Alþýðublaðið - 29.06.1967, Page 2
Maður drukknar
síldarmiðunum
ÆVAR Ilólmg-eirsson, 25 ára skip-
verjf á Signrborgu frá Siglufirði
fór íit með nótinni á Austfjarða-
iniðtim og drukknaði. — Sjópróf
fóru fram á Seyðisfirði í fyrra-
kvöia.
í ijóprófum kom fram, að síld-
veiðfskipið Sigurborg frá Siglu-
firðr hafði verið að veðum 69 gr.
36 mín. n. ,br. og 6 gr. 38 mín.
v. 1. eða um 300 mílur í NA frá
Seyfjsfirði kl. 23,50 tþann 25. júní.
Vérið var að kasta nótinni og
var |iún að renna út, er bugur á
han|fæti lendir utan um fót á
Ævaí'i Hólmgeirssyni frá Flatey
ú Skjálfanda og dregst bann út
með; nótinni. Ráðstafanir eru þeg
ar gfcrðar til að ná nótinni upp og
líða‘ ekki nema l — V/2 mínúta
Hænsni far-
ast í bruna
UM 600 hænsni brunnu inni, er
líænsna/bú brann á M/fðsaíndi £•
Hvaífirði í fyrrinótt.
Kl. 4,30 var slökkviliðið á Akra
nesi' kvatt að bænum Miðhúsum í
Sandaþorpi í Hvaifirði, þar sem
kviknað hafði í hænsnahúsi Finns
Eyjólfssonar, lögreglumanns, sem
þama starfar. Mikill eldur var
þá í búinu, sem er í gömlum úti-
húsum með steinsteyptum veggj-
um, — Starfslið hvalstöðvarinnar
hafði þá reynt að hefta útbreiðslu
éldsins í um hálfa klst. Tókst að
verja íbúðarhúsið, en hænsnahús-
ið féll og drápust allar hænurnar
utan ein. Akranesliðið slökkti í
rústunum.
Veður var stilit og má þakka
því, að hægt var að bjarga íbúð-
arhúsinu, sem þó skemmdist eitt-
hvað af vatni. Húsin voni lágt
vátryggð.
«!
«»
t
Bridgespilarar
|i Á fimmtudögum er spilað í(
I * læknahúsinu við Egrilsgötu. — J
]»ÖUum heimil þátttaka.
Bridge-samband Islauds.
GJAFABRÉF
PRÍ CUHDLAUOflRSJÓDl
SKALATllHSHEiMILIStHB
STTA BRÉF ER KVITTUN, EN t»Ó MIKLU
REMUR VIDURKENNING FYRIR STUÐN-
ING VID GOTT MÁLEFNI.
ntrxjAtlK. p. n.
r> fiiifi 1 xin ijiri nífnr i>■ i■gnrf—
þar til Ævciri skýtur upp aftur,
samstundis stingur skipsfélqgi,
hans, Þórður Ársælsson, sér og
nær taki á honum, en Ævar er
þá meðvitundarlaus og þyngist
svo, að Þórður, sem var orðinn
mjög þrekaður vegna sjávarkulda,
fær ekki haldið honum uppi. Þórð
ur er þá að þrotum kominn, en
skipsfélagi haris, Sverrir Jónsson,
stekkur útbyrðis og syndir með
bjarghring til hans og mátti ekki
tæpara standa. Eru þeir síðan
báðir dregnir um borð. Skipið lón
aði 2—3 klst. á þessum slóðum og
leitaði Ævars, en sú leit bar ekki
árangur.
Veður var gott á þessum slóð-
um, VNV andvari og sléttur sjór,
en sjávarkuldi mikill, 2—3 gr.,
lofthiti 6 gr. og gott skyggni.
Surtseyjarrá
stefnunni iokið
RÁÐSTEFNU þeirri um rannsókn
ir í Surtsey, sem staðið hefur yf-
ir undanfarna daga, lauk síðdegis
í gær. Þáittakendur voru á milli
80 og 90, þar af um 40 erlendir
vísindamenn, einkiun bandarísk-
ir.
í gær voru iagðar fram og
ræddar tillögur einstakra vinnu-
hópa, sem höfðu unnið að gerð
tillagna um framtíðarskipulag
Surtseyjarrannsókna, en síðan
var ráðstefnunni slitið láust eftir
kl. 17.
Blaðið náði tali af Guðmundi
Kjartanssyni, jarðfræðingi, og
bað hann að segja í stuttu máli
frá tillögum þess vinnuhóps, sem
fjallaði um jarðfræði, jarðefna-
og jarðeðlisfræði.
