Alþýðublaðið - 20.02.1968, Qupperneq 11
ÍR OG KR UNNU f I.
DEILD í KÖRFUBOLTA
Á sunnudagskvöld voru leikn-
ir tveir leikir í I. deild íslands-
mótsins í körfubolta. Áttust þar
við lið KR og KFR, svo og ÍR
og Ármann.
* KR - KFR
í fyretu virtust KFR-ingar ætla
að standa töluvert í KR-ingunum
og um tíma náðu þeir sæmilegu
forskoti, en tókst ekki að halda
því. Um miðjan fyrri hálfleik
var staðan 15 stig gegn 12 KFR
í vil. Síðan tók að síga á ógæfu-
hliðina fyrir þeim og glötuðu þeir
forskotinu og um leið baráttu-
■viljanum. í hléi var staðan orðin
KÖRFUBOLTI
í KVÖLD
86 stig gegn 32 og höfðu KR-
ingar nú betur. Seinni hálfleik-
ur var svo algjörlega í höndum
KR-inga og þær fáu tilraunir sem
KFR gerði voru ákaflega fáím-
kenndar og máttlausar. Leiknum
lauk með yfirburðasigri KR, sem
skoraði 91 stig gegn 56 stigum
KFR.
★ LIÐIN.
KR-ingar fóru illa af stað og
virtust óhressir. Áttu þeir mjög
fá fráköst og hittu illa. Þegar
líða tók á leikinn komust þeir
svo í gang og veittist þá ekki
erfitt 'að taka leikinn í sínar
Brynjólfur og Kolbeinn, en einn-
endur. Beztir KR-inga voru þeir
ig áttu þeir Kristinn og Gutt-
ormur sæmilegan dag.
KFR-ingar áttu yfirleitt léleg-
an leik! Þó er vert að geta Bjarna
sem sýndi ágætan leik og einn-
tauk með sigri ÍR-inga sem skor-
uðu 67 stig gegn 58 stigum Ár-
menninga.
mmmmk i
★ LIÐIN.
IR-ingar áttu fremur góðan
dag og bar þar helzt á þeim Ant-
oni og Þorláki, Agnar og Birgir
áttu einnig góðan leik. í heild
var liðið gott en þó voru nokkr-
ir kaflar sem illa voru leiknir.
Helzt voru það fráköstin sem
illa tókust.
Undarlegt er að Ármenningum
hafi gengið svo illa sem raun er
í þessu íslandsmót.i. Eiga þeir
mjög gott lið en virðast haldur
lausir í rásinni og tekst því oft
verr upp en efni standa til. Höf-
uð og herðar ber Birgir yfir þá
Ármenninga. Átti hann langbezt-
an leik og var sá sem liðið byggð-
ist á. Annars var liðið í heild
sinni fremur gott, en eitíhvað
virðist þó vanta.
Björgvin Schram þakkar Guðmundi Sveinbjörnssyni 21 árs starf fyrir
KSÍ.
I KVOLD kl. 20,15 heldur
íslandsmótið í körfuknattleik
áfram að Hálogalandi, og verða
þá leiknir þessir leikir:
4. fl. ÍR-KFR
2. fl. Á-ÍKF
2. deild Breiðablik —
Skarphéðinn.
Athygli er vakin á því, að
breyling hefur verið gerð á
niðurröðun leikja, og flytzt
leikur í 1. flokki milli ÍS og
ÍKF, sem upphaflega var ætl-
að að fara fram þetta kvöld,
yfir á laugardaginn 9. marz
næstk.
ig átti Marinó nokkra góða kafla.
\
★ ÍR-ÁRMANN.
Leikur þessi var skemmtilegur
en nokkuð grófur. Bæði lið léku
vel og nýttu sæmilega tækifærin.
Ármenningar skoruðu fyrstu stig-
in, en ÍR-ingar jöfnuðu fljótlega
og náðu brátt forystu. Munu’ inn
varð þó aldrei verulegur og
skildu lengst af um tíu stig.
