Alþýðublaðið - 31.10.1967, Blaðsíða 3
Slökkvi-\
f\°\ '#
llðiö :
æfir sigl
I gær var í Sakadómi Reykja-
víkur kveðinn upp dómur í mólinu:
Ákæruvaldið gegn Þorvaldi Ara
Arasyni, lögíræðingi. Var ákærð-
ur dæmdur í 16 ára fangelsi og
sviptur leyfi til málflutnings fyrir
héraðsdómi og Hæstarétti, og
löggUdingu tU sóknar opinberra
mála i héraði, og ennfremur heild
sölu- og smásöluleyfum. Loks var
Þorvaldur Ari dæmdur til greiðslu
alls sakakostnaðar.
Niðurstaða dómsins var sú, að
Þorvaldur Ari hefði brotið gegn
211. gr. hegningarlaga með því að
ráða fyrrverandi eiginkonu sína
Hjördísi Úllu Zebits, bana með
hnífsstungum í íbúð hennar að
Kvisthaga 25 í Reykjavík, að
morgni laugardagsins 7. janúar
s.l.
211. grein hegningarlaga hljóð
ar svo í Lagasafni-frá 1954: „Hvér
sem sviptir annan mann lífi, skal
sæta fangelsi ekki skemur en í 5
ár, eða ævilangt“.
Þorvaldur Ari Arason var dæmd
ur í 16 ára fangelsi, en til frádrátt
ar kemur gæzluvarðhaldsvist Ihans
síðan 7. janúar. Þá var hann svipt
ur leyfi til málflutnings fyrir hér
aðsdómi og Hæstarétti, og lög-
gildingu til sóknar opinberra mála
í héraði, og ennfremur heildsölu-
og smásöluleyfum. Loks var hann
dæmdur til greiðslu alls saka-
kostnaðar.
Sakadómur í máli þessu var skip
aður þremur dómurum, Þórði
Bjömssyni, yfirsakadómara og sak
adómurunum Gunnlaugi Briem og
Halldóri Þorbjömssyni. Af hálfu
ákæmvaldsins flutti málið Hall-
varður Einvarðsson, aðalfuRtrúi
sakadómara, en verjandi ákærðs
var Gunnar A. Pálsson, hæstarétt
arlögmaður.
Þess skal getið að lögum sam-
kvæmt ber að áfrýja dómum
sem hljóða upp á 5 ára fangelsi
eða lengri fangelsisvistar, til
Hæstaréttar. Ofangreíndar upp-
lýsingar fékk fréttamaður Al-
þýðublaðsins hjá Sakadómi Reykja
víkur síðdegis í gær.
Tengdu saman tvö
mannlaus geimför
Moskva 30. okt. (ntb-reuter)
í GÆR tókst í fyrsta sinn að láta
tvö geimför tengjast saman út í
geimnum á sjálfvirkan hátt. Það
voru sovézkir vísindamenn, sem
unnu þetta afrek n:eð gervitungl
unum Kosmos 186 og’ Kosmos 188,
en samtenging sem þessi er tal-
Rðnnsókninni
enn ekki lokið
Fréttaritari Alþýðublaðsins átti
siðdegis í gær samtal við Jón Abra
ham Ólafsson rannsóknardómara
í máli skipverjanna á Ásmundi
GK. 30.
Jón kvað yfirheyrslum vera
lialdið áfram, en ekkert umtals-
Framfiaid á 15. síðu.
in nauðsynlegt skref í að senda
mannað geimfar til tunglsins. —
Gervitunglin voru tengd saman í
3'/2 klst. og skildust þá aftur í
sundur eins og ráðgert hafði ver-
ið.
Bandaríkjamönnum tókst í
fyrra að láta tvö geimför tengj-
ast saman úti í geimnum, en ann-
að þeirra var mannað tveimur
geimförum og stjórnuðu þeir teng
ingunni.
Moskvu-útvarpið rauf útsend-
ingu sína til þess að færa áheyr-
endum fregnina um þennan mikla
sigur. Sagði útvarpið, að þessi á-
fangi opnaði möguleika fyrir stór
um geimstöðvum úti í geimnum,
sem svifu umhverfis jörðu. Þá
sagði útvarpið, að mjög þýðingar-
mikið vísindalegt vandamál hefði
verið leyst með þessu.
