Alþýðublaðið - 31.10.1967, Blaðsíða 11
Björn Vilmundarson
endurkjörinn form. FRI
Islandsmeistarar Vals í knattspyrnu 1967.
Ársþtng Fhjálsíþróttasambands
íslands var háð í Reykjavík um
Ihelgina. Björn Vilmundarson, for
maður FRÍ setti þingið og minnt-
ist í upphafi þriggja látinna for-
ystumanna, þeirra Gunnars Stein
miimimiiuiuiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuii'HiHiiniiiiiiiiiiii
| ERLENDUR:!
| 53,24m. í |
I kringlukðsti I
! ERLBNDUR Valdimarsson, ÍR, f
i setti cnn eitt unglingametið í j
I kringlukasti rétt fyrir helgina, =
| kastaði 53,24 m. Gamla metið, j
1 sem Erlendur átti, var 53,06 §
| m. Á sama móti, sem haldið j
'j var í kulda og allhvössu veðri j
| varpaði Erlendur kúlu 16,19 =
j m, en unglingamet ihans í I
I þeirri grein er 16,33 m.
j Erlendur hefur sýnt miklar j
E framfarir í sumar og búast má |
j við, að hann verði enn betri j
É næsta keppnistímabil, þar sem =
j hann æfir af nákvæmni og i
l kostgæfni. j
• lUIUIUHUIUIIHHIUIUIIIIHIIHIIIIUIHlllHUUIIUHIIIIIIII
dórssonur, Guðmundar S. Hofdal
og Benedikts Jakobssonar. Risu
þingfulltrúar úr sætum í virðing-
arskyni við hina látnu,
Formaður fluti skýrslu stjórn-
ar sem var hin ítrasta. FRÍ var
20 ára á þessu ári í því tilefni var
m.a. efnt til afmælismóts og fyrstu
Garpsmerki FRÍ voru afhent
Garpsmerkin hljóta íþróttamenn,
sem hlotið hafa 10 stig samkvæmt
sérstakri reglugerð.
Það sem mesta athygli vekur
á sviði frjálsíþrótta á starfsárinu
er mikill fjöldi unglinga sem bætt
ist í hóp frjálsíþróttaiðkenda.
Fjármálin er erfið hjá FRÍ og
skuldir sambandsins vaxa, þrátt
fyrir allgóða styrki og tilraunir til
fjáröflunar, en starfsemin er
kostnaðarsöm og fer stöðugt vax
andi. Skuldir sambandsins eru nú
rúmar 416 þúsund krónur.
Eins og fyrr segir var Björn
Vilmundarson einróma endurkjör
inn formaður FRÍ, en aðrir í stjórn
þeir Svafar Markússon, Örn Eiðs
son, Snæbjörn Jónsson, Páll Gunn
arsson, Sigurður Björnsson for-
maður Laganefndar og Sigurður
Helgason, formaður Útbreiðslu-
nefndar. í varastjórn voru kjörn-
ir: Ingvar Hallsteinsson, Jón M.
Guðmundsson og Ingi Þorsteins-
son.
Austur-Þýzkaland sigraði Dani í
handknattleik kvenna á laugar-
dag með 21 marki gegn 10.
— o —
Malmö varð sænskur meistari í
knattspyrnu, en keppninni lauk
um helgina.
— o —
Pólverjar og Rúmenar gerðu jafn
tefli í knattspyrnu á sunnudag.
— o —
Lyn varð bikarmeistari í knatt-
spyrnu í Noregi. Vann Rosenborg
í úrslitaleik um helgina 4:1. Ros-
enborg er aftur á móti meistari.
— o —
Norðmenn sigruðu Svía í hand-
knattleik kvenna á sunnudag 15:4.
Gylfi Jóhannsson Fram átti góðan lcik gcgn Stadion og hér skorar
hann. tj
Valur leikur báða
leikina í Búdapest
ÞEGAR Valsmenn voru að til-
kynna fréttamönnum á fundi í
gær, að ákveðiö væri, að fyrri
leikur Vals og Vasa frá Búda-
pest færi fram á Laugardalsvell-
inum 5. nóv. n. k. og síðari leik-
urinn í Búdapest 15. nóv., var kali
að á Elías Hergeirsson, formann
knattspyrnudeildar Vals í sím-
ann. Þegar Elías kom aftur, tjáði
hann fréttamönnum að þetta væri
allt breytt, forráðamenn Vasa
höfðu hringt í Björgvin Schram,
formann KSÍ rétt fyrir hádegi og
tilkynnt honum, að Vasa-menn
gætu ekki komið til Reykjavíkur
5. nóvemher og í staðinn hefðu
þeir boðið Valsmönnum að báðir
leikirnir yrðu leiknir í Búdapest
15. og 17. nóvember. Vasa-menn
buðust til að greiða ferðir og uppi
hald Valsmanna. Valur tók þessu
tilboði.
Eins og skýrt hefur verið frá,
er Vasa mjög sterkt lið og i því
eru mai’gir beztu knatt^pyrnu-
•menn Ungverjalands, m. a. Far-
kas, en hann og annar leikmaður
úr þessu félagi voru valdir í svo-
kallað heimslið í knattspyrnu að
lokinni heimsmeistarakeppninni í
Englandi í fyrra.
Þjálfari Vasa, Illowsky, er mjög
þekktur þjálfari og lék á sínum
tíma í ungverska landsliðinu. 111-
owsky þjálfar einnig ungverska
landsliðið, sem unnið hefur marga
frækna sigra, liðið vann m. a.
Brasilíu i HM í fyrra og gerði
þar með að engu drauma Brasilíu
manna um að krækja í heimsmeist
aratitilinn þriðja sinn í röð.
Það eru erfiðir leikir framund-
an hjá Valsmönnum í Búdapest, en
Valsmenn þjálfa af kappi og við
skulum vona, að liðið fái ekki
mjög slæma útreið, en fáir erti
þeir sem reikna með að Valur
sigri.
Frá leik Víkings og Stadion. Einar Magnússon hefur scnt boltann í
netið.
31. október 1967 - ALÞYÐUBLAÐIÐ