Alþýðublaðið - 29.11.1967, Blaðsíða 7
UPPRIFJUNARNÁMSKEfD
A UNDANFORNUM árum hef-
ur Bindindisfélag ökumanna
oft haldið góðaksturskeppni sem
jafnan hefur vakið töluverða at
hygli. Á síðastliðnum vetri efndi
Reykjavíkurdeild B.F.Ö. svo til
tveggja upprifjunarnámskeiða
sem segja má að séu að vissu
leyti framhald góðaksturskeppn
innar. Hið þriðja var haldið í
haust.
Alþýðublaðið hefur átt tal við
Vigfús Hjartarson ritara Reykja
víkurdeildarinnar, og segir
hann að ætlunin sé að halda
upprifjunarnámskeið í janúar og
febrúar. Og tekur skrifstofa B.
F. Ö. á móti þátttökutilkynning-
um, en hún er opin milli 5 og 7
siðdegis, sími 17455.
Upprifjunarnámskeiðin eru
opin fyrir alla hvort sem þejr
eru félagsmenn eða ekki. Efni
(þeirra var að farið var í stórum
dráttum yfir umferðarlögin,
leiðbeint um akstur í umferð-
inni, tekin fyrir einstök gatna-
mót og skýrt hvað fyrir geti
komið og !hvað gera skuli í
hverju tilfelli, hálkuakstur og
skyndibjálp ef slys ber að hönd
um. Þar að auki var rætt um
öryggi ökutækisins og trygginga
mál. Skuggamyndir og aðrar
myndir voru notaðar við fræðsl
una, og segir Vigfús að ætlunin
sé að nota skuggamyndir meira
á þeim námskeiðum sem fram
undan eru.
Vigfús kvað höfuðtilganginn
með námskeiðum þessum að
bæta umferðarmenninguna yf-
irleitt, en öll starfsemi B. F. Ó.
beinist að þvi. Hann sagði að fé
lagið væri þakklátt Slysavarna-
félaginu sem ljær því jafnan
húsnæði fyrir námskeið þess,
svo og öðrum aðilum eins og
Varúð á vegum sem fúslega hafa
veitt hverja iþá aðstoð sem um
er beðið.
Aðspurður um hvort B. F. Ö'.
hefði nokkrar sérstakar tillögur
fram að bera — sem til
bóta horfa í umferðinni í höfuð
staðnum vísaði hann til sam-
þykktar er aðalfundur Reykja
víkurdeildarinnar gerði.
Er hún svohljóðandi:
Aðalfundur Reykjavíkurdeildar
B. F. Ö. skorar á Umferðanefnd
Reykjavíkur, lögregluyfirvöld,
borgarverkfræðing og aðra hlut
aðeigandi aðila:
1. að bætt verði nú þegar úr
merkingu og lýsingu á gang-
brautum, á þann veg, að merk
ing þeirra sé ávallt sem greini
legust. í því sambandi telur fund
urinn, að bót væri að því, að
settir verði upp kúplar með
blikkandi Ijósum.
2. að bætt verði nú þegar úr
<merkingu akreina. Akreinamerki
verði sett upp yfir akreinar,
svo sem mælt er fyrir um í reglu
gerð um umferðarmerki, 9. gr.
Akreinamerki þessi mættu vera
stærri og greinilegri en nú er.
3. að reglur um aðalbrautir verði
endurskoðaðar með tilliti til
þess, að aðalbrautir verði ein-
ungis þær götur, sem örugglega
geta borið þá umferð, sem þeim
er ætlað sem aðalbrautum. At-
hugað verði hvort ekki sé æski-
legt, að söfnunaræðar fyrir
margar hliðargötur verði aðal-
brautir, þótt þær víki fyrir
stærri aðalbrautum.
4. að malbikun, viðgerðir og
málning aðalbrauta verði ekki
látnar fara fram á tímabilinu kl.
7 - 19 á daginn, og að götum
verði aðeins lokað undir umsjón
lögreglunnar.
5. að umferðarljósum verði
fjölgað að mun og þau
samstillt.
6. að ljós og hljóðmerki slökkvi
sjúkra- og lögreglubifreiða
verði breytt nú þegar, eins og
slökkviliðsstjórinn hefur þegar
lagt til. Blá ljós verði notuð og
tveir ljóskúplar á hvoru fram-
horni bifreiðanna. „Ba — Bú‘‘
hljóðmerki verði tekið upp.“
SJÖ ARA BARATTA SKQTA
ENGLENDINGAR hafa löngum
verið íhaldsamir í frímerkjaút-
gáfum sínum. Upplögin hafa ver
ið mjög stór og myndirnar á
merkjunum hafa nær eingöngu
verið af kóngum og drottningum
landsins. England hefur því ver
ið talið meðal hinna „'heiðarleg
ustu“ frímerkjalanda, þ.e.a.s.
það hefur ekki gefið út frímerki
ótt og títt til þess eins, að seil-
as djúpt í vasa frímerkjasafn-
aranna, en, eins og kunnugt er,
eru mörg lönd ekki saklaus af
því athæfi. — Skotar hafa stund
um staðið dálítið uppi í hárinu
á Englendingum, einkum flokk-
ur þjóðernissinna, og má í því
sambandi minna á þann atburð,
er þeir með leynd fóru inn í
Westminster Abbey kirkju, tóku
krýningarsteininn og fluttu norð
ur í Skotland. — segja má, að
síðustu 7 árin hafi staðið yfir
kalt frímerkja-stríð milli þess-
ara granna. Skotar eiga sér þjóð
skáldið Robert Burns, en hann
er dáinn fyrir rúmlega 160 ár-
um. R. Burns fæddist árið 1759
í Alloway í Ayrshire-héraði og
ólst þar upp við bústörf á bæ
föður síns Williams. Öllum frí
tímum sínum varði hann til
bóklesturs. Gömul kona var
á heimili hans, sem sagði hon
um fjölda af ævintýrum, þjóð-
sögum og draugasögum og ork
uðu þessar sagnir mjög sterkt
á húgmyndfeflug drengsins.
Sextán ára byrjar hann að
yrkja og hélt því áfram alla
ævi. Hann er ótvírætt lýrisk-
lasta ljóðskáld Skota og alls Eng
lands. — Nokkru fyrir árið 1959
— en það ár voru 200 ár liðin
frá fæðingu hans — tóku Skot
ar að hreyfa því við ensku póst
stjórnina að gefin yrðu út
minningar frimerki um Robert
Burns, en í það skipti fengu þeir
algert afsvar. Þó leyfði póst-
stjórnin það, að 25. jaöúar 1959
mætti pósthúsið í Atloway hafa
opna afgreiðslu sína, þótt þenn
an dag bæri upp á sunnudag,
og gefin voru út sérstök minning
ar-umslög, 29 þúsund að íölu, til
þess að stimpla á, á þessum
„The Cherry-season is over“ er nafn kvikmyndnrsem franski leikstjórinn Pierre Granier-Deferie
hefur nýlega gert eftir skáldsögunni „Le grand Dadais“ eftir Bretann Poirot-Delpech. Kvikmyndin er
þýzk.frönsk framleiösla. Aðalhlutverkið (Patricia) er leikið af þýzku leikkonunni Evu Renzi. Félagi lienn
ar (Alain) er Ieikinn af Frakkanum Jacques Perrin Alain er óreyndur ungur maður, sem verður ást-
fanginn af Patriciu, sem er ljósmyndafyrirsæt.a. Vegna ástar sinnar á Patriciu missir Alan vitið,
fjármuni sína og frelsi.
Eva Renzi er 23 ára og upprennandi leikkona sen vakið hefur mikla athygli á þessu ári.
heiðurs- og afmælisdegi Burns.
Þetta fannst þjóðernissinnun-
um skozku ekki nóg. Þefr tóku
nú það til bragðs að gefa út
Burns merki, sem á vai; prent
að verðgildið 2 plack, en plack
var gömul skozk-mynt, sem svar
aði til ]/á af pennyi og var í
gildi á dögum Burns. Vitanlega
var ekki hægt að nota þessi
merki sem burðargjöld 'á póst
sendingar, en títt sáust þ^u límd
á bréf við hlið hinni ajlgengu
frímerkja. i
Árið 1964 skeður það rv(. á
ævagömul venja í enskri frí-
merkja-,,pólitík“ er rofin og gcf
in eru út minningar-merki á
400 ára afmæli Shakespeares
með myndum af ýmsu úri leikrit
um hans, ásamt mynd drottn
inj^arinnar, en eins /og áðúr
er sagt, voru konunga- og drottn
inga-myndir ætíð á merkjuni
Breta fram að þessu. Aðdáend-
ur R. Burns í Skotlandi brugð-
ust þannig við þessu, áð þeir
gáfu út sérstök umslög fyrir úl-
gáfudag Shakspeares-frímerkj-
anna með eftirfarandi áletrun:.
„Við hörmum það, að þurfa að
heiðra útlent skáld, en vera mein
að að heiðra skáldið okkar, R.
Burns, á sama hátt.“ — Og nú
gat póststjórnin brezka ekki
iengur hafnað kröfu Skota um
Bnr^s-frímerki. — Sex skozkir
listamenn voru fengnir til að
teikna merkið. Og við sjáum
e;‘t þeirra hér á myndinni. —
Nokkrar aðfinnslur komu fram
við þessa útgáfu. M. a. fannst
mörgum Skotum að eitt af merkj
unum hefði átt að sýna fæðing
arstað Burns í Allovvay, en þar
er nú safn allra verka hans. —
En hvað um það, Skotar hafa nú
fengið dálítinn plástur á sár sín.
Keflavík
Blaðberar óskast til að bera Alþýðublaðið
til áskrifenda í Keflavík.
Upplj|singar í síma 1122.
29. nóvember 1967 - ALÞYÐtJBLAÐIÐ