Alþýðublaðið - 11.06.1967, Blaðsíða 2
Sunnudags AlþýðublaSið — 11. júní 1967
NASSER HÆTTIR VIÐ AD HÆ
Loftárásir á Damaskus
Nasser forseti Egyptalands tilkynnti í gærmorgun
að hann myndi sitja áfram í forsetaembættinu, en
hann hafði áður tilkynnt afsögn sína. í tilkynningu
hans segir, að hann muni gegna embætti sínu þar til
áhrif ófriðarins hafi f jarað út, en leggja þá málið fyrir
þjóðaratkvæðagreiðslu.
Mikill mannfjöldi fagnaði á-
kvörðun Nassers á götum Kairó-
borgar, en borgarmúgurinn hafði
áður andmælt' afsögn hans harð-
lega. Nasser sagði í fréttinni, að
hann ætti ekki orð til að lýsa því,
hve hrærður hann væri vegna
þessarar afstöðu fólksins og hinn
ar miklu arabísku þjóðar. Hann
sagðist vera sannfærður um að
sér bæri að draga sig í hlé, en
hann gæti hins vegar ekki snið-
gengið þjóðarviljann.
Öryggisráðið kom saman til
fundar í gærmorgun til að ræða
kæru Sýrlands þess efnis, að
ísrael hefði ekki virt vopnahléð
heldur héldi áfram hernaðarað-
gerðum gegn Sýrlendingum. —
Segja Sýrlendingar að ísraels-
menn haldi uppi árásum á sýr-
lenzk þorp og hafi auk þess gert
loftárásir á Damaskus.
Fulltrúi Sovétríkjanna í ráð-
inu tók undir kærur Sýrlendinga
og réðst persónulega á Kafael,
fulltrúa ísrael. Hann krafðist
þess að Öryggisráðið stöðvaði
„víkingaferðir” ísraelsmanna,
sem hann nefndi svo, nú þegar,
og fordæmdi ísrael sem árásar-
aðila. Rafael vísaði hins vegar á
bug öllum ásökunum, en sagði að
Sýrlendingar hefðu skotið upp-
styttulaust á þorp í ísrael síðasta
hálfan annan sólarhringinn.
U Thant tilkynnti er nokkuð
var liðiff á fundinn, aff skýrsla
frá Odd Buil hershöfðingja, yf-
irmanni vopnahlésnefndarinnar,
segði að loftárás hafi verið gerff
Tækniskóla ís-
lands slitið
Tækniskóla íslands var slitið
í þriðja sinn 8. þ.m. Skólinn tók
til starfa haustið 1964 og luku
fjTstu nemendur hans prófi
sniðnu eftir danskri fyrirmynd
vorið eftir, en liurfu að því búnu
til Danmerkur og settust í danska
tækniskóla haustið 1965. Þeir
nemendur munu útslcrifast í sum
ar. Nú hefur námið verið lengt
í 5 ár og lýkur 1. ári með undir-
búningsprófi, sem nú stóðst 31
nemandi. Hæstu einkunn hlaut
Sigurður Hörður Sigurðsson 9,3.
Auk þess stóðust prófið 8 nem-
endur á Akureyri og 3' á ísa-
firði.
> 1. bekkjarpróf stóðust 19 nem-
endur. Hæstu einkunn fékk Þór-
armn Jónsson vélvirkí 9,0. Fýrii
hlutaprófi í meinatækni (í bók-
legum greinum) luku 14 kven-
stúdentar. Hæstu einkunn hlaut
Anna B. Kristjánsdóttir, 9,6, en
það var hæsta einkunn í skólan-
um. Síðari hluti námsins fer
fram í rannsóknarstofum heil-
brigðisstofnanna.
Skólastjórinn sagði, að margt
væri á huldu um framtíð skól-
ans, en víst væri, að á næsta
skólaári vantaði mikið húsnæði
og marga kennara. Ráðgert er
þó hafa 48 nem. í undirbún-
ingsdeild og halda áfram með
alla, sem fengu framhaldseink-
unn, ennfremur að meinatækni-
deildin haldi áfram.
Skólastjóri Tækniskóla íslands
er Bjarni Kristjánsson, fastráðniv
kennarar 3, stundakennarar 5.
A'uk þess kennáú Í2 kennarar í
meinatæknideild.
á Damaskus klukkan tæplega hálf
tíu í morgun eftir íslenzkum tíma.
Fundi ráðsins var frestað að
beiðni indverska fulltrúans, sem
lagði til að fulltrúum gæfist
kostur á að kynna sér, hvað hæft'
kynni að vera x ásökunum Sýr-
lendinga. Áður lýstu fulltrúar
Sovétríkjanna, Búlgariu og Malí
þvj yfir, að fregnirnar um loft-
árásir á Damaskus væru ógn
vekjandi, en Goldberg fulltrúi
Bandaríkjanna sagði, að liefðu
ísraelsmenn gert slíkar árásir
væri um alvarlegt brot á' vopna-
hléinu að ræða, sem ekki yrði
þolað, en hann mæltist til þess
að Öryggisráðið gengi jafnvel
fram í því að afla sér staðreynda
um árásir Sýrlendinga á ísraelsk
þorp við Genesaretsvatn.
