Alþýðublaðið - 28.06.1967, Page 4
Rltstjórl: Benedikfc &öndak Símar 14300—14903» — Auglýsingasfmi:
14906.— Aðseturr AljfcWuhúsið'viff' HverfiSgötUv Rvik. — Prentsmiðja
Alþýðublaðsins. Sfmir4905. - Áskriítargjald kr. 105.00» — t lausa*
sölil kr. 7.00' eintakið. — Útgefandi: Alþýðuflokkurlnn.
Stjórnarsamstarfið
TÍMINN birti í gær stutta ritstjórnargrein, sem
ber fyrirsögnina „Ráðherrarnir semja“. Þessi grein
er athyglisverð að því leyti, að í henni er hvert orð
ósatt, og gegnir furðu að slík ritsmíð skuli vera birt.
Efni greinarinnar er það, 'að ráðherrar hafi undan-
farna daga samið um áframhaldandi stjórnarsam-
starf og miðstjórnarfundir verið kallaðir saman í
stjórnarflokkunum til að segja já og amen.
Sannleikurinn er sá, að samningar milli Alþýðu-
floklcsins og Sjálfstæðisflokksins um áframhaldandi
stjórnarsamstai*f eru ekki hafnir. Miðstjórn Alþýðu-
flokksins, sem kom saman til fundar á mánudag,
fjallaði um þann málefnagrundvöll, sem flokkurinn
mun byggja á í væntanlegum viðræðum, og kaus
menn til þess að taka þátt í þeim viðræðum fyrir
flokksins hönd. Lengra er þetta mál ekki komið.
Sjónvarpið
ÍSLENZKA SJÓNVARPIÐ fer nú í sumarleyfi og
fellur starfsemi þess niður á meðan. Nokkrum dög-
um verður bætt við til þess að vinna að uppsetningu
nýrra tækja, sem er ólokið. Hingað til hefur að veru-
legu leyti verið notazt við lánstæki til bráðabirgða,
en nú verða tekin í notkun ný tæki, sem Ríkisút-
varpið hefur keypt og verða til frambúðar.
Það virðist vera einróma álit landsmanna, að sjón-
'Varpið hafi tekizt vel. Hefur þjóðinni þarmeð bætzt
nýr miðill, sem mun hafa mikla félagslega þýðingu
I framtíðinni. Efast nú enginn um, að rétt hafi verið
að koma þessari starfsemi á fót, enda þótt tekið hafi
heilan áratug að yfirvinna andstöðu, tregðu og ýmsa
aðrar erfiðleika, sem voru í vegi sjónvarpsins.
Ætlunin er að hefja sjónvarp sex daga vikunnar
með haustinu, en til þess mun þurfa einhverja aukn-
ingu á starfsliði. Hefur alla tíð verið að því stefnt
að sjónvarpa a.m.k. sex daga og er sjálfsagt að gera
það eins fljótt og’ unnt er. Verður þá unnt að auka
fjölbreytni þess efnis, sem sjónvarpað verður. Verða
■meðal annars gerðar fyrstu tilraunir með tungumála-
kennslu síðar í haust, en kennslusviðið má enn heita
ónumið land í sjówvarpi okkar. Verður þó ekki ef-
azt um, r.ð þar eru miklir möguleikar.
Jafnframt tæknilegum framförum á síðustu árum
hefur orðið stórfelld breyting á starfsemi Ríkisút-
varpsins, og felst hún í því, að dagskrá hljóðvarps
og síónvarns er mun frjálsari og opnari fyrir stefn-
um og straumum samtíðarinnar en áður var. Þótt
•einhver víxlsnor verði án efa stigin á þeirri braut,
er hér um að ræða mjög þýðingarmikla þróun, sem
sjálfsagt er að haldi áfram í framtíðinni.
4 28. júní 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Fasteignir
Fastelgnasalan
Hátúnl 4 Á, Nóatúnshöst*
Síml 21870.
ÍJrval fastelgrna v!8 allm
tuefl.
HUmar Valdimarsson.
fastelgnaviðsklptt
Jðn BJamason
hœstaréttarlögmaðnr.
AUGLÝSIÐ
í Alþýðublaðinu
Höfum jafnan til sölu
fislciskip af flestum stærðum.
Upplýsingar í síma 18105 og ó
skrifstofunni, Hafnarstræti 19.
