Alþýðublaðið - 09.02.1968, Qupperneq 4

Alþýðublaðið - 09.02.1968, Qupperneq 4
 mzmi) Bitstjórar: Kristján Bersi Ólafsson (áb.) og Benedikt Gröndal. Símar: 14900 — 14903. — Auglýsingasími: 14906. — Aðsetur: Alþýðuhúsið við Hverfisgötu, Reykjavík. — Prentsmiðja Alþýðublaðsins. Sími 14905. — Áskriftargjald kr. 120,00. — i lausasölu kr. 7,00 eintakið. — Útgefandi: Nýja útgáfufélagið hf. t ' Á VERÐI ÞEIM, sem fylgzt hafa með Staksteinum Morgunblaðsins og ritstjórnargreinum þess og Al- þýðublaðsins síðustu daga, dylst ekki, að ágreiningur um trygginga mál er innan ríkisstjórnarinnar. Hefur Morgunblaðið tvívegis ^krifað þannig um þessi mál, að ekki er unnt að láta ósvarað. Hin gamla fátækraframfærsla byggðist á því að velja úr hina efnaminnstu og aumustu til að yeita þeim ölmusu. Þetta var af numið með nútíma almannatryg'g ingum. Fyrir þeim eru allir jafn- ir, engin flokkun í fátæka og ríka- Hinir efnuðu greiða tryggingatekj Ur sínar mestallar aftur til hins opinbera í sköttum. Morgunblaðið vill nú hverfa aft ur til fátækraframfærslunnar, flokka íslendinga í fátæklinga og álna menn, þá sem fá tryggingar BÖa fá þær ekki. Alþýðublaðið mótmælir eins og Alþýðuflokkur inn hefur mótmælt slíkum hug- myndum- í gær mátti lesa í Morgunblað inu, að Alþýðublaðið væri and- vígt því að auka fjölskyldubætur til barnmargra fjölskyldna með lágar tekjur. Þessi fáránlegu full- yrðing byggist á því, að Sjálf- stæðisflokkurinn hefur barizt fyrir því að tjaldabaki undanfar- ið, að allt fjölskyldubótakerfið verði afnumið og því blandað saman við tekjuskattinn. Alþýðu flokkurinn hefur ekki viljað gleypa þessa tillögu hráa, enda er tekjuskattskerfið morandi í ó- réttlæti og svikið í stórum stíl. 3r það raunar óframkvæmt stefnu skráratriði Viðreisnarinnar að af nema tekjuskatt, en ekki að af- nema fjölskyldubætur. Tilgangur Sjálfstæðismanna með þessu samsulli og síðari til- lögum um beina skerðingu fjöl- skyldubóta er einfaldur og aug- ljós- Þeir vilja spara ríkinu 100 milljónir króna eða svo með því að skerða tryggingakerfið um þessa upphæð. Alþýðuflokkurinn hefur þverneitað að samþykkja slíka skerðingu, enda sízt ástæða til að draga nú úr almannatrygg ingum, sem á að auka samkvæmí gömlum og nýjum stefnuyfirlýs- ingum ríkisstjórnarinnar. Alþýðublaðið vill endurtaka, að Sjálfstæðisflokkurinn á þakkir skyldar fyrir þann stuðnig, sem hann hefur veitt tryggingamálum I fyrst og fremst í núverandi ríkis stjórn. Hins vegar hefur það vald ið Alþýðuflokknum vonbrigðum, að strax og á móti blæs skuli Sjálfstæðisflokkurinn krefjast sárfelldrar skerðingar á trygginga kerfinu og Morgunblaðið boða fátækraframfæri í stað almanna- trygginga. Tryggingar eru fyrst og fremst hugsjón og baráttumál jafnaðar- manna. Þeir munu standa fastan vörð um þær. HJÁ því getur ekki farið að mönnum liafi hnykkt við er frá því var skýrt í sjónvarpi ný- lega að einhverjir skemmdar- vargar héfðu vaðið milli sum- arbústaða upp við Laekjabotna að mölvað, eyðilagt og brennt. Nokkru áður hafði verið skýrt frá því að ný ljósker við götur liefðu verið brotin sýnilega bara af því að einhver eða ein hverjir þurftu að svala skemmda fýsn sinni. Og enn þar áður var getiö um vegvísa sem eyðilagðir voru upp við vegamót Þingvalla vegar og Vesturlandsvegar í Mosfellssveit. Þetta eru ekki fallegar frétt- ir. En rekur menn ekki minni til að slíkir atburðir hafi gerzt áður og séu óhugnanlega tíðir? Fyrir hefur það komið að unn ar hafi verið skemmdir á skip brotsmannaskýlum, og m.erki við vegi eru skemmd á hverju ári, og ljóskerabrot við götur í Reykjavik eru svo tíð að nemur miklum fjárútlátum á hverju ári. Ekki er þetta þó nóg. Eitt- livert eliment í þjóðinni virð- ist vilja koma sjónarmiðum sín um á framfæi'i með ofbeldi. FRIMERKI - FRIMERKI innlend og erlend í úrvali. Útgáfudagar — Innstungubækur — Tengur og margt fleira. — Verðið hvergi lægra. Verzlun GUÐNÝJAR, Grettisgötu 45. Sólþurrkaður saltfiskur BÆJARÚTGERÐ REYKJAVÍKUR við Grandaveg. Sími 24345. Einangrunargler Húre’ígendur — Byggingameistarar. Útvegum tvöfalt einangrunargler með mjög stuttum fyrir- vara. Sjáum um ísetningu og alls konar breytingu á glugg- um. Útvegum tvöfalt gler í lausfög og sjáum um mál- töku. Gerurn við sprungur í steyptum veggjum með þaulreyndu g>'r.míefni. — Gerið svo vel og leitið tilboða. — Sími 51139 og 52620. f "vmms Frá Gluggaþjónustunni Tvöfait einangrunargler, allar þykktir af rúðugieri, sjáum um ísetningar, ieggjum mósaik og flísar og margt fleira. GLUGGAÞJÓNUSTAN, Hálúni 27. — Sími 12880. 19092 og 18966 TBL LEiGU LIPRIR NÝIR SENDBFERÐA6ÍLAR án ökumanns. Hcimasími 52286. Hugheilar þakkir sendi ég öllum þeim sem heiðruðu mig og sýndu mér vinsemd á sjötugsafmæli mínu 6. þ. m. Eink um vil ég ílytja samstarfsfólki mínu hjá Bæjarútgerð Reykjavíkur alúðar þakkir fyrir höfðinglega gjöf sem það sendi mér. Heili og farsæld fylgi ykkur öllum um ókomna daga. SIGURJÓN SIGURBJÖRNSSON. Einu sinni sté'ð sí(andir.ynd liér við Tjörnina er kallaðist Hafmey. Mörgrum þótti þetta ekki fagurt verk, enda löngum skiptar skoðanir um listaverk. En þegar sýnt var að myndin mundj ejga að vera þarna á- fram tók einhver pörupiltur málið í sínar hendur og sprengdi myndina í loft upp. Ekki er heldur langt síðan að dejlt var um hvort gjalda ætti skatt af akstri um Kefla- víkurveg. Skiptust menn í tvo hópa og deildu hart, og er ekk ert við því að segja. En ein- hvern brast þolinmæði að haga sér eins og siðaður maður í lýð ræðisþjóðfélagi og brenndi skúrinn þar sem vegatollinn átti að innheimta. Þetta er ekki sérlega falleg afrekaskrá, Og er það ekki athyglisverf að ekkj hefur koirjzt upp upí nejnn vinnanda þessara óhæfu- verka. Er ekki áhugj á að koma þeim undir manna hendur? Ekkert orkar iafn sterkf í þá átt að koma í veg fyrir atburði eins og þessa sem almennings- álitið. En liversu bregzt almenning- ur við? Er það satt að komjð hafi fyrir þegar kvartað er yfir Ijós kerabrotum við aðstandend- ur ungljnga er orðið hafa til að vinna slík verk aö þeir hafi þá brugðizt við reiðir og mælt ó- knyttina upp í börnunum? I því tilfelli væri sök for- eldranna stærra en barnsins. $ 9. febrúar 1968 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.