Rússar rjiífa
stjórnmálasam-
band við írsael
Um hádegisbilið í gær tilkynntu Sovétríkin að þau hefðu slitið
stjórnmálasambandi við ísrael. Tass-fréttastofan skýrir svo frá, að
sendiherra ísrael í Moskvu hefði verið afhent orðsending, þar
sem því var haldið fram að ísrael bæri fulla ábyrgð á því að sam-
þykkt öryggisráðsins um vopnahlé hefði ekki verið virt. Hætti
ísraelsmenn ekki öllum hernaðaraðgerðum þegar í stað, segir á-
fram í orðsendingunni munu Sovétríkin og önnur friðelskandi ríki
taka upp refsiaðgerðir gegn ísrael með öllum þeim afleiðingum,
sem slíkt hafi.
Þörf fyrir 8000
íbúöir næstu 5 árin
í síðasta hefti af tímaritinu Iðnaðármál er birt niður-
staða áætlunar um íbúðaþörf næstu 5 árin, sem Efna-
hagsstofnunin hefur nýlokið við að semja í framhaldi
af ítarlegri skýrslu um íbúðabyggingar og húsnæðis-
þörf áranna 1950-1960. Er í áætluninni talið að íbúða-
þörf áranna 1967-71 nemi alls liðlega 8 þúsund
íbúðum.
í skýrslunni segir að til gnind-
vallar áætluninni liggi spá um
mannfjölda og tíðni nýrra lijóna
banda, og er sú spá gerð með
hliðsjón af reynslu áranna 1961
— 1965, Lágmarksþörf á húsnæði
er talin vera sú, að öll hjón geti
fengið íbúð, án þess að hlutfall
þeirra einstaklinga, sem hafa í-
búð til umráða, minnki frá því
sem áður var. Ástæða er talin til
að gera ráð fyrir því að hlutfall
einhleypinga með íbúð fari hækk-
andi, og er í áætluninni um hús-
næðisþörfina reiknað með tveim-
ur tilvikum. í fyrra tilvikinu er
gert ráð fyrir að hlutfallið hækki
um 1,3% á ári, sem er svipuð
hækkun og verð á árunum 1960—
1966. í síðara tilvikinu er reikn
að með að þetta hlutfall 'hækki
um 1%. Þá er einnig reiknað með
því að 0,6% allra íbúða verði tek-
ið úr notkun á ári hverju, og er
talið að vel sé séð fyrir endur-
nýjun húsnæðis með því að halda
því hlutfalli óbreyttu, þar sem
fjöldi íbúða hefur aukizt mjög og
meðalaldur íbúða. jaf.nframt lækk
að.
Samkvæmt fyrra tilvikinu er í-
búðaþörfin 1967 áætluö 1580 íbúð
ir, en 1483 samkvæmt síðara til-
vikinu; 1968 er þörfin áætluð 1681
íbúð samkvæmt fyrra tilvikinu, en
1580 samkvæmt hinu síðara. 1969
eru tölurnar 1717 og 1610, 1970
1856 og 1743 og 1971 er þörfin á-
ætluð 1784 eða 1668 eftir því með
hvoru einhleypingahlutfallinu er
reiknað. — Samtals gerir þetta
8.618 íbúðir samkvæmt fyrra til-
vikinu eða um 1725 íbúðir á ári
að meðaltali. Lætur nærri, að
samkvæmt þessu tilviki megi
reikna með að þörfin fyrir full-
gerðar íbúðir verði 1600 árið 1967,
1700 hvort áranna 1968 og 1969
og 1800 hvort áranna 1970 og
1971.
Samkvæmt síðara tilvikinu er
heildartaian áætluð 8.084 íbúðir
á öllu tímabilinu eða um 1615
íbúðir á ári að meðaltali. Sam-
kvæmt þessu tilviki lætur nærri
að byggja þurfi um 1500 íbúðir
1967, 1600 hvort áranna 1968 og
1969 og 1700 hvort áranna 1970 og
1971.
Níelsar P. Dungals-
fyrirlestur
Prófessor Carl Gustav Ahlström
frá háskólanum í Lundi flytur fyr
irlestur í hátíðasal Háskólans
I riffjudag 13. þ. m. kl. 17.15. Fyr-
irlesturinn nefnist Virus och cane
'er — den olösta gátan Er öllum
Iheimill aðgangur að fyrirlestri
þessum.
Prófessor Ahlström er prófess-
or í meinafræði við háskólann í
Lundi og er þekktur um Norður-
lönd og víðar fyrir rannsóknir sín
ar á krabbameini með sérstöku til
liti til veirurannsókna.
Sjóður til minningar um pró-
fessor Niels P. Dungal stendur
straum af heimsókn þessari. Er
áfoi-mað að bjóða erlendum vís-
indamönnum á sviði meináfi'æði
eða annarra greina læknisfræði
til fyrirlestra'halds við læknadeild
Háskóla íslands á komandi árunx
með tilstýrk þessa sjóðs."
(Frétt frá Háskóla íslands). 'j