Alþýðublaðið - 08.10.1967, Blaðsíða 8
8
- segir Arnbjörn Kristinsson forstjóri Setbergs
• AÐ HAUSTAR — og nálgast
blessuð jólin. Þá íara að koma
út bækur: mánuðina október til
desember kemur út um það bil
80% af bókaútgáfu ársins. — Áður
en svo langt er komið væri fróð-
legt að kynnast viðhorfum ein-
hverra þeirra sem höndla á þess-
um markaði, en langflestir ísl.
bókaútgefendur einskorða útgáfu
sína við haustmánuðina sem
kunnugt er. Þar á meðal Setberg,
sem gefur út um 20 bækur á ári.
Arnbjörn Kristinsson eigandi Set-
bergs hefur all-langa reynslu af
bókaútgáfu og ákveðnar skoðanir á
högum og stöðu ísienzkrar bóka-
útgáfu í dag; hann var fús til aö
segja undan og ofan af þeim í
samtali við Alþýðublaðið.
)
pplag íslenzkra bóka nú í ár
er svo sem 500—800 eintökum
minna en var fyrir 10 árum síð-
an, og upplögin hafa minnkað ár
frá ári, sagði Arnbjörn í upphafi.
Það er sania hvers konar bækur
eru; þetta á við alla flokka jafnt.
Þetta stafar þó ekki af því að
fleiri bækur séu gefnar út nú en
áður. Bókafjöldinn sem gefinn er
út árlega hefur verið hinn sami
að kalla í mörg ár, — um það bil
350 bækur ef ýmis konar smárit
og ritlingar eru talin frá. En þá
eru meðtaldar bæði kennslubæk-
ur og barnabækur sem munu
vera svo sem 70—80 á ári. Með
öðrum orðum: íslenzkur bóka-
markaður minnkar jafnt og þétt,
þetta er reglubundin þróun sem
hver bókaútgef. gerir sér grein
fyrir. Ekki nóg með að upplögin
minnki ár frá ári. Þetta gerist á
sama tíma og fólki stórfjölgar í
landinu — þó lesendum bóka virð-
ist ekki fjölga að sama skapi.
Skýringar á þessu þarf ekki að
leita langt. Almenningur býr við
langan vinnudag hér á landi, og
bóklestur keppir við hvers konar
afþreyingu aðra um frístundir
manna. Kvikmyndahús og leikhús
taka sinn tíma, og öll fjölmiðl-
unin. Hér eru gefin út fimm
dagblöð eins og í milljónaborg-
um erlendis, og af pólitískum á-
stæðum er unnt að reka fjögur
þeirra með halla sem nemur 1 — 4
milljónum króna árlega; og út-
varp og sjónvarp fara sívaxandi.
Þetta eru allt risavaxin fyrirtæki
á okkar mælikvarða. Og menn
lesa ekki bækur meðan þeir eru
að pæla i gegnum dagblöðin,
hlusta á útvarp, horfa á sjón-
varpið. En ég vil taka það fram
að mér finnst ríkisútvarpið hafa
gert mikið fyrir íslenzkar bækur
og bókaútgáfu. Sjónvarpið gæti
áreiðanlega gert svipað gagn og
mun gera það ef því er ætlað að
gegna menningarhlutverki í
landinu. En þar eiga bókmenntir
enn sem komið er ónumið land.
B
ókaútgáfa stendur í stað að
bókatölunni til. Upplög bóka
minnka til muna. Og bóksala
gengur upp og ofan. Meðan ein
bók rennur út í búðunum lítur
enginn við annarri. Arnbjörn
Krisfinsson tilfærir eftirfarandi
dæmi úr sínu eigin útgáfustarfi;
bækurnar sem hér segir frá hafa
allar komið út hjá Setbergi á
undanförnum fjórum árum:
1) Þrjár íslenzkar ævisögur. I
er prentuð í 3000 eintökum, 2560
eintökum dreift til bóksala, og
seljast af henni 2109 eintök í
fyrstu lotu, þ.e.a.s. jólasölunni
árið sem hún kom út. II er einn-
ig prentuð í 3000 eintökum,
dreift 1872, og seld 1207 eintök
í fyrstu lotu. III er prentuð í 2500
eintökum, dreift 1230, seld 595
eintök.
2) Þrjár frumsamdar íslenzk-
ar bækur. Bók um sjómennsku og
sjómannalíf: prentuð 3100 ein-
tök, dreift 2485, seld 2215 ein-
tök í fyrstu lotu. Ritgerðasafn:
prentuð 1350, dreift 770, seld 430
eintök. Samtalabók: prentuð 2100,
dreift 1940, seld 1522 eintök.
3) Þrjár skáldsögur. Frum-
samin íslenzk skáldsaga: prentuð
1950, dreift 955, seld 490 eintök
í fyrstu lotu. Þýdd alvarleg skáld-
saga: prentuð 1900 eintök, dreift
1440, seld 935. Þýddur léttur róm-
an: prentuð 2100, dreift 1965,
seld 1610 eintök.
4) Sex barna og unglingabæk-
ur. Frumsamin íslenzk drengja-
bók: prentuð 2000 eintök, dreift
1570, seld í fyrstu lotu 1030 ein-
tök. Þýdd drengjabók: prentuð
2200, dreift 1900, seld 1382 ein-
tök. Frumsamin stúlknabók:
prentuð 2100 eintök, dreift 1770,
seld 1254. Þýdd stúlknabók:
prentuð 2450, dreift 2300, seld
1720 eintök. Frumsamin smá-
barnabók: prentuð 1800, dreift
1150, seld 880 eintök. Þýdd smá-
barnabók: prentuð 2500, dreift
1700, seld 1190 eintök.
Til hliðsjónar við þessar tölur
er fróðlegt að gera sér grein fyr-
ir útgáfukostnaði bóka. Hér verð-
ur lýst kostnaði. við frumsamda
íslenzka bók, sem út kom hjá
Setbergi einhverntíma á síðustu
fjórum árum. Þess ber að geta
að bókin var allvönduð og með
tiltölulega miklum myndakosti
sem að sjálfsögðu kemur fram í
kostnaði og verði bókarinnar, en
með fyrirvara fyrir þeim kostn-
aðarauka má ætla að svipuð hlut-
föll gildi um útgáfukostnað ai-
mennt og þessa bók. Ennfremur
ber að gæta að því að Setberg
rekur eigin prentsmiðju og
reiknar því setningu og prentun
bókarinnar á kostnaðarverði.
Þessi kostnaðarliður mundi
hækka um svo sem 40 þúsund
krónur væri setning og prentun
keypt af öðru fyrirtæki.
En útgáfukostnaður þessarar
bókar varð sem hér segir: Hand-
rit bókarinnar ásamt prófarka-
lestri: 128 þúsund krónur. Setn-
ing, prentun og pappír í bókina:
113 þúsund krónur. Myndamót,
prentun á myndum og mynda-
pappír: 50 þúsund krónur. Um-
brot og umsjón með útliti bók-
arinnar ásamt öllum kostnaði við
hlífðarkápu: 46 þúsund krónur.
Bókband: 165 þúsund krónur.
Auglýsingar og dreifingarkostn-
aður: 40 þúsund krónur. Opinber
gjöld, skrifstofukostnaður, húsa-
leiga, rýrnun o.s.frv. 40 þúsund
krónur. Samanlagður útgáfu-
kostnaður bókarinnar verður 582
þúsund krónur, en upplag var
3000 eintök; þurfti forlagið því að
selja af bókinni 1875 eintök með
því verði sem óhætt þótti að
ieggja á bókina, 311.25 krónum á
eintakið, eða 63% af upplagi bók-
arinnar. Áður en kaupandi tekur
við bókinni bætast við sölulaun
bóksala sem nema þriðjungi af
forlagsverðinu; útsöluverð 415
krónur. Og á þá upphæð leggst
söluskattur til ríkisins TVi°/o.
Þegar forlagið hefur endurheimt
sinn kostnað af bókinni er hlutur
bóksala af sölu hennar orðinn
194 þúsund krónur, en ríkið hef-
ur skattlagt. söluna um 43.650
krónur sem vonandi hafa allar
komizt til skila. Og þá eru óseld
af' bókinni 1125 eintök og eiga
vonandi eftir að gefa þessum
þremur aðilum, forleggjaranum,
gjaldheimtunni og bóksölum í
landinu, eitthvað í aðra hönd.
m þessar tölur má að sjálf-
sögðu ræða á ýmsa vegu. Arn-
björn Kristinsson bendir m. a. á'
þetta:
— Eins og sölutölurnar bera
með sér er sala töluvert greiðari
á þýddri skáldsögu en frumsam-
inni íslenzkri skáldsögu, þýddum
barna og unglingabókum en frum-
sömdum, og þýddur skemmtiróm-
an selst, að minnsta kosti í fyrstu
lotu, i mun stærra upplagi en
alvarleg skáldsaga, þýdd eða
frumsamín. En innlendu bækurn-
ar reynast oft drýgri í sölu þeg-
ar frá líður og jafna upp þennan
mun á nokkrum árum. Um barna
og unglingabækur er þess að geta
að þær endast almennt lengur í
sölu en bækur handa fullorðnum,
2—3 ár, þar sem sumar bækur
handa fullorðnum hreyfast ekki
hót eftir að fyrstu sölunni lýkur.
En það er glöggt að frumsamdar
unglingabækur eiga minnsta kosti
fyrst í stað örðugra uppdráttar á
markaðnum en sams konar bækur
þýddar. Þegar kemur að bókum
handa fullorðnum lesendum snýst
þetta við — með undantekningu
fyrir suma létta rómani og ævin
týrasögur, eins og bækur Alistair
MacLean sem seljast hér eins og
annars staðar í mjög stóru upp-
lagi, allt að 6000 eintökum er mér
sagt. En að öðru leyti hafa frum-
samdar innlendar bækur forgang
á markaðnum þó sveiflur séu í
sölunni eins og tölurnar hér að
ofan bera með sér. Ævisögur eiga
tryggan markað — ef þær greina
frá manni sem er þjóðkunnur, við-
urkenndur á sínu sviði áður en
kemur að bókinni. Setberg hefur
gefið út margs konar bækur — þó
aldrei ljóðabók, ég bíð enn eftir
handriti sem mér líki — en á
seinni árum hef ég gefið út mik-
ið af ævisögum innl. og erl.
manna og hef af því góða reynslu.
Og Setberg gefur út mikið af
barna og unglingabókum, bæði
frumsömdum og þýddum. Mér
fannst þörf á því að gera þokka-
legt átak í barnabókagerð og hef
reynt að vanda barnabækur Set-
bergs eftir föngum, bæði textann
og frágang bókanna. Börn og
unglingar eiga sömu kröfu á góð-
um bókum og aðrir lesendur. En
það er annað hvort að gefa slikar
bækur út í töluverðum mæli eða
láta það alveg vera. Markaðurinn
er viðkvæmur og vandmeðfarinn,
og verkið vinnst Iéttara á alla
lund með meiri útgáfu en minni.
Annars hygg ég með 17 ára
reynslu af útgáfustarfi að baki
geri ég mér nokkra grein fyrir
því hvers konar og hvaða bækur
eigi mesta möguleika á markaði
hér hjá okkur. Ég held það væri
hægt'að gefa út svo sem 5 bæk-
ur á ári með alveg tryggum á-
góða, — séu þær fleiri verður
málið strax flóknara. En hverjar
þær eru er annað mál — reynslan
er dýrkeypt. Ég hef gefið út 300
bækur — og vitað 400 þúsund
króna hagnað af bók, en líka 250
þúsund króna tap. Ég hef selt 235
eintök af bók, sem ég lét prenta
í 2000 eintökum. En líka 4300 ein-
tök af frumsaminni íslenzkri bók.