Alþýðublaðið - 28.06.1967, Blaðsíða 2
Hámarkshraði
hækkaður
Borgarráð Reykjavíkur sam-
l»Skkti á fundi sínum í dag til-
löjíu umferðarnefndar um haekk-
ui| hámarkshraða á 15 götum í
Réykjavík úr 35 km/klst. í 45
kt t/klst.
Þessar götur eru: Ánanaust,
Bi irgartún, Grensásvegur Háaleit
is iraut, Hofsvallagata, Kleppsveg
ur, Kringlumýrarbraut, Langa-
hlíð, Laugarásvegur, Laugavegur
austan Nóatúns, Reykjavegur,
'Snorrabraut, Sóleyjargata, Suður
gata sunnan Hringbrautar og Ste-
ti%i.
Samkvæmt 46. gr lögreglusam
þykktar Reykjavíkur má á svæð-
inu vestan Elliðaánna eigi aka
hraðar en 35 km/klst., enda séu
umferðarskilyrði góð. Austan Ell
iðaánna má með sama skilorði
aka allt að 45 km/klst. Borgar
stjórn er þó heimilt að ákveða
annan hámarkshraða á einstökum
vegum.
Borgarstjórn Reykjavíkur hefur
áður samþykkt að leyfa 45 km.
hraða á eftirtöldum 6 götum.
Miklubraut frá Suðurlandsbraut
Framhald á 13. síðu.
IÁRSÞ1NG UNGTEMPLARA
HALDIÐ Á SIGLUFIRÐI
ÁRSÞING ísl. ungtemplara verð-
ur haldið á Siglufirði 30. júní til
2. júlí n. k. Jafnframt verður 9.
landsmót ísl. ungtemplara háð
þar dagana 1. og 2. júlí.
Dagskrá mótsins verður með
fjölbreyttu sniði. Mótið verður
eett e. h. á laugardaginn (1. júlí)
•og hefjast þá íþróttir. Þátttakend-
ur eru úr ungtemplarafélögum
víðsvegar að af landinu. Um kvöld
ið verður skemmtikvöld og dans
istiginn fram eftir nóttu.
Á sunnudaginn heldur mótið á-
fram. Árla morguns verður gengið
á Hólshyrnu, síðan verður fylkt
fliði og haldið til kirkju, þar sem
flilýtt verður á messu hj'á séra
Ragnari Fjalar Lárussyni. Síðari
hluta dagsins lýkur íþróttamótinu.
Um kvöldið verður kvöldvaka og i
varðeldur og er mótinu slitið um j
kvöldið.
Þátttakendur munu búa í tjald j
borg á meðan á mótinu stendur. j
Ungtemplarafélagið Hvönn á
Siglufirði hefur veg og vanda af
undirbúningi mótsins. Þetta er í
fyrsta sinn, sem landsmót ísl.
ungtemplara er Sialdið utan
Reykjavíkur.
Þeir ungtemplarar, sem enn
ekki hafa tilkynnt þátttöku, eru
beðnir að liafa samband við við-
komandi ungtemplarafélög sem
fyrst.
-«
Vel heppnub
skemmtiferð
ALÞÝÐUFLOKKSFÉLAG Reykja
víkur efndi til skemmtiferðar í
Þjórsárdal s. 1. sunnudag. Tóku
100 manns þátt í ferðinni og
tókst hún mjög vel í alla staði.
Veður var nokkuð gott og ánægja
rtkti meðal þátttakenda í förinni.
Ekið var í fyrstu austur á I>ing
völl og staðnæmzt á Lögbergi, en
4>ar flutti dr. Gunnlaugur Þórðar-
són stutt spjall um sögu staðarins.
Þá var ekið um Lyngdalsheiði að
Laugarvatni og snæddur þar 'há-
degisverður. Flutti Eggert G. Þor-
steinsson ráðherra stutta ræðu
undir borðum. Því næst var ekið
inn í Þjórs'árdal. Var farið að
Stöng og gamli bærinn þar skoð-
aður. Síðan var ekið að Gjá og
síðdegiskgffið drukkið þar. Að
lokum var (höfð stutt viðdvöl við
Hjálparfoss, en síðan ekið heim-
leiðis.
Fararstjórar voru þeir Sigurð-
ur M. Helgason og Emanúel Mor-
thens, en leiðsögumaður var dr.
Gunnlaugur Þórðarson. Var fólk-
ið mjög ánægt með ferðina og
eru þessar sumarferðir nú orðnar
fastur liður í starfi Alþýðuflokks-
félags Reykjavíkur.
Á efstu myndinni sjást fararstjórarnir tveir og formaður og ritari
Alþýðuflokksfélagsins framan við Hótel Valhöll. Frá vinstri: Björg.
vin Guðmundsson, Sigurður Helgason, Emanúel Morthens og Am-
hjörn Kristinsson.
’ Miðmyndin er af hópnum við snæðing í Gjá í Þjórsárdal.
Neðsta myndin er af yngstu þátttakendunum í ferðinni, börnum
Arnbjarnar Kristinssonar, og með þeim er Eggert G. Þorsteinsson fé-
Iagsmálaráðherra.
IIBÍÍSI
■'■•' :. •
2 28. júní 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