FASTEIGNAVIÐSKIPTI :
BJÖRGVIN JÖNSSON
Hverfisgötu 18.
Simar 14150 og 14160
Kvöldsíml 40960.
íbúðir í úrvali
Fasteignaviðsklpti
Gísli G. Ísleiísson
hæstaréttarlögmaður.
Jón L. Bjarnason
Til sölu
Höfum ávallt til sölu úr-
val íbúða af flestum
stáerðum og gerðum,
ýmist fullbúnum eða í
smíðum.
AUST'JRSTRÆTI 17 4. HÆP ■ SiMi: ÚJ6fe
FASTEIGNAVAL
Húi 03 Ibúölr við ollia hœll V lll II tl "í ” 1 V 11,1111 r 1111111 Q >J| 7**1 rb olllll 11
rVvVvVvXV
Sbólavöröustíg 3A. — DL hse8,
Símar 22911 og 19255.
HÖFUM ávallt til sölu úrval af
2ja-6 herb, íbúðum, einbýllsháa-
um og raðhúsum, fullgerðum og
í smíðum í Reykjavík, Kópa-
vogi, Seltjarnamesi, Garðahreppi
og víðar. Vinsamlegast hafið sam
band við skrifstofu vora, ef þér
ætliff að kaupa eða selja fastelgn
ir
JÓN ARASON hdl.
Sölumaffur fasteigna:
Torfi Ásgeirsson
Kvöldsími 20037.
SERVÍETTU-
PRENTUN
SÍMI 32-101.
Ofnkranar,
Tengikranar,
Slöngukranar,
Blöndunartæki.
Burstatell
byggingavöruverzlun
Réttarholtsvegi S.
Síml 3 88 40
FASTEIGNA
SKRIFSTOFAN
SKÍÐASKÓLINN í KERLINGAR-
FJÖLLUM.
Skíðaskólinn í Kerlingarfjöllum
hefur sannað tilverurétt sinn fullkomlega. Hann
var stofnaður sumarið 1961 og mun Valdimar Örn-
ólfsson íþróttakennari hafa þar átt drýgstan hlut
að máli, en Ferðafélag íslands lagði til húsnæðið
fyrir starfsemina, sæluhúsið undir Árskarðsfjalli.
Aðsókn var þegar mikil að skól-
anum. í fyrstu voru námskeiðin aðeins tvö, síðan
hefur skólinn verið starfræktur á hverju sumri
við vaxandi vinsældir og þátttöku og að þessu
sinni, í sjöunda skiptið, eru fyrirhuguð tíu nám-
skeið. Sýnir þetta glöggt, hvað þessari íþróttanýj-
ung hefur verið vel tekið.
Forráðamenn skíðaskólans hafa
nú komið upp tveimur skálum fyrir sl'arfsemina
og ýmislegt fleira hefur verið gert til að bæta
aðstöðu skíðafólksins og fleira mun á döfinni.
LOFSVERT FRAMTAK.
Kerlingarfjöll hafa upp á margt
að bjóða. Skíðaland er þar framúrskarandi gott,
nægur snjór fram á haust, og veðurfar yfirleitt
hagstætt eins og víðar inni á hálendinu. En auk
þess er náttúrufegurð þar mikil og fjölbreytt. Ó-
víða getur jafn glæsilega fjallaþyrpingu eins og
Kerlingarfjöll, enda iðka nemendur skólans jafn-
framt fjallgöngur og náttúruskoðun í ríkum mæli,
og sér skólinn þeim, sem þess óska, fyrir fylgd
og leiðsögu um fjöllin.
Framtak Valdimars Örnólfssonar
og annarra, sem hér hafa átt hlut að máli, er
lofsvert og eitt af því ánægjulegasta, sem gerzt
hefur í íþróttamálum okkar síðustu árin, að öðru
ólöstuðu. Er ekki að efa, að þessi starfsemi á mikla
framtíð fyrir höndum, ef vel verður á málum hald-
ið. Traustur grundvöllur hefur þegar verið lagður
og byrjunarörðugleikarnir úr sögunni. Árlega nýt-
ur nú fjöldi fólks hollrar útivistar í skíðaskólanum
í Kerlingarf jöllum um leið og það iðkar hina prýði-
legu skíðaíþrótt undir leiðsögn færustu manna i
þeirri grein og eykur kunnáttu sina. — Stemn.
Askriftasími Alþýðublaðsins er 14900