Þegar geimskipin tengdust sam
an var nákvæmlega vika til 50
ára afmælis byltingarinnar í
Rússlandi. Eru miklar getgátur
uppi um það nú, hvort Rússar
muni ekki reyna enn meiri visinda
leg afrek í tilefni þessa. Forseti
sovézku vísindaakademíunnar, Mit
islav Keldysj, ihefur neitað þessu
og sagt, að ekkert mannað sov-
ézkt geimfar muni fara á loft
þann 7. nóv. næstkomandi.
Talið er, að Kosmos 186 sé stórt
geimfar, sem rúmað geti 5 manna
áhöfn. Því var skotið á braut
sem liggur rétt við braut geim-
skipsins Sojus 1., sem tali.ð er
að hafi hrapað til jarðar, þegar
rússneski geimfarinn Vladimir Ko
marov hafi verið að reyna að
tengja tvö geimför saman.
Geimskipin tvö fóru fjærst 276
km frá jörðu, en skemmst 200
km. Áður en þau tengdust sam-
an tóku þau bæði ýmis konar
flóknar stefnubreytingar til þess
að komast rétt að hvort öðru.
Bjarnleifur Ijósmyndari ók í góða veðrinu í gær suður fyrir
flugvöll og þar kom hann að þessu mikla báli. Þetta reyndist
þó ekki vera alvarlegur cldsvoði, heldur hafði þar verið kveíkt
í skúradrasli svo að slökkvilið flugvallarins gæti æft sig að
slökkva elda. Og auðvitað gat Bjarnleifur ekki stillt sig um
að smella af myndavélinni, og hér sjáið þið árangurinn.
SPILAKVÖLD
Síldveiði allsstaðar
Fyrsta spilakvöld Alþýöuflokksfélags Reykjavíkur á þessum vetri |
I verður haldið n.k. fimmtudag 2. nóvember, í Lidó, og hefst það kl. \
§ 8,30 síðdegis stundvíslega. Á þessu fyrsta spilakvöldi hefst þriggja |
I kvölda keppni. Stjórnandi verður Gunnar Vagnsson. Veitt verða venju i
| leg kvöidverðiaun auk sérstakra verðlauna fyrir þriggja kvölda keppn \
í ina. i
í Björgvin Guðmundsson flytur stutt ávarp, en síðan verður dans i
I að til kl. 1 eftir miðnætti, og leikur hinn vinsæli sextett Ólafs i
i Gauks fyrir dansinum, en Svanhiidur syngur með hljómsveitinni að i
| vanda. i
1 Athugið, að þeir, sem koma fyrir kl. 8,30 þurfa ekki að borga rúllu I
| gjald, en húsið verður opnað kl. 8,00. i
í Aiþýðuflokksféiag Reykjavíkur.
Á sunnudag fór veðnr batnandi á
síldarmiðunum austur af landinu
og síðdegis var komið gott veð-
ur. Veiði var sæmileg fram eftir
nóttu, en í gærmorgun stóð síld-
in mjög djúpt og var þá engin
veiði.
Fjörutíu og átta skip tilkynntu
um afla, samtals 5.135 lestir.
Lestir.
Skarðsvík SH 130
Seley SU 230
Dagfari ÞH 160
Helga RE 200
Gideon VE 140
Sæhrímnis KE 130
Jörundpr III. RE 100
Hoffell SU 80
Magnús NK 100
Magnús Ólafsson GK 120
Lómur KE 140
Bergur VE 100
Guðrún Guðleifsdóttir ÍS 90
Ögri RE 90
Bára SH 80
Albert GK 130
Hrafn Sveinbj.son III. GK 90
Guðbjörg ÍS 190
Guðmundur Péturs ÍS 100
Hannes Hafstein EA 130
Reykjanes GK 70
Björg NK 110
Brettingur NS 150
Kristján Valgeir NS 165
Eldborg GK 180
Jörundur II. RE 80
Guðbjörg ÍS 60
Arnar RE 65
Hafdís SU 80
Jón Kjartansson SU 90
Hrafn Sveinbjarnarson GK 40
Framhald. á 15. síðu.
31. október 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3