Alþýðublaðið - 08.10.1967, Síða 14
Sunnudags fllþýffublaff — 8. október 1987
Rambler Americatl 440 4-Door Sedan
Eigum nokkra bíla af þessari vinsæl i tegund til afgreiðslu strax.
Mjög hagstætt verð, en í því er m.a. innifalið:
a) Ryðvörn
b) styrking á fjaðraútbúnaði
c) Tvöfalt hemlakerfi
d) 128 ha. vél (benzíneyðsla að
eins ca. 12 á hundraðið).
SÝNINGARBÍLL Á STAÐNUM
Rambler kjör
Rambler gæði
Rambler ending
Góðir greiðsluskilmálar
Við tökum gömlu bifreiðina
upp í þá nýju.
JÓN LOFTSSON HF.
Hringbraut 121 — Sími 10600.
BÆNDUR
Nú er rétti timinn tll . aO skrí
^élar og tæki sem á aO iei]k
Innilegar þakkir til allra sem auðsýndu okkur samúð og
vináttu við andlát og útför móður okkar og tengdamóður
INGVELDAR JÓNSDÓTTUR
frá Suðurgötu 37 - B Hafnarfirði.
Börn og tengdabörn.
TRAKTORA
MÚGAVÉLAR
SLÁTTUVÉLAR
BLÁSARA
ÁMOKSTURSTÆKl
Við seljum tækin
Bíla- og
Búvélasalan
'/Mlklatorg. sími 2313«
Trúlofunarhrlngar
Sendam gegn póstkröí’a.
Fljót afgrelðsla.
iuðm borsteinssor
gnllsmlðnr
i Hankastræti it
Farah Dibe
Frh. af 6. síðu.
En keisarinn vill fá úrskurð
þingsins áður en krýningarat-
höfnin fer fram. Ef tillagan
verður samþykkt getur það haft
gífurleg áhrif á réttarstöðu
kvenna í Múhameðstrúarlöndum.
Farah er kyrrlát í framkomu
og hefur mikla stjórn á tilfinn-
ingum sínum. Hún er ekki gjörn
á að tala um einkalíf sitt, en
nýlega opnaði hún lijarta sitt
venju fremur í yiðtali við belg-
ískan blaðamann. „Áður en ég
giftist,” sagði hún, „var ég
ihraedd við smámuni eins og
slöngur, þrumur og eldingar og
að vera ein í myrkri. Ég var svo
mikið barn þá. Nú óttast ég að-
eins eitt — að eitthvað komi fyr-
ir manninn minn. Hamingjan
sem hann hefur gefið mér er það
dýrmætasta sem ég á, og ég nýt
hverrar stundar sem við fáum að
vera saman. Við minnumst aldrei
á orðið d a u ð i, en ég get ekki
að því gert .. ég er svo óskap-
lega hrædd um hann. Ég er eins
og tvær konur í einni — keis-
araynjan og konan sem elskar
manninn sinn. Ég veit, að ég má
ekki vera vanþakklát, en stund-
um get ég ekki varizt því, að
óska, að ég væri ekki keisara-
ynjan af Persíu, heldur aðeins
rétt og slétt frú Pahlavi.”
Bókaúfgáfa
Framhald úr opnu.
skatt á bókum að dæmi Norð
manna. Söluskatturinn er óvið-
komandi okkur útgefendum en fyr-
ir kaupendur hefði eftirgjöf hans
mikla þýðingu; bókaverð lækk-
aði og menn sæju að hinu opin-
bera væri alvara að styðja við
bókaútgáfu. Báðar þessar aðgerðir
saman hefðu meiri áhrif til efl-
ingar bókmennta og bókaútgáfu
í landinu en þúsund fallegar há-
tíðaræður um gildi bókmennt-
anna. — Ó. J.
Lexikon
Framhald af bls. 7.
helga eftir Anne Holtsmark og
Orkneyinga sögu eftir Finnboga
Guðmundsson, en forsíðumynd
ritsins þessu sinni er af mynd
Ólafs úr Maríukirkju í Bergen,
frá fimmtándu öld.
Þann 26. ágúst voru gefin saman i
hjónaband ungfrú Nína Björk Elíasson
og Guðbrandur Jónsson. Heimili þeirra
er aö Sólheimum 23.
Studio Guðmundar. Sími 20900.
ENDURMINNINGAR SVEI-
LÖNU STALINU í VIKUNNI
RAMBLER AMERICAN
„440" 4ra dyra
í næsta tölublaði Vikunnar,
sem kemur út á fimmtudaginn,
birtist fyrsti hluti endurminninga
Svetlönu Stalinu, ,,20 bréf til vin
ar“. Vikan hefur fengið birting-
arrétt á þessu sögulega efni og
flytur það í nokkrum næstu blöð |
um. Minninga Svetlönu hefur ver
ið beðið með mikilli óþreyju, enda
birta öll helztu vikublöð heims
þær um sama leyti.
í „20 bréfurn til vinar“ fást
svör við mörgum spurningum um
sögu Sovétríkjanna síðustu ára-
tugi. Sem dæmi skulu nefnd fá-
ein atriði: Hvað er hið sanna í
sögusögnum, sem komust á kreDc
eftir dauða Stalíns? Dó hann eðli
legum dauðdaga, eða var andláti
hans flýtt með því að varna því,
að hann fengi þau meðul sem
hann þurfti? Stóðu keppinautar
hans, þar lá meðal Krústjov, fyrir
því? Élvernig bar dauða móður
Svetlönu að? Það var látið svo
heita, að hún hefði framið sjálfs
morð, en fréttamenn á Vesturlönd
um ihafa hins vegar haldið fram,
að Stalín hafi myrt hana í bræði,
af því að hún gagnrýndi stjórn-
málaaðferðir hans.
í ,,20 bréfum til vinar“ segir
Svetlana sannleikann um þessi
atriði og mörg fleiri. Minningar
hennar hafa hlotið mikið lof bók
menntagagnrýnenda. Þær eru vel
skráðar og frásagnir í senn trú-
verðug og spennandi.
Hvert viljið þér fara?
Nefnið staðinn. Við flytjum
yður, fljótast og þœgilegast.
Hafið samband
við ferðaskrifstofumar eða
AMERÍCAM
Hafnarstræti 19 — sími 10275
SERVÍETTU-
PRENTUN
SÍMI 32-101.