Alþýðublaðið - 08.10.1967, Síða 7
Sunnudags Alþýðublaff — 8. október 1987
7
Leifs - athöfn
l kl. 2 í dag
fMINNING Leifs Eiríkssonar
fer fram við styttu Iians á
iSkólavörðuholti kl. 2 í dag.
^Eru nú liðin 35 ár, síðan
an var afhjúpuð, en hún hefur
æ síðan verið hin mesta borg-
arprýði.
í dag mun Lúðrasveit
Reykjavíkur leika og Karlakór
Reykjavíkur syngja. Þá munu
þeir flytja ávörp Geir Hall-
grímsson borgarstjóri og Karl
Rolvág ambassador.
Nokkur togstreita hefur ver
ið um Leif hin síðustu ár, og
þurfa íslendingar nú að nýna
umhyggju sína fyrir hinni
fornu hetju með því að
menna á Skólavörðuholt,
Nýtt tímarit
á ensku gefið
út í Reykjavík
Nýlega hóf nýtt tímarit göngu
sína hér í Reykjavík. Nefnist það
,,65°“ og er þar átt við 65. breidd
arbauginn, sem liggur um miðbik
islands. Hið nýja rit er skráð á
ensku og einkum stefnt til útlend
inga búsettra á íslandi, íslendinga
búsettra erlendis og manna út um ,
allan heim, sem áhuga hafa á ís-
landi og íslenzkum málefnum.
Útgefandi og ritstjóri hins nýja
tímarits er Amalía Líndal, en aðr
ir, sem starfa við það eru: Ásgeir
Þ. Ásgeirsson, Erlingur Sigurðs-
son og Calum Campbell.
Efni ritsins er mjög fjölbreytt,
enda er því ætlað, að fjalla um
öll hugsanleg islenzk málefni á
sem víðustum grundvelli. Tímirit
ið mun jafnan standa opið þeim,
sem vilja koma fram einhverjúm
skoðunum og hugmyndum um ís-
land.
65° mun koma út 4 sinnum á
ári og er áskriftargjald á ári 250
krónur.
Tólf bindi
af Kulturhist-
orisk Leksikon
Út er komið 12. bindi Kultur-
historisk leksikon for nordisk
middelalder, mikið rit að vöxt-
um eins og hin fyrri, og nær til
stafanna m-o, uppsláttarorðanna
mottaker-orlogsskib. Ritið er sem
kunnugt er samið af norrænum
fræðimönnum í sameiningu og
gefið út af forlögum á öllum lönd
unum. Hér á landi er Bókaverzl-
un ísafoldar aðili að útgáfunni,
en ritnefnd skipa af íslands hálfu
Jakob Benediktsson, Kristján Eld
járn, Magnús Már Lárusson, Ár-
mann Snævarr og Einar Ól.
Sveinsson, en þeir Jakob og Magn
ús Már eru ritstjórar af íslands
hálfu. Af íslenzku efni í þessu
bindi má nefna af handahófi
greinar um Njáls sögu eftir
Bjarna Guðnason, Ólafs sögu
Frh. á 14. síðu.
Miðstjórn ASÍ segir:
UMSAMIÐ KAUP
MÁ EKKI SKERÐA
Að loknum umræðum í mið-
stjórn Alþýðusambands ís-
lands hinn 6. þ.m. var eftirfar
andi ályktun samþykkt sam-
hljóða:
,,Vegna þráláts umtals ráða
manna þjóðarinnar um, að al-
menningur verði nú að taka á
sig auknar. byrðar vegna minnk
andi greiðslugetu ríkissjóðs og
vanda, er steðji að útfiutnings
atvimiuvegum þjóðarinnar, vi.i
miðstjórn Alþýðusambandsins
lýsa því yfir, að hún telur ekki
koma til n:ála, að þessum
vanda verði mætt með því að
skerða umsamið kaup al-
mennra launþega cða kaup-
mátt tímakaupsins frá því sem
nú er. Slíkum ráðstöfunum
mundi verkalýðshreyfingin
ekki una, hún stefnir þvert á
móti að því, að dagvinnutekj-
ur verði hækkaðar, svo að þær
standi undir mannsæmandi
kjörum.
Sökum samdráttar á mörg-
unt sviðum atvinnulífsins, hef- ;
ur verkafólk víða um land þeg j
ar orðið fyrir kjaraskerðingu ■
vegna minnkandi atvinnu, og
allt útlit fyrir, að sú þróun
haldi áfram, verði ekkert að
gert. Fyrir því skorar mið- |
stj. Alþýðubandalagsins á rík ?
isst,;órn og Alþingi að gera nú
þegar ráðstafanir til að
tryggja fulla atvinnu hvar- j
vetna í landinu“.
Sveinn Björnsson opnaði í gær málverkasýningu í Bcgasalnum og sýrir þar 23 olíumálverk, sem öll
cru til sölu. Sveinn he.fur lialdið margar sjálfstæðar -ýnir.g'sr hér á landi og sýndi í fyrra í Danmörku
og hlaut góða dóma. „Ég læri á að sýna, sagði Svci n,” þá ré ég myndirnar betur.
og hlaut góða dóma. „Ég læri á að sýna, sagði Sve' in”, þá sé ég myndirnar betur. Sýning Sveins Björns
sonar er opin daglega frá kl. 14—22 og verður op ,n út bessa viku. Mynd. Sveinn Björnsson við eitt
verka sinna.
GJAFABRÉF
PR£ SO NDLAUCARS JÓOI
6K ALATÚNSHEIMH.ISIN*
*ETTA 3RÉF ER KVITTUN, EN PÓ MIKIU
FREMUR VIÐ'JRKENNING FYRIR STUÐN-
ING VíD GOTT MÁLEFKI.
urxuvW.' *■ »
t.k. UVmUntJ I li
K*.___________
AUGLÝSIÐ
í Alþýðublaðinu