Alþýðublaðið - 20.02.1968, Blaðsíða 13

Alþýðublaðið - 20.02.1968, Blaðsíða 13
Hljóðvarp og sjónyarp n SJÓNVARP 1 Þriðjudagur 20. íebrúar 1968. 20.00 Fréttir. 20.30 Erlend málefni. Umsjón: Markús Örn Antonsson. 20,50 Hljófteinangrun. Umsjón með þættinum hefur Ólafur Jensson, fulltrúi. Gestur þáttarins er Gunnar H. Pálsson, verkfræðingur, sem mun skýra ýmislegt varðandi hljóðeinangrun íbúða í fjölbýlishúsuin. 21.10 Fyrri heimsstyrjöldin (24. þáttur). Stríðið í löndunum fyrir botni Miðjarðarhafs. Þýðanái og þulur: Þorsteinn Thorarensen. 21.35 Frá vetrarólyinpíuleikunum i Grenoble. Dagskrárlok óákveðin- HUOÐVARP Þriðjudagur 20. febrúar. 7.00 Morgunútvarp Veðurfregnir. Tónleikar. 7.30 Fréttir. Tónleikar, 7.55 Bæn. 8.00 Morgunleikfimi. Tónleikar. 8.30 Fréttir og veðurfregnir. Tónleik- ar. 8.55 Fréttir og útdráttur úr forustugreinum dagablaðanna. 9.10 Veðurfregnir# Tónleikar. 9.30 Tilkynningar. Tónleikar. 9.50 Þingfréttir. 10.10 Fréttir. 10.15 „En það bar til um þessar mund ir“: Séra Garðar Þorsteinsson pró fastur byrjar lestur á bókarköfl. um eftir Walter Russel Bowie. Tónleikar. 12.00 Hádegisútvarp Dagskráin. Tónleikar. 12.15 Til- kