Alþýðublaðið - 12.10.1967, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 12.10.1967, Blaðsíða 4
æD^mo) Rttstjórt: Benedlkt Gröndal. Sfmar 14900—14903. —- Auglýslngaslml: 14906. — Aðsetur: Alþýðuhúsiö vIC Hverfisgötu, Evlk. — Frentsmlðja Alþýðublaðslns. Síml 14905. — Askriftargjald kr. 105.00. — t lausa' aölu kr. 7.00 elntakið. — Útgefandl: Alþýðuflokkurlna. Siæm byrjun Framsóknar TÍMINN birti í gær eins konar stefnuskrá, sera blaðið segir, að Framsóknarflokkurinn ætli að fylgja á því þingi, sem 'nú er að hefjast. Eru framsóknarmenn ^þannig að reyna 'að verða á undan forsætisráðherra, .sem mun flytja stefnuræðu fyrir hönd stjórnarflokk anna strax og formsatriðum þingsetningar lýkur. ■ Framsóknarmönnum verður þó ekki kápa úr því klæðinu, því að tillögur þeirra eru gamall óskalisti, þar sem algerlega er sneitt framhjá þeim raunveru- legu vandamálum, sem Alþingi nú verður að leysa. ]?að er lítill vandi fyrir stjórnmálaflokk að krefjast hringvegar um landið, nýrrar skipunar heilbrigðis- mála, aukinna skólabygginga og sjónivarps, þegar flokkurinn leiðir algerlega hjá sér 'að nefna einu orði, hvernig á að afla fjár til þessara framkvæmda. Framsóknarmenn hafa verið alllengi utan ríkis- stjórnar, en forystumenn þeirra hafa samt sem áður svo mikla reynslu og svo mikinn þroska, að þeir hljóta að vita, hvaða vandamál Alþingi verður að leysa fyrst á þessu hausti. Þeir skilja auðvitað, að það verð ur að afla ríkissjóði tekna til að mæta óhjákvæmi- legum gjöldum, og það verður að veita atvinnuveg- unum þá grundvallarhjálp, að framleiðslukostnaður haldi ekki áfram að hækka. Um þetta segja framsóknarmenn þó ekkert. Þeir ætla að mæta erfiðleikum efnahag^lífsins, verðhruni afurða og minnkandi afla, með því að stórauka opin- herar framkvæmdir, án þess að nefna einu orði, hvernig afla eigi fjár til þeirra — hvað þá annarra þarfa ríkissjóðs. Það er ósköp vandalítið að segjast ætla að berjast fyrir endurreisn atvinnulífsins og leggja svo aðeins til, að allar atvinnugreinar verði rannsakaðar ofan í kjölinn. Það er sífellt verið að framkvæma slíkar rannsóknir, svo að stefna framsóknarmanna er lítið nema innantcm orð. r jcðiivm er ljóst, að heildartekjur hennar hafa rýrn- að verulega, og þessi tekjurýrnun hlýtur að koma ein hvern veginn niður á flestu landsfólki. Þjóðin er viðbúin fórnum, en bíður eftir stefnuræðu forsætis- ráðherra til að heyra tillögur ríkisstjórn'arinnar. En framscknarmenn eru á annarri bylgjulengd. Þeir við- urkenna ekki, að við slíka erfiðleika sé að etja —- og tillögur beirra bera þess ljósan vott, hve óraunhæft mat þeirra er. Oskalisti framsóknarmanna cr ekki heildarstefna, sem hæ»í er að bera saman við stefnu ríkisstjórnar- innar. Þeir mundu framkvæma allt aðra stefnu, ef þeir væru við vökl. Þess vegna er þetta snemmbæra plagg Tímans slæm byrjun á þingstörfum Framsókn- arflokksins. SKODAEIGENDUR! SKODAVERKSTÆÐI HÁLFDÁNS ÞORGEIRSSONAR er viður- kennt af Skodaverksmiðjunum og annast allar viðgerðir á Skodabifreiðum. ^ Viðfferðarmenn sérhæfðir í viðgerðum