ. Gísla-
son skeleggast barizt fyrir
breyttum vinnubrögðum í þeim
málum.
— Hver eru helztu hagsmuna
mál iðnnema í dag?
— Ég tel, að þeirra mesta hags
munamál sé að fá fasta samn-
inga milli Iðnnemasambandsins
og meistarafélaganna um mann-
sæmandi kaup. En eins og kunn-
ugt' er, hefur nemum alla tíð
verið ætlað smánarkaup þótt
undanfarin ár hafi þeir verið
yfirborgaðir. Samt vita allir, að i
meistarar taka fullt gjald fyrir j
vinnu iðnnema.
— Hvernig leggjast kosning-
arnar á sunnudaginn í þig,
— Mér er kunnugt um fjölda
fólks, sem nú ætlar að kjósa
Alþýðuflokkinn í fyrsta sinn, og
því spái ég honum miklum sigri
í þessum kosningum.
Iðnnemum gert
kleift að eignast
eigið húsnæði
ÓLAFUR Þorsteinsson er nemi
í útvarpsvirkjun, og því er ekki
úr vegi að spyrja hann um starf-
Ólafur Þorsteinsson.
semi Iðnnemasambandsins, en
Ólafur er ritari þess.
— Það er óhætt að segja, að
starfsemi Iðnnemasambandsins
hefur um langt skeið verið löm-
uð vegna pólitískra afskipta
kommúnista, og er það enn. Þeir
hafa beitt félaginu í þá'gu
flokksvélarinnar, og má sem
dæmi nefna, að formaður félags-
ins skrifaði nýlega undir áskor-
un í Alþýðubandalagsblaðið, þar
sem hann sem formaður sam-
bandsins hvetur til stuðnings G-
listann.
— Hefur málefnum iðnnema
ekkert þokað í rétta átt undan-
farið.
•— Vissulega. Ráðherrar Al-
þýðuflokksins beittu sér t. d.
fyrir því, að iðnnemum var gef-
inn kostur á aðild að byggingar-
á'ætluninni í Breiðholti. Þá hef-
ur Alþýðuflokkurinn lýst því yf-
ir, að iðnnemum verði gefinn
kostur á' viðbótarlánum þeim,
sem meðlimir verkalýðsfélag-
anna fá. Verður það ákvæði vænt
anlega sett inn í húsnæðismála-
lögin við heildarendurskoðun
þeirra á næstunni.
— Hver telur þú að verði höf-
urmál næsta þings.
— Ég álít að stærstu verk-
efni næsta þings verði að koma
á lífeyrissjóði fyrir alla lands-
menn, endurskoðun laganna 'um
húnæðismál og svo heildarfrum-
varp það um afskipti ríkisins af
æskulýðsmálum, sem mennta-
málaráðherra, Gylfi Þ. Gíslason,
hefur látið undirbúa.
Viðskiptavinirnir
bjartsýnir
Á FÖRNUM vegi hittum við
ungan mann, sem fæst við iðn,
sem fremur er ný af nálinni hér-
lendis, a.m.k. í höndum karl-
manna. Hann heitir Eiríkur Ósk-
arsson, hárgreiðslumeistari og
starfar á hárgreiðslustofu föður
síns, Óskars Árnasonar, Grettis-
götu 62.
— Hvernig fellur þér starfið,
Eiríkur?
— Alveg ágætlega. Þetta var
svolítið erfitt fyrst til að byrja
með, en nú vildi ég ekki fyrir
nokkurn mun skipta á þessu og
herraklippingum.
— Er eklci orðið þröngt um
ykkur á Grettisgötunni,
— Plássið þar er alltof lítið, en
úr því rætist vonandi fljótlega,
þar sem við ætlum að opna nýja
stofu við Há'aleitisbrautina. Þar
verður á efri hæð snyrtistofa,
snyrtivöruverzlun og hárgreiðslu-
stofa, en á neðri hæðinni rak-
arastofa. Við gerum okkur vonir
um að opna rakarastofuna í
haust, en hinar eins fljótt og
auðið verður.
— Verður þú var við nokkurn
barlóm eða svartsýni hjá hús-
mæðrunum.
— Nei, þvert á mót'i. Konurn-
ar virðast mjög ánægðar með til-
veruna og líta framtíðina björt-
Eiríkur Óskarsson.
um augum. Enda stingi allur
barlómur í stúf við þá velmeg-
unartíma, sem við lifum á.
Koparpípur og
Rennilokar.
Fittings.
Ofnkranar,
Tengikranar,
Slöngukranar,
Blöndunartæki.
Burstafell
byggingavöruverzlun
Réttarholtsvesri 3.
Simi 3 88 40.
SERVÍETTU-
PRENTUN
SÍMI 32-101.
SVARA ÞÚ, BJARNI!
Á FUNDI stjórnmálaforingj-
anna í sjónvarpinu á mánu-
dagskvöld innti Bjarni Bene-
diktsson forsætisráðherra Lúff-
vík Jósepsson eftir afstöffu
hans til þeirra atkvæffa, sem
listi Hannibals Valdimarssonar
komi til með aff fá í Reykja-
vík. Um þetta eru skiptar skoff-
anir. Þjóðviljinn afneitar lista
Hannibals, og yfirkjörstjómin
í Reykjavík telur hann utan
flokka. Hannibal kveðst aftur á
móti bjóða sig fram fyrir Al-
þýffubandalagiö, og landkjör-
stjórn vill reikna þvi atkvæði
hans og láta I-listann koma til
áíifa viff úthlutun uppbótar-
þingsæta eins og G-listann.
Lúffvík vék sér undan aff
svara. Hann sagði, að G-listinn
væri um land allt listi Al-
bandalagsins, en vildi hvorki
eigna þvi atkvæffi I-listans í
Reykjavík né a fneita þeim.
Hins vegar starði hann á
Bjarna forsætisráðherra og bað
hann að svara spurningunni!
Skollaleikur.
Þögn er líka svar. Lúffvík er
ekki eins fávís og hann lætur.
Fyrir honum mkir að hafa í
þessu efni frjálst val. Hann vill
fyrir kosningar, að frambjóff-
endur kommúnista á G-listan-
um fái atkvæði Alþýöubanda-
lagsins, en eftir kosningar mun
hann áreiffanlcga eigna þvi þau
atkvæöi, sem falla á lista
Hannibals Valdimarssonar. Þá
mun Lúðvík naumast ætlast til
þess, að Bjarni Benediktsson
svari fyrir hann.
Slík afstaffa sannar bezt 6-
heilindi Lúðviks Jósepssonar.
Hann temur sér hentistefnu í
þessu máli eins og endranær.
En alþingi verffur aff skera úr
um, hvernig úrskuröa beri at-
kvæffi Hannibals Valdimarsson-
ar í sambandi við úthlutun upp-
bótarþingsætanna. Þjóðviljinn
staöhæfir, aff sá úrskuröur fari
eftir því, hver veröi meirihluti
á næsta alþingi. Málgagn kom-
múnista læzt með öðrum orö-
um vita afstöffu annarra flokka
i þessu máli. Foringi Alþýffu-
bandalagsins þykist aftur á
móti enga skoðun hafa á mál-
inu og spyr um afstöðu Bjarna
forsætisráöherra. Lúðvík Jós-
epsson lætur sér nægja að
horfa á hann í sjónvarpinu og
segja: Svara þú, Bjarni!
Er hægt að hugsa sér meiri
skollaleik með kjósendur og
atkvæði?
7. júní 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ $