Alþýðublaðið - 29.11.1967, Blaðsíða 10
Nýtt hefti
Frarahald af 5. síð'u.
sendiherra íslands hjá Samein-
uðu þjóðunum og grein er eftir
Jón Jónsson, fiskifræðing, um á-
hrif fiskveiðanna á mikilvæga
fiskistofna í hafinu umhverfis
landið. Fylgja þessari grein góð-
’ ar upplýsingar um iþróun veið-
anna undanfarpa áratugi og á-
ganginn á stofnana.
Prófessor Gahriel Turvielle-
Petre skrifar um íslenzkunám í
•: brezkum háskólum, en Turvielle-
í Petre er einn af fremstu fræði-
monnum á því sviði. Þá segir Ice-
1 land Review frá hinu nýja rann-
‘ sóknarskipi Árna Friðrikssyni og
- Gösta von Matern skrifar um ís-
'lenzka síld á sænskum markaði,
^þróun innflutningsins til Svíþjóð
far á undanförnum árum og mati
'Svía á íslenzku síldinni. Ennfrem
íur birtir ritið allmargar upp-
jskriftir sænskra rétta úr íslenzkri
síld.
‘ Sagt er frá prjónastofunni
Heklu á Akureyri, almennar ís-
dandsfréttir eru í ritinu, frétta-
;þáttur frá sjávarútvegi, bókaþátt
jur, fróðleikur um ferðamál o. fl.
;Með þessu hefti hefst 5. ár út-
gáfunnar á Iceland Review, sem
frá upphafi hefur verið í 'höndum
‘Haralds J. Hamars og Heimis
íHannessonar.
Ekki hrossakaup
Framhald af 1. síðu.
íega komið til mála, að fleiri
iflokkar fengju hlutdeild í stjórn
landsins, ef það í raun og veru
jhefði getað stuðlað að lausn
yandamálanna. En stjórng^mvnd
un ' án samkomulags um ^ýrræðí
1 megindráttum gat ekki verið
spor í þá átt.
Gylfi benti á, að slíkar til-
raunir til valdatöku hefðu verið
reyndar fyrr, en þær hefðu ekki
tekizt. Verk,alýðshreyfingin hefði
ekki látið leiða sig til slíkra
ævmtýra, en hefði í þeirra stað
til dæmis gert júnísamkomulag-
ið. Þá rakti Gylfi fyrri afstöðu
Framsóknarflokksins til gengis-
lækkunar, sem hefur verið ö)l
önnur en nú.
Gylfi fullyrti, að það mundi
hægara að láta gengisbreyting-
una ná tilgangi sínum án Fram-
sóknarflokksins en með honum,
Þess vegna látum við okkur í
léttu rúmj liggja, þótt framsókn
armenn tali gegn henni. Við vit-
um, að hún var nauðsynleg. Við
vitum líka. að það hefði verið
auðvelt að fá framsóknarmenn
í lið með henni. En við kærum
oJckur ekkert um að greiða það
verð fyrir fylgi Framsóknar-
flokksiris, sem við þvkjumst vita,
að hann mundi setja upp. Við
kærum okkur ekkert um að
taka upp þá afturhaldsstefnu í
efnahagsmálum, sem Framsóknar
flokkurinn aðhyllist.
Gylfi sagði og í ræðu sinni, að
ríkisstjórnin myndi leitast við að
hafa sem nánast samband við
stjórn Alþvðusambands íslands
og önnur heildarsamtök atvinnu
veganna til þess að gera byrðar
gengislækkunarinnar sem Iétt-
bærastar. Ríkisstjórnin sé líka
reiðubúin að ræða um þessi mál
-•■'* ctiórnarandstöðuflokkana, en
slík samvinna megi ekki byggj-
ast á hrossakaupum, heldur á
sameiginlegum skilningi á vanda
málunum og vilja til að leysa
þau.
Almenningur
Framhald af 1. síðu.
Mál sitt hóf Bragi með því að
minna á nafn nýútkominnar bók
ar, Suðaustan fjórtán, en þar er
átt við Stórhöfða í Vestmanna-
eyjum, þar sem ætla megi af
veðurfregnum, að oft sé rok.
Bragi sagði, að málflutningur
stjórnarandstöðunnar væri likur
þessu. Þar væri alltaf suðaustan
fjórtán, eilífur stormbeljandi,
allt er forkastanlegt, sem stjórn
arflokkarnir hafa gert eða ætla
að gera, núverandi ríkisstjórn er
óalandi, og ætti að vera óráð-
andi öllum bjargráðum, svo sem
kveðið var að orði um skóggangs
menn til forna.
Bragi taldi, að þetta væri á-
stæðan fyrir því, að stjórnarand
staðan tapaði kosningunum sl.
vor. Þar réði hinn eilífí storm
beljandi verulegu um, að greina
ekkert mill| þess, sem andstæð
ingar þeirra höfðu vel gert og
miður gert, heldur ráðast á allt
jafnt með suðaustan fjórtán. Al-
menningi féll ekki slíkt veðravíti.
Hann sneri sér undan veðurofs-
anum, leit á hann sem gjörninga
veður.
í ræðulok kvaðst Bragi ráð-
leggja stjórnarandstöðunni heilt:
Hættið þessum sífellda suðaustan
fjórtán, hættið þessum eilífa
stormbeljanda, reynið að hafa far
sæl áhrif á málefni lands og
þjóðar með ábyrgri afstöðu, með
því að segja af fyllstu einlægni
kost og löst á hlutunum að eig
in dómi án hornauga á stjórnar
stóla, því að til þess voruð þið
kjörnir á þing.
Nauðgun
Framhald af 3. síðu.
Þegar stúlkan var orðin ein
með Dönunum tveimur skipti
engum togúm, að sá eldri, sem
mun vera fullorðinn maður, 42
ára gamall, réðist á stúlkuna, sló
hana utanundir og síðan við gólf
ið og slá hana út í vegg. Þegar
maðurinn hafði yfirunnið stúlk-
una, bar hann hana illa til reika
í rúm, sem nærliggjandi var. Þar
hjálpuðust mennirnir báðir til
að afklæða stúlkuna og mun sá
yngri hafa nauðgað henni.
Yngri maðurinn, sem er 19
ára að aldri eins og áður er
sagt, hefur játað við yfirheyrslu,
að hafa haft kynmök við stúlk-
una eftir að sá eldri hefði slegið
hana og yfirunnið.
Stúlkan kærði ekki atburðinn
fyrr en á laugardag, en atburður
inn átti sér sað á fimmtudag síð
degis. Lögreglan handtók annan
Danann á laugardag, en hinn á
sunnudagsmorgun. Rannsókn
málsins stendur enn yfir. Menn-
irnir eru báðir í gæzluvarðhaldi.
Félagsheimili
Framhald af 2. síðu.
stóð til kl. 1 eftir miðnætti, en
þá lauk þessari hátíðarsamkomu,
sem staðið hafði frá kl. 15.45 um
daginn.
|_0 29. nóvember 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Félagsheimilið Lyngbrekka er
teiknað af Gísla Halldórssyni arki
tekt. í því er stórt leiksvið, rúm-
góður samkomu- og veitingasalur,
forstofa, eldhús, safnherbergi,
búningsherbergi, geymslur o. s.
frv. Grunnflötur hússins er um
320 fermetrar og undir baðum
endum aðalálmu eru kjallarar. —
Húsið, sem nú er komið mjög
langt í byggingu, kostar á fjórðu
milljón króna. Smíði þess hófst
árið 1959, og hefur verið unnið
við það á hverju ári síðan. Yfir-
smíður fyrsta árið var Eiríkur
Davíðsson, en Sigurgeir Ingi-
marsson síðan. Formaður bygg-
ingarnefndar hefur verið öll árin
Brynjúlfur Eiríksson, bóndi og
bílstjóri á Brúarlandi. Var hon-
um á vígsludaginn, ásamt konu
sinni, færð blómakarfa frá eign-
araðilum hússins, fyrir mikil og
óeigingjöm störf.
Tala vígslugesta mun hafa verið
um þrjú hundruð og mættu þar
til 'hátíðar, auk heimamanna, fjöl-
margir burtfluttir Mýramenn,
svo og ýmsir, sem komið hafa við
sögu byggingarinnar og lagt
henni lið. Meðal gesta var Þor-
steinn Einarsson íþróttafulltrúi.
Hjaltalín 4.
1:!
★ Valur - Ármann 16:10.
Leikur þessi var allsæmilega
leikinn og sýndu Valsmenn oft
og tíðum góða spretti, þar sem
hraði var allsráðandi. Ármenn-
inga vantaði í þennan leik Ást-
þór, en hann hefur verið drjúg-
ur í markaskorun í haust og það
var einmitt það sem vantaði í
leik Ármanns, fleiri skyttur.
Flest mörk Vals skoruðu Her-
mann 5 og Bergur, Ágúst, Jón
Ág. og Jón K. 2 hver. Fyrir Ár-
mann skoruðu flest mörk Hreinn
og Guðmundur Sigurbjörnsson 4
hver.
KR - ÍR 17:9.
Þessi leikur var vægast sagt
mjög lélegur, mikið um rangar
sendingar og léleg skot. ÍR-vörn-
in var í molum og hefði ekki
komið til góð markvarzla Hall-
dórs, 'hefði sigur KR getað orðið
mun stærri. KR-liðið er að mót-
ast og hefur sótt sig mjög í mót-
inu og verður gaman að fylgjast
með þeim í íslandsmótinu í vet-
ur.
Flest mörk KR skoruðu þeir
Karl; Jó., Hilmar og Gísli Blön-
dal 4 hver, en hjá ÍR þeir Vil-
hjálmur, Þórarinn og Ágúst Svav
arsson 2 hver.
Námskeið
Framhald af 2. síðu.
í tryggingamálum og því mikils
virði, að umboðsmennirnir um
allt land geti leiðbeint því am
helztu tryggingagreinar og aðstoð
að það þegar tjón ber að hönd
um.
Samvinnutryggingar gera ráð
fyrir fleiri slíkum námskeiðum
síðar í vetur.
Leirkeraverzlun
Framhald af 3. síðu.
skreytingar úr leir, sem víða erl
endis prýða veggi kirkna, en eru
hérlendis m.a. nokkuð vinsælar
kringum arna.
Allir munirnir eru hugmyndir
Hauks, en ásamt því að vera til
sölu að Bergstaðarstræti 4, má einn
ig fá þá hjá íslenzkum heimilis-
iðnaði að Laufásvegi 2.
Giftist
Framhald af 3. síðu.
Konungsfjölskyldan hefur nú
þegar flutt sig til Fredensborgar,
til þess að undirbúa vigsluna og
•móttöku 'hinna 100 gesta og fylgd
arfólks þeirra, sem boðnir verða
til brúðkaupsins, Gestirnir verða
frá Svíþjóð, Noregi, Þýzkalandi,
Bretlandi, Ilollandi og Belgíu. —
Gestalistinn hefur ekki enn verið
birtur, en í opinberri fréttatil-
kynningu um brúðkaupð segir,
að þeir verði allir af háum aðli.
Iþrottir
Framhald af 11. síðu.
ekkert þeirra jafnaðist á við
mark sem Guðjón Jónsson skor-
aði á eigin spýtur, hann 'hrein-
lega lék á alla varnarmenn Vík-
ings með mjög skemmtilegri
boltasveiflu.
í seinni hálfleik hélzt að mestu
sami markamunur, en þó kom-
ust Víkingar í 8:10, en þá skor-
uðu Framarar þrjú mörk í röð
og sigurinn var innsiglaður.
Flest mörk fyrir Fram skoruðu
Guðjón 5 og Sigurður E. 4, en
fyrir Víking Einar 5 og Jón
Höfum jafnan til sölu
fiskiskip af flestum stærðum.
Upplýsingar í síma 18105 rtg i
skrifstofunni, Hafnarstræti 19.
Hátúni * a. 'soatunshúsið
Simi Z187U
()rvai fasteitrnx 48 iUrt
hæfl.
Hilmar V aldiniarsson,
fastelgnaviðsklpti
lón Bjarnason
bæstaréttarlögmaður.
FASTE1 GtlAV IÐ SKI P T I :
BJÖRGVIN JÖNSSON
Fasteignir
Til sölu
Höfum ávallt til sölu tót-
val íbúða af flestum
stærðum og gerðum,
ýmist fullbúnum eða í
smíðum.
FASTEIGNA 4
SKRIFSTOFAN i
AUSTURSTRÆTI 17. 4. HÆÐ. SlMI: 17466
ian
muiiKiaa
FASTEIGNAVAL
UBðlf vlð ollra hœfl
Skólavörðustig in Q. frsiS,
Símar 22911 og 19255
HÖFUM avalit m ,oiu úrval std
2ja-6 herb, íbúðun. einbýllshús-
um og raðhúsum luilgerðum og
í smíðum t Reykjavík, Kópa-
vogi, Seltjarnamesi larðahreppi
og víðar. Vinsamlegast hafið sam
band vlð skrifstofu vora, ef þér
ætlið að kaupa e.ða selja fastelgn
lr_
JÓN ARASON hdl.