Alþýðublaðið - 03.01.1968, Page 4

Alþýðublaðið - 03.01.1968, Page 4
mmmmymM) Eltstjórl: Benedlkt GrQndal. Slmar 14900—14903. — Auglýstngasíml: 14906. — Aðsetur: AlþýOuhúslB vlð Hverflsgötu, Rvflc. — PrentsmlOJa AlfeýOu'olaOslns. Slmi 14905. — Askrlítargjald kr. 109.00. — t lanOÞ aölu kr. 7X0 elntalciO. — Útgefandt: AlþýOuflokkurlnn. Ófriðarár ERLEND BLÖÐ hafa það eftir U Thant, aðalritara Sameinuðu þjóðanna, að árið 1967 hafi rverið eitt hið róstusamasta á 'alþjóða vettvangi, síðan hann gekk í þjónustu samtakanna. Þarf raunar ekki langa upp- rifjun til að komast að sömu niðurstöðu. Ófriðurinn í Vietnam gnæfir yfir önnur ósköp árs- ins, og hafa allar tilraunir til að binda enda á hann reynzt árangurslausar. Enn eru friðarhorfur ekki vænlegar, en mannkynið þráir, að höggvið verði á þennan Gordionshnút og komið á skynsamlegu valdajafnvægi í Austur-Asíu. Ófriður brauzt út milli ísraelsmanna og Araba- ríkja og varð enn sem fyrr með þeim ólíkindum, að hinir fáu og smáu Gyðingar unnu glæsilegan sigur á mörgum nágrönnum sínum og mannfleiri. Nú hafa þeir á sínu valdi mikil Arabalönd', en friður hefur ekki verið saminn. Eiga þeir að skila þessum lönd- um aftur? Hvernig verður öryggi ísraels tryggt? í einu stærsta ríki Afríku, Nígeríu, hefur geysað blóðug borgarastyrjöld síðan í júlí, og sér ekki fyrir enda hennar enn. Skæruhernaður með manndrápum hefur verið í Kongó og portúgölsku nýlendunum, og sama má segja um sum ríki Suður-Ameríku. Víðar hefur ýmist jaðrað við ófrið eða verið um blóðug átök að ræða. Þar má nefna eyna umdeildu, Kýpur, og lönd í austri eins og Laos, Thailand og Burma. Margt hefur verið stórtíðinda, þótt ekki teljist til beins ófriðar. Mikil umbrot eru í Vestur-Evrópu, þar sem Frakkar hafa að nokkru leyti gengið úr hernaðarsamstarfi NATO, og beita sér gegn því að Bretar fái inngöngu í Efnahagsbandalagið. Austan járntjalds hafa orðið ýmsar breytingar til hins betra fyrir alþýðu manna og ríki eins og Rúmenía sýna aukið sjálfstæði. Þó bera málaferli gegn rithöfundum í Sovétríkjunum vott um, að frelsisaukning sé tak- mörkuð og járngreipar ríkisvaldsins hinar sömu. Bylting herforingjanna í Grikklandi og andstaða Konstantíns konungs voru með merkustu tíðindum ársins. Þykir mörgum súrt í broti, að slík ósköp skuli geta átt sér stað í siðuðu Evrópuríki, enda hefur and úð almennings víða um lönd verið mikil. Vísindin unnu enn mikla sigra, bæði með hjarta- flutningi og geimafrekum. Aukin þekking er tekin iað draga örlítið úr fjölgun mannkynsins, en þó helzt hjá efnuðum þjóðum, sem sízt þarf að fækka. Fjöldi þeirra, sem þjást af hungri, fátækt og fáfræði er enn geigvænlegur og krefst meiri átaka en hingað til hef ur bólað á. Bókin fyrír bifreiðaeigendur Samvinnulryggingar hafa lagt megináherzlu á tryggingar fyrir sannvirði, góða þjón* ustu og ýmiss konar fræðslu- og upplýsingastarfsemi. í samræmi við það hefur bókin „Bíllinn minn“ verið gefin út árlega um nokkurt skeið. I hana er hægt að skrá allan rekstrarkostnað bifreiðar í heilt ár. Auk þess eru í bókinni öll umferðarmerkin og aðrar gagnlegar upplýsingar fyrir bifreiðastjóra. Bókin mun verða send, endurgjaldslaust, í pósti til allra viðskiptamanna okkar, sem þess óska. Látið því Aðalskrifstofuna í Reykjavík eða næsta umboðsmann vifa, ef þér óskið, að bókin verði send yður. ÁRMÚLA 3, SÍMI 38500 SAMVINNUTRYGGINGAR LOPAPEYSUR 7 KULDANUM MIKIÐ ÚRVAL OG ULLARTEPPI ÁLAFOSS Þingholtsstræti Breyttur viðtalstími Framvegis mun ég einungis taka á móti sjúklingum í einkatímum. Auglýstur viðtalstími kl. 9,30-11,00 fellur því niður. Tímapantanir í síma 2-38-85 á lækningastofu minni kl. 9-12 daglega. GUÐMUNDUR BJÖRNSSON, augnlæknir — Domus Medica. 4 3. janúar 1968 ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.