Alþýðublaðið - 09.02.1968, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 09.02.1968, Blaðsíða 1
Föstudagur 9. febrúar 1968 — 49. árg. 32. tbl. — VerS kr. 7 Nærri lá, að til átaka kæmi við dyr sjúkrahúss ins á ísafirði í gær, þegar menn frá brezka blað- inu Tbe Sun birtust þar með frú Ritu Eddon, eiginkonu stýrimannsins af Ross Cleveland, sem liggur þar á sjúkrahúsinu. Reyndu aðrir brezkir blaðamenn að komast inn í sjúkrahúsið með frúnni og uppstóð talsvert þóf þar í dyrunum, og munaði litlu að til handalögmáls kæmi. Úlfur Gunnarsson, læknir sagði í símtali við Alþýðu- blaðið síðdegis, að flestir brezku blaðamannanna hefðu þó verið prúðir^ en sumir þeirra þó hagað sér eins og villidýr. Rita Eddon, eiginkona skip- brotsmannsins aí' Ross Cleve- land, kom til ísafjarðar á há- degi í dag. Fylgdu blaðamenn frá ,,The Sun” hennj fast eftir sem í'yrr. Frúin fór fyrst á hót- el á ísafirði, en eftir hádegið hélt hún til fundar við mann sinn sem liggur á sjúkrahúsinu á' ísafirði. Fyrir utan sjúkrahússbygg- inguna vappaði herskari brezkra blaðamanna sem dvalizt hefur á ísafirði undanfarna sól- arhringa. Er frúin birtist við sjúkrahúsið varð mikili handa- gangur í öskjunni og vildu fréttamennirnir ryðjast inn í sjúkrahúsið til að vera viðstadd- ir er hjónin hittust. B Blaðið hringdi í gær til Úlfs Gunnarssonar yfirlæknis við við sjúkrahúsið á ísafirði. Sagði Úlfur að hann hefði átt í mikl- um erfiðleikum með frétta- mennina. Blaðamennirnir frá ,,The Sun”, sem bauð frúnni til landsins ásamt ættingjum höfðu í hótunum við Úlf, er hann ætl- aði að hindra inngöngu þeirra í sjúkrahúsið. Brezki konsúll- inn liafði samband við Úlf og bað hann hleypa konunni inu ásamt tveimur mönmtm frá „The Sun.” Úlfur kvaðst hins Framhald á 11. síðu. Myndin hér til hliðar var tek. ín á ísafirði í gær, er móðir Eddons stýrimanns heilsaði syni sínum á sjúkrahúsinu þar, en neð'ri myndin sýnir er frú Eddon stígur út úr bifreið við sjúkrahúsdyrnar umkringd fréttamönnum. ANNAÐ AÐ F Á ÍSLANDS Öllum brezkum togara- skipstjórum hefur nú ver- ið skipað að fará burt af Islandsmiðum. Hefur beim verið sagt að halda sig frá miðunum hér við land þangað til móðurskip frá brezka sjóhernum verðtir sent á miðin síðar í þessum rnánuði. Hafa togurunum einkum verið bannaðar veiðar á strand ^"wiunni frá ísafirði til Langaness. Togaraeigendur f Bretlandi hpfa setiS á stöðugum fundum með brezku ríkisstjórninni v-jgna sjóslysanna. í gær, eftir að bvezka ríkisstjórnin, togaraeigend ur og fulltrúar sjómannasamtak- anna höfðu þingað um ráðstaf- anir, til þess að bæta öryggi brezkra togara á hafi úti var á. kveðið, að brezkir togarai skyldu halda hið bráðasta af miðunum hér við land. Ákveðið var að öll j skip, sem eru yfir 140 fet séu skylduð til að hafa loftskeyta- j mann um borð, þannig að ekki sé það undir hælinn lagt, hvort skipstjórinn sinni skeytaútsend- ingum. Var ákveðið að lögleiða skyldi tilkynningakvöð og eiga öll skip, sem eru yfir 140 fet í framtíðinni að tiUcynna sig til Framhald á 11. síðu. Sjúkrahúsii fær Brezk blöð hafa látið mikið út af skipssköðunum hér við land að undanförnu, og liafa óspart boóVð brezku sjómönnun- uro. fé fyrir að fá einkarétt til birtingar á frásög-.im þeirra. Alþýðublaðið' hefur sannfrétt að Burkes skipstjóri á Notts County hafi nú selt brezku blaði einkarétt á frásögu sinni fyrir 500 sterlingspund, en hann hafi sett það' skilyrði að féð rynni til sjúkrahússins á ísafirð’i. oknu

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.