Staðan í hléi var 32 stig gegn
25 ÍR í vil. Gangur leiksins í
síðari hálfleik var svipaður og
í þeim fyrri. ÍR-ingum tókst að
halda forustunni þrátt fyrir harð-
ar árásir Ármenninga. Leiknum
Átta lið í I. og II.
deild í knattspyrnu
Björgvin Schram endurkjörinn “ "
formaður Knattspyrnusambandsi ns
ÁRSÞING Knáttspyrnusam- vík um helgina. Þingið sóttu á
bands íslands var háð í Reykja- annað hundrað fulltrúar víðs
vegar að af landinu. Björgvin
Schram, formaður-» sambandsins
setti þingið, en þingforseti var
kjörinn Hermann Guðmundsson
og þingritari Einar Björnsson. —
Miklar umræður urðu á þinginu
og margar tillögur voru fluttar
og ræddar ítarlega. Aðalmál
þingsins var tillaga um róttækar
skipulagsbreytingar, sem m. a.
eru fólgnar í því, að formenn
hinna ýmsu föstu nefnda KSÍ,
skuli taka sæti í stjórn sam-
bandsins. Einnig var kveðið svo
á í tillögunni, að ársþing KSÍ
skuli fara fram annað hvert ár.
Samþykkt var að vísa þessari
tillögu til milliþinganefndar með
56 atkvæðum gegn 50. Þá var
samþykkt á þinginu, að átta lið
skipt fyrstu og aðra deild, en
sú skipan komist á 1970. Tap
var á rekstri sambandsins sl. ár,
eða tæplega 270 þúsund kión-
ui’. Liðin í fyrstu deild fengu
til skiptanna 113 þús. kr. hvert.
Björgvin Schram var endurkjör-
inn formaður KSÍ, en með hon-
um í stjórn eru: Hafsteinn Guð-
mundsson, Kef'íiavík, Hjelgi V.
Jónsson, Reykjavík, Jón Magn-
ússon, Reykjavik, Ingvar N.
Stjóm KSÍ, talið frá vinstri: Jón Magnússon, Ragnar Lárusson, Ingvar N. Pálsson SveinnZöega, Helgi Pálsson, Reykjavík, Ragnar Lár-
V. Jéwwon. Biörsrvin Schram og Hafsteinn Guðmun Jsson. usson, Reykjavik og Sveinn Zo-
ega, Reykjavík. — Guðm. Svein-
björnsson, Akr. baðst undan end-
urkjöri, svo og Axel Einarsson,
sem er formaður HSÍ. Voru þeim
þökkuð vel unnin störf.
ÍR vann
2 leiki
Augljóst virðist, að aðalbar-
áttan í 2. deild íslandsmótsins í
handbolta stendur á milli Reykja-
víkurfélaganna ÍR, Ármanns og
Þróttar. Um helgina voru háðir 4
leikir í deildinni, og að þeim
loknum hefur ÍR tekið forýstu.
ÍR-ingar sigruðu Akureyri á laug
ardag með 26 mörkum gegn 24
í skemmtilegum leik og tryggðu
sér sigur á síðustu mínútunum.
Ármann vann Vestmannaeyinga
með yfirburðum 36:15. Á sunnu-
dag sigruðu ÍR-ingar Vestmanna-
eyinga með gífurlegum yfirburð-
um eða 46 mörkum gegn 9. Þá
vann Akureyri Ármann með 22
mörkum gegn 16, en þess skal
getið, að góða menn vantaði í
Ármannsliðið vegna veikinda.
Staðan í 2. deild er nú þessi:
ÍR 5 4 0 1 147:99 3
Akureyri 7
Ármann 4
Þróttur 4
Keflavík 4
Vestm. 4
20. febrúar 1968 - ALÞÝÐUBLAÐiÐ \\