Hann sagði, að m. a. hefði verið
lagt til, að rannsakað yrði brot
á eyjunni, efnasamsetning ösk-
unnar og breytingar á henni,
botninn umhverfis eyjuna og
framkvæmdar boranir til að
kanna innri gerð hennar. Þá var
einnig lagt til, að rannsakaðar
yrðu ummyndanir bergs á jarð-
hitasvæðum íslands. Einnig er
lagt til, að framkvæmdar verði
margvísiegar mælingar í og uuh
'hverfis Surtsey og að á íslandi
verði látnar fara fram djúpboran-
ir niður á svokallað þriðja lag til
að kanna jarðlagsskipun undir
iandinu.
Sturla Friðriksson, lífeðlisfræð-
ingur, lét blaðinu í té upplýsing-
ar um tillögur þess vinnúhóps,
sem gerði tillögur um framhalds-
rannsóknir í líffræði.
Ræddur var þáttur smálífvera í
uppbyggingu jarðvegs, og áherzla
lögð á að athuga skuli þátt þeirra
í að brjóta niður jarðvegsefni.
Mosar og skófir hafa enn ekki
numið land á Surtsey, en þegar
þar að kemur er nauðsynlegt að
bera saman vöxt þeirra þar og
annars staðar, þar sem þær hafa
fest rætur í hrauni, eins og t. d.
við Heklu. Haldið verði áfram að
rannsaka hvað fuglar beri af æðri
jurtum til Surtseyjar. Ný jurt hef-
ur borizt til eyjunnar, fjöruarfi,
en áður höfðu fundizt þar fjöru-
kál og melgresi. — Jurtir þessar
hafa vaxið af fræjum, sem borizt
hafa á sjó til eyjunnar.
Þá er hvatt til þess að athuga
vel þátt fugla í að bera fræ og
skordýr (il eyjunnar og fylgzt
með ferðum farfugla, sem kyrinu
að verpa á eyjunni. Að lokum m'á
geta þess, að talin var nauð-
syn á að auka allar veðurathug-
anir við Srutsey.
Hinir erlendu vísindamenn,
sem þátt tóku í ráðstefnunni
héldu flestir heim á leið í nótt.
Brúarfossi
Slökkviliðið var í gær
kvatt aff e. s. Brúarfossi,
en kviknaff hafffi í pok-
um í lest skipsins út frá
rafsuffuneista. Skemmdir
urffu engar.
Prestastefnu Eokið
PRESTASTEFNU íslands lauk á
miðvikudaginn var. — Aðalmál
prestastefnunnar var, eins og áð-
ur hefur komið fram, endurskoð-
un Helgisiðabókar. Biskupinn, hr.
Sigurbjörn Einarsson, flutti fram
söguerindi um þetta efni, að lok-
inni ársskýrslu sinni. Síðan var
málið rætt af prestum landsins í
sex umræðuhópum. Síðan var.unn
ið úr niðurstöðum umræðuhóp-
anna í nefnd, sem síðan lagði
tvær eftirfarandi ályktanir fyrir
prestastefnuna, sem báðar voru
samþykktar:
„Við endurskoðun Helgisiðabók
arinnar skal prestum og söfnuð-
um gefinn kostur á því að velja
um messuna eins og hún nú tíðk-
ast, bæði í lengri gerðinni frá
1934 og hinni styttri frá 1910, 03
fornlútherska messu, sem er upp-
byggð af hinum ýmsu þáttum, er
henni tilheyra".
Og í öðru lagi:
Framhald á 15. síðu. t
Flj úga heldur med
færeyska félagiuu
LOGMABUR Færeyja, Peter
Mohr Dan, hefur lagt til aff
landssjóður Færeyja leggi
fram 1,4 millj- danskar kr. í
flugfélagiff Flugsamband, sem
á að taka við starfsemi dansk-
fíffreyska flugfélagsins Faroe
Airways. Einstaklingar og fyr-
irtæki hafa þegar lagt fram
700 þúsund krónur í Flugsam-
bandiff og verffi viffbótarfram-
lag landssjóffsins samþykkt,
ætti hlff nýja félag að geta tek-
iff viff starfsemi hins félagsins,
sem hefur haldiff uppi áætl-
unarflugi milli Fætreyja ogr
Kaupmannaliafnar í rixm þrjú
ár. Faroe Airways liefur hins
vegar ekki leyfi til flugsins
nema tll 1. apríl 1968, þar eff
SAS hefur ákveffiff aff nota for
réttindí sín til innanlandsflugs
á Norðurlöndum, en flugleiff-
in Þórshöfn—Færeyjar telst
innanlandsleiff í Danmörku.
Danska blaðiff Aktuelt, sem
skýrir frá þessu, segir ennfrem
ur, aff Færeyingar hafi aff und
anförnu flogið m-jög mikiff meff
Faroe Airways, en þaff flýgur
ásamt Flugfélagi íslands þessa
Ieiff nú. Sé litiff á þaff sem
viljayfirlýsingu Færeyinga um
aff þeir vilji aff færeyskir aff-
ilar annist Færeyijaflug, en
ckki útlendingar.
«
2 29. júní 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