Alþýðublaðið - 14.09.1967, Blaðsíða 6
Grant tilbað litlu dóttur sína, Jennifer. Nú býr hún með móður sinni og barpnherbereið í stó>,a í>ús.
inu í Beverly Hills er autt.
HIN
MIKLA
SORG
GARY
GRANTS
ÞAÐ var 6. janúar í ár. Gary
Grant var á' heimili sínu í Bever-
ly Hills ásamt konu sinni og 11
mánaða dóttur. Ekkert virtist
vera öðru vísi en venjulega, þar
til allt í einu að Dyan kona hans
stóð upp, fór upp og safnaði
saman nokkrum pjönkum sínum,
tók síðan dótturina á arminn og
sagðist vera farin. — Ég er enn
ung; sagði hún. Nú ætla ég að
fara mína leið og kem ekki aft-
ur. Ég tek Jennifer með mér —
hún verður hjá mér. Ég leita til
hæstaréttar, ef með þarf — þú
skalt ekki taka hana frá mér.
Síðan hefur Dyan búið hjá
foreldrum sínum með Jennifer,
og Grant er aftur einn í stóra,
fína húsinu sínu, þar sem barna-
herbergið stendur nú autt.
Dyan Cannon og Cary Grant
giftu sig í Nevada í júlí 1965.
Þá var hún 26 ára og hann 61,
og þegar svo Dyan sagði honum
að hún ætti von. á barni, varð
gleði hans takmarkalaus. Margir
jafnaldrar Grants voru þegar
orðnir afar, en Grant hafði aldr-
ei orðið faðir, þrátt fyrir mörg
hjónabönd.
Jennifer fæddist svo tveimur
mánuðum fyrir tímann og þurfti
að vera í hitakassa á spítalanum
fyrstu tvo mánuðina. Og sagt er,
að þá mánuði hafi Grant elzt
meira en í nokkurn annan tíma.
Og svo þegar barnið kom heim,
var Grant alveg húgfanginn af
því. Hann mátti ekki heyra í
því án þess að hlaupa til og
hugga það og hann tók upp á
segulband, þegar telpan grét eðá
bablaði. Og hann talaði ekki iim
annað en telpuna, og hann
sneiddi hjá gömlum vinum til að
geta verið sem mest heima hjá
henni.
Það var því mikið áfall fyrír
hann, þegar konan hijóp frá hon-
um og tók þennan augastein hans
með sér. Og hver var svo ástæðan
fyrir skilnaðinum? 33 ára aldurs-
munur? Það er nokkuð mikið,
jafnvel þó að Grant sé myndar-
legur.
á
★ DAPURLEG ÆSKA.
Það hefur einhvern veginn
alltaf viljað svo til í lífi Gary
Grants, að þær konur, sem hann
hefur elskað mest, hafa yfirgef-
ið hann skyndilega.
Það var fyrst móðir hans, El-
sie Kingdom og það var fyrir 54
árum. Þá hét Gary enn þá Archi-
bald Leach. Hann var níu ára
gamall og gekk í slcóla í fæðing-
arborg sinni, Bristol í Englandi.
Dag nokkurn kom hann heim úr
skólanum og kom að dyrunum
heima hjá sér harðlæstum. Hann
varð hræddur og barði á dymar
og hrópaði og grét. En enginn
opnaði. Honum varð kalt, þar
sem hann hímdi fyrir utan og
varð að bíða til kvölds, er faðir
hans kom heim úr vinnunni.
Móðir hans hafði hlaupið að
heiman. Það var skýrt á þann
veg, að hún þjáðlst af þunglyndi
vegna þess að eldrí sonur henn-
ar dó á meðan hún sjálf svaf og
fyrir það ásakaði hún sjálfa sig.
Það liðu 20 ár, þar til Archie
hitti móður sína aftur. Hún var
þá sjúklingur á hæli. Nú er Elsie
90 ára að aldri og býr í Bristol,
í húsi, sem sonur hennar hefur
gefið henni. Hún notar mest af
þeim peningum, sem hann gefur
henni mánaðarlega til að kaupa
gamla muni og það er sagt að
hún sé svo dugleg að „prútta”,
að fornsalarnir hafi engin ráð
við því.
En það er ekki hægt að segja,
að Archibald hafi átt gleðiríka
bernsku, foreldrunum kom illa
saman, heimilið var lítið og fá-
tæklegt og alltaf vantaði peninga.
Annars fékk hann mjög strangt
uppeldi. Faðir hans var „ekta”
Englendingur og áleit það mikil-
vægast af öllu, að öllum reglum
væri fylgt. Archie varð alltaf að
sitja þrjáðbeinn í baki og með
fætur saman. Hann mátti aldrei
tala til neins að fyrra bragði og
það eina, sem hann mátti svara
var ,,já, þakk fyrir og nei, þakk
fyrir.”
★ HRÆDDUR VIÐ
KONUR.
Foreldrarnir gleymdu heldur
aldrei að minna hann á, Iiversu
fátæk þau voru. — Mundu að
peningar vaxa ekki á trjám, var
eftirlætismáltæki móður hans.
Á sínupi glæsilega leikferli
hefur Grant unnið sér inn millj-
ónir dollara, en hann hefur allt-
af kunnað með peninga að fara.
Hann hefur aldrei fengið lán-
aða peninga hjá neinum og hef-
ur alltaf haft nákvæmt yfirlit
yfir heimilispeningana, sem
hann hefur látið konur sínar
hafa. Því sama gegnir um mat.
Hann skilur aldrei eftir bita á
diskinum sínum og hann kærir
Hér sézt f jölskyldan, er allt lék í lyndi.
S 11 september 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