Alþýðublaðið - 08.10.1967, Side 10
10
Sunmidags AlþýSuMaff — 8. október 1967
fyrirsætur vilja leggja
undir sig kvikmyndirnar
Johann Shimkus byrjar bráð
um að Ieika í þriðju mynd
sinni . Hún er eina fyrirsætan
sem sýnt hefur góða hæfileika
sem kvikmyndaleikkona. (Að of
an til hægri.)
Twiggy sést hér með unn-
j usta sínum og umboðsmanni,
; Justin de Villeneuve, og leik-
j aranum Richard Harris í gervi
j Artúrs konungs. Twiggy sem
I enn er ekki orðin átján ára
j gömul hefur hug á að gerast
i tízkuteiknari og stofna tízku-
j verzlun. Hún hefur sungið inn
j úona, og nú vlja hinir háu
á plötu sem dægurlagasöng-
herrar í Hollywood kynna hana
sem „nýja Andrey Hepburn .
„t (Til hægri).
betur, þótt hún sé engin stór-
stjarna. Og Johanna Shimkus
var svo heppin að leika í ógætri
mynd til að byrja með, „Ævin-
týramennirnir” með Alain Delon
og Lino Ventura, þar sem hún
fékk góða dóma. Johanna er
kanadísk og hefur ekki breytt
nafni sínu, vegna þess að það
þótti nógu framandlegt, eins og
það var. Hún fluttist til Parísar
og gerðist fyrirsæta hjá franska
kvennablaðinu E 11 e , en nú er
hún að leika í annarri mynd
sinni.
Donyale Luna er negrastúlka
frá Detroit sem nú er í hópi
hinna eftirsóttustu fyrirsætna.
Hún er 1,87 m. á hæð og þveng-
mjó, fyrsta blökkustúlkan sem
tekizt heíur að komast inn í
hinn þrönga hring hátízkunnar.
Coco Chanel sagði um hana: —
„Hún er svo grindhoruð, að það
er eins og hún sé að dauða komin
af næringarskorti. Augun eru
alltof stór og munnurinn alltof
áberandi. Hún er alltof sterkur
persónuleiki, of svipmikil; hún
drepur tízkuna.” En Donyale er
ný og fersk og þykir stórkostleg.
Hana hefur alltaf langað að ger-
ast leikkona, en hinn kunni ijós-
myndari Richard Avedon fékk
hana til að gerast fyrirsæta. Nú
er í ráði að hún leiki í franskri
mynd; ef til vill undir stjórn
sjálfs Rogers Vadim.
Og nú er röðin komin að Twig-
gy. Hún vakti mikla hrifningu í
Holiywood þegar hún var þar
fyrir skömmu, og kvikmynda-
framleiðendurnir vilja óðir og
uppvægir kynna hana sem hina
nýju Audrey Hepburn. Twiggy
harðneitar að fallast á það, —
finnst það fjarstæða og ofdirfska.
Hún er nýbúin að syngja inn á
plötur tvö lög sem heita „When
I think of you” og „Over and
over,” og hún þykir hafa iaglega
rödd. Hvort hún verður mikil
leikkona er enn óvitað.
Það þykir þó fyrirsjáanlegl,
að engin Sofia Loren eða Ra-
ciuel Welch komi úr hópi þess-
ara tágrönnu stúlkna með 70—
80 cm. brjóstmál. 75—55—77
hlýtur að bíða lægra lilut fyrir
100 — 60 — 105. Vöxtur fyrirsætna
og vöxtur kvikmyndadísa er æði
ólíkur, en ekki loku fyrir það
skotið, að einhver af „renglun-
um” hafi leikhæfileika sem bæti
allt hitt upp.
frægasta fyrirsæta heimsins fyrir
tíu til fimmtán árum, jafnvel
enn vinsælii en Twiggy nú. Hún
byrjaði á kvikmyndaleik. og mik-
il auglýsingaherferð var hafin
en eftir að fyrstu myndirnar
komu á markaðinn var aumingja
Suzy búin að vera. Hún reyndist
ekki nærri eins falleg á ,kvik-
mynd og hún hafði virzt í mynda-
blöðunum, hreyfingarnar voru
stirðar og óeðlilegar, og hún
hafði hreint alls enga leikhæfi-
leika. Og þegar hún ætlaði aftur
að hefja . fyrirsætustarfið kom í
Ijós, að hún hafði fitnað, og ein-
hvern veginn náði hún sér aldrei
á strik aftur. Það var eins og
ófarirnar úr kvikmyndaheimin-
um loddu við hana.
Jean Shrimpton var eítirsótt-
asta fyrirsætan þangað til Twig-
gy litla kom fram á sjónarsviðið.
Jean lék í kvikmynd með brezka
leikaranum Terence Stamp sem
hún ætlar'nú að fara að giftast,
en því miður þykir árangurinn
harla lélegur. Myntíin sem heit-
ir P r i v i 1 e g e er nýkomin á
markaðinn, en gagnrýnendurnir
í Englandi eru allt annað en á-
nægðir. „Ungfrú Shrimpton seg-
ir fram textann eins og hún
væri að lesa upp símaskrána und-
ir dáleiðsluáhrifum,” segir einn
þeirra. Og bætir við: „Leikur
hennar er ámóta spennandi og
volgur tómatsafi í kokkteilboði.”
Og hið virta T i m e s segir:
„Þegar hún á að túlka dýpstu
þjáningar mannshjartans, mætti
ætla af svip hennar, að hún
gengi með meltingartruflanir.”
Jean tekur þessu með auðmýkt
og segist vita, að hún verðskuldi
allt saman, en hún mundi halda
áfram og reyna að gera betur
næst. Það er bara ekki víst að
kvikmyndaframleiðendurnir
verði eins ákafir. Kvikmyndir
kosta peninga, og mistök eru
dýr.
Elsu Martinelli hefur gengið
Jean Shrimpton var eftirsótt
asta fyrirsætan þegar Twiggy
kom fram á sjónarsviðið en
kvikmynd hennar hefur hlotið
afar slæma dóma.