Skodabifreiða og lærðir hjá Skodaverksmiðjunum. Verkstæðið hefur öll fullkomnustu tæki og „special“ verkfæri til viðgerða Skodabifreiða. Til hagræðingar fyrir Skodaeigendur sækjum við bifreið yðar heim og skilum lienni aftur að lokinni viðgerð. Önnumst allar „body“ viðgerðir. LÁTIÐ YFIRFARA BIFREIÐ YÐAR FYRIR VETURINN. FLJÓT OG GÓÐ ÞJÓNUSTA. SkodaverkstæSi Hálfdáns Þorgeirssonar Dalshrauni 5, Hafnarfirði — Sími 51427. krossgotum ★ RJÚPNAVEIÐITÍMINN FRAMUNDAN. Áður en langt um líður hefst rjúpnaveiðitíminn. Samkvæmt fugiafriðunarlög- unum er heimilt að veíða rjúpu á tímabilinu frá 15. okt. til 22. des. ár hvert. Ekki er gert ráð fyrir mikilli rjúpnaveiði í ár, jafnvel þótt veðurskil- yrði og snjóalög yrðu hagstæð veiðimönnum, þar sem rjúpnastofninn var í hámarki í fyrra, en þó engin uppgripaveiði neins staðar á landinu. Þetta fer reyndar nokkuð eftir því, hvernig ungunum liefur reitt af í vor, en á því kunna fuglafræðingar eflaust góð skil, því þeir fylgjast nákvæmlega með vexti og viðgangi rjúpunnar. Þrátt fyrir takmark- aða veiðivon má þó gera ráð fyrir, að rjúpnaskytt- ur fari að hugsa sér til hreyfings, þegar líður að því, að friðunartíminn renni út. Margir stunda rjúpnaveiði sem íþrótt og sport, en einnig kann að vera svolítil hagnaðarvon í bakhöndinni, ef heppnin er með. Og svo þarf auðvitað að tryggja sér rjúpur í jólamatinn, eins og venjulega. Sá siður var ríkjandi fyrrum, meðah rjúpnaveiði var liöfð að atvinnu, að veiðin var nær eingöngu stunduð á rúmhelgum dög- um, og var ekki talið gæfusamlegt að bregða út af þeirri reglu, enda gerðu það fáir. Nú er þessu alveg öfugt farið, flestir fara á veiðar um iielgar, enda eiga margir ekki heimangengt á öðr- um tímum vegna vinnu sinnar. Þá leggja Reyk- víkingar leið sína til fjalla í rjúpnaleit, upp á Uxahryggi og Kaldadal eða í Skjaldbreiðarhraun, jafnvel austur á Bláfellsháls, ef svo ber undir, en erfitt getur verið að hitta á’ rjúpuna, sérstak- lega framan af hausti, meðan snjór er lítill f fjöllum. j ★ NÁMSKEIÐ FYRIR RJÚPNASKYTTUR. Það hefur oft viljað við brenna, að rjúpnaskyttur færu afvega eða villtust af réttrl leið, ef eitthvað hefur borið út af með veður, sem einatt kemur fyrir á haustdögum, ekki sízt upp til fjalla. Má segja, að stundum hafi ekki mátfc tæpara standa, að veiðimenn heimtust til byggða, og ýmsir jafnvel átt líf sitt að launa hinum dug- andi björgunarsveitum, sem ávallt eru reiðubún- ar að koma til hjálpar, ef á þarf að halda. Það er þess vegna ekki úr vegi, nú þegar rjúpnaveiðitím- inn er framundan, að brýna sérstaklega fyrir öll- um rjúpnaveiðimönnum að fara að öllu meS gát og tefla ekki í tvísýnu að óþörfu. Menn ættu t. d. að hafa í huga hið fcrnkveðna, að fáir kunna sig í gfiðu veðri heim- an að búa. Sjálfsagt er líka að stinga á sig dá- Jitlum nestisbita, og enginn ætti að fara á' rjúpna- veiðar án þess að hafa með sér landnkort og átta- vita, enda þarf liver og einn að kunna að notfæra Framhald á bls. 15. 4 12. október 1967 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.