Alþýðublaðið - 11.06.1967, Síða 16
...
Sigurður Ingimundarson,
Gylfi Þ. Gíslason,
Eggert G* Þorsteinsson,
Þeir skipa efstu sæti A-listans í Reykjavík
Gylfi Þ. Gíslason, menntamála- og við-
skiptamálaráðherra skipar efst'a sæti A-
Jistans í Reykjavík. Hann er fæddur 7.
febrúar 1917 og því rétt rúmlega fimmt-
ugur að aldri. Hann' er hagfræðingur að
menntun. Alþingismaður var hann kjör-
inn 1946 og hefur setið óslitið á þingi
síðan. Hann var menntamála- og iðnað-
armálaráðherra í vinstri stjórninni 1956
-1958, hann fór með menntamál, iðnað-
(armál og viðskiptamál í minnihlutastjórn
Alþýðuflokksins og frá því að Alþýðu-
flokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn
anynduðu ríkisstjórn 1959 hefur hann
farið með menntamál og viðskiptamál.
Hefur Gylfi því farið með stjóm ís-
lenzkra menntamála í rúman áratug, en
á því tímabili hafa orðið stórfelldar fram
farir í íslenzkum menntamálum. A því
tímabili sem Gylfi hefur farið með
stjórn viðskiptamálanna hafa orðið rót-
tækar breytingár á innflutningsverzlun,
höft afnumin og verzlunin gerð frjáls.
Eggert G. Þorsteinsson félagsmála- og
sjávarútvegsmálaráðherra skipar annað
sæti A-listans í Reykjavík. Hann er
fæddur 6. júlí 1925 og því tæplega 42ja
ára að aldri. Er hann yngstur ráðherr-
anna í ríkisstjórninni. Eggert er múrari
að menntun og á að baki sér langan feril
í verkalýðshreyfingunni. Var hann um
langt skeið formaður Múrarafélags
Reykjavíkur, sat á mörgum þingum Al-
þýðusambands íslands og um skeið í mið
stjórn Alþýðusambandsins. Hann var
fyrst kjörinn á þing árið 1953 og hefur
setið á þingi nær óslitið síðan. Félags-
mála- og sjávarútvegsmálaráðherra varð
hann 1965. Eggert var um langt skeið
formaður og skrifstofustjóri Húsnæðis-
málastjórnar og hefur hann mjög beitt
sér fyrir umbótum á sviði húsnæðismála-
Sigurður Ingimundarson alþingismiað-
ur skipar þriðja sæti A-listans í Reykja-
vík. Hann er fæddur 10. júlí 1913 og er
því tæplega 54 ára gamall. Hann er efna
fræðingur að menntun og hefur verið
kvennari í þeirri grein svo og í stærð-
fræði í ýmsum skólum í Reykjavík. Al-
þingismaður varð hann 1959 og hefur set
ið á þingi síðan. Sigurður hefur mikið
látið kjaramál opinberra starfsmanna til
sín taka. Var hann formaður Bandalags
starfsmanna ríkis og bæja 1956-1960,
en í stjórn bandalagsins sat hann um 10
ára skeið. Sigurður hefur sérstaklega
kynnt sér verkstjórn og vinnuhagræð-
ingu og er forstöðumaður verkstjórnar-
námskeiðanna. Hann hefur setið í mörg-
um nefndum fyrir Alþýðuflokkinn, eink
umi um skatta- og efnahagsmál. Hann er
einn af fulltrúum íslands í Norðurlanda
ráði.