Alþýðublaðið - 12.10.1967, Side 9
■i
: vX-X;,:-.’::-- •---
: :
Vesturlönd og predikað sálræna
slökun og hugræna ró íyrir á-
heyrendum sínum og kennt und
irstöðuatriði hugleiðingar. — í
ágústlok þessa árs var hann
staddur í London og hélt nám-
skeið fyrir fylgjendur sína á
Hilton hótelinu þar sem hann
'bjó. Þkngað komu til hans dag
nokkurn Bítlarnir fjórir og báðu
um einkatíma í hugleiðingu. Og
svo alteknir urðu þeir af aðferð-
inni eða persónuleika fræðarans
að þeir fóru með honum til Wal-
es til að halda hugleiðingariðk-
uninni áfram um tveggja vikna
skeið.
i Þar bjuggu þeir í litlu hóteli,
gengu um í rósóttum skyrtum
með periufestar um hálsinn að
sið hippíanna, borðuðu hrísgrjón
og karrí eins og Indverjar og
æfðu hugleiðingu af kappi und-
ir umsjón fræðarans. Maharishi
Mahesh ráðlagði þeim eindreg-
ið að leggja hughvarfalyfin á
hilluna og hætta neyzlu-LSD og
lofaði þeim betri árangri ef þeir
einbeittu sér að hugleiðingariðk
unum 'í staðinn.
Þeir vory í Wales, þegar fregn
in um dauða Brians Epstein
barst þeim. Það var mikið reið-
arslag fyrir þá, en láhrif ,,hans
heilagleika" eins og fylgjendurn
ir kalla fræðara sinn urðu sorg
inni yfirsterkari. Þeir fóru til
London, en voru ekki við jarðar-
för Epsteins samkvæmt. beiðni
móður hans sem óttaðist múgæs
ingu aðdáenda þeirra og vildi
ógjarnan að samkunduhúsið
fylltist af óðum Bítlalýð meðan
sonur hennar væri jarðsunginn.
Að sjálfsögðu voru blaðamenn
afar forvitnir að heyra um hug-
leiðingariðkun Bítlanna. ,,Hans
heilagleiki hefur bjargað lífi
okkar“, sagði Paul McCart'ney.
,,Við vorum að verða að vélum.
En nú eygjum við réttu leiðina
til að losna við sálarflækjur og
óhamingju“.
Og Ringo Starr bætti við: „Líf
okkar hefur verið rótlaust og
órólegt. Við höfum getað veitt
okkur allt sem kaupa má fyrir
peninga, en þegar þvi stigi er
páð sér maður hvað auðæfin eru
lítis virði. Okkur langaði ekki
lengur til neins, og munaðurinn
var okkur einskis virði. Við próf
uðum hughvarfalyf, en þau vpru
ekki rétta svarið. Það er eins
með þau og áfengi, að það er
auðvelt að flýja raunveruleik-
ann með aðstoð þeirra, en á eft-
ir finnur maður aðeins til meiri
leið^ en áður“.
Daginn sem Brian Epstein
var jarðaður tilkynnt John Lenn
on blöðunum, að þeir félagar
væru á förum til Indlands mjög
bráðlega. „Þar ætlum við að
dveljast í tvo mánuði til að
halda hugleiðingariðkunum okk-
ar áfram undir handleiðslu hans
heilagleika", sagði hann. „Og
þegar við komum aftur til Lond
on ætlum við að stofna hugleið-
ignarskóla, sem verður opinn
öllum þeim er þrá að finna
innri ró og heiðríkju andans, —
Framhald á bls. 15.
ER FLUTTUR
að Laugavegi 10.
HREIÐAR JÓNSSON, klæðskeri.
Sími 16928.
Fundarboð
Aðalfundur FÉLAGS ÁHUGAMANNA UM FISKIRÆKT
verður haldinn í Átthagasalnum Hótel Sögu, í dag fimmtu-
daginn 9. nóvember n.k. kl. kl. 8,30 e. h
Fundarefni:
1. Aðalfundarstörf samkvæmt lögum félagsins,
2. Lagabreytingar.
STJÓRNIN.
Sláturhús Hafnarfjarðar
tilkynnir
KJÖTSALAN ER í FULLUM GANGI.
Fimm kjötverðflokkar. — Opið til kl. 10 þessa
viku. ,
^ '
SLÁTURHÚS HAFNARFJARÐAR.
Guðmundur Magnússon.
Hótel Selfoss
verður starfrækt í vetur. Tek á móti fastafæðis-
kaupendum sem öðrum gestum.
STEINUNN HAFSTAÐ.
Byggingarfélag verkamanna, Reykjavík.
Til sölu
tvær þriggja lierbergja íbúðir í II. og X. byggingarflokki.
Þeir félagsmenn, sem neyta vilja forlsaupsréttar að þeim,
sendi umsóknir sínar í skrifstofu félagsins Stórholti 16 fyrir
kl. 12 á hádegi miðvikudaginn 18. október n.k.
STJÓRNIN.
Aðalendurskoðandi
Staða aðalendurskoðanda pósts og síma er laus
til umsóknar. Umsækjendur hafi lokið prófi í
viðskiptafræði eða endurskoðun. Laun sam-
kvæmt hinu almenna launakerfi starfsmanna
ríkisins.
Umsóknir berist póst- og símamálastjórninni
fyrir 20. október n.k.
Nánari upplýsingar um stöðuna veitir hag-
deiidarstjóri pósts og sím'a.
Reykjavík, 11. október 1967.
Póst- og símamálastjórnin.
12. október 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ 9,