Alþýðublaðið - 28.01.1968, Qupperneq 7
n
Verra heilsufar
LÆKNIR í þjónustu enska
ílughersins hefur komizt að
raun um, að veikindahlutfali
meðal eiginkvenna og korn-
barna enskra hermanna er
hærra meðal þeirra sem búa í
fjölbýlishúsum en þeirra sem
búa í einbýlishúsum. Er hér
um að ræða bæði sálræn og lík-
amleg veikindi.
Veikindahlutfall meðal barna
sem lieima eiga í fjölbýlishús-
um, þó einkum þeirra sem eru
á aldrinum fimm til níu ára. er
einnig hærra en barna, sem eiga
heima í einbýlishúsum.
Læknirinn D. M. Fanning
hefur í tvo og hálfan mánuð
rannsakað skýrslur um heilsu-
far 558 hermanna fjölskyldna í
Þýzkalandi. Allar bjuggu þær
í fullkomnu nýtízku húsnæði.
Hvort það var í fjölbýlis- eða
eihbýlis-húsum var háð hreinni
tilviljun.
Dr. Fanning komst að raun
um að líkamlegir sjúkdómar
voru 50% algengari meðal íbúa
fjölbýlishúsanna en íbúa ein-
býlisliúsanna, og þörf á læknis-
meðferð var 63% liærri rríeðal
íbúa fjölbýlishúsanna en liinna.
Hlutfallið var það sama í
' sambandi við legudaga á sjúkra
húsum.
Af 80 sjúklingum sem fengu
lungnabólgu og broncitis áttu
aðeins 14 heima í einbýlishús-
um. Þvagfærasjúkdómar og
taugaveiklun voru helmingi
algengari hjá íbúum fjölbýlis-
húsanna en íbúum einbýlishús-
anna.
Þá kom í Ijós, að því ofar sem
fólkið bjó í fjölbýlishúsunum
þeim mun tíðari voru hjá því
ýmiss taugaveiklunareinkenni.
Konur sem bjuggu á 4. og 5.
hæð höfðu talsvert minna sam-
band við nágranna sína og
vini en þær, sem bjuggu á
neðri hæðunum.
Margar kvennanna sem
bjuggu í fjölbýlishúsunum
kvörtuðu undan leiðindum
þar sem heimilisstörfin voru
— að þær sögðu — bæði fljót-
unnin og fábrotin. Og ef þær
höfðu fyrir kornbörnum að
sjá voru þær mjög bundnar
heima við. Ekki er ósennilegt,
að þetta hafi stuðlað að hinni
háu tíðni líkamlegra og liug-
lægra sjúkdóma meðal íbú-
anna. Tíðni sálrænna s.iúk-
dóma meðal þeirra kvenna í
f jölbýlishúsunum sem áttu
börn á skólaskyldualdri — og
ufinu úti — var ekki hærri en
kvennanna sem áttu heima í
einbýlishúsunum.
BILL FYRIR FUNDI
OG SAMKVÆMI
lega innréttuSiim bíl. Menn frá
ÞESAR myndir eru af nýstár-
brezka tímaritinu Autocar og
Fordverksmigjunum gerðu hann í
tilraunaskyni með það fyrir aug
um að finna upp innréttingu þar
sem farþegum liSi vel, gætu
auðveldlega talaS saman og fund
ið þægilega rúmt um sig þó aS
bíllinn sé ekki óskaplega stór.
Tilraunin var gerð við Ford
Transit. FyriR aftan bifreiðastjóra
sætið var settur einn þægilegur
þriggja sæta bekkur, en þar aft-
an við skeifa sem sýnd er á
Skeifan aftur í bílnum lítur svona út. Hægt er að taka upp motturnar í bakinu' og' þá er þar sjónvarp.
einni myndinni. Bekknum má
snúa við þannig að allir sitji í
einum hring fyrir utan þá sem
eru hjá bílstjóra. Þarna er jafn-
ve! hægt að halda kaupsýslu
fundi eða kynningarsamkvæmi
(í smáum stíl þó), og þarna er
ekki bara útvarp, heidur líka
sjónvarp bak við sessurnar aft-
ast í skeifunni, segulband og
fleira. Sætunum aftast má breyta
í tvíbreitt rúm, og taka fram
borð, og jafnvel koma fyrir klæða
skáp og eldunarplássi. .
23. janúar 1968 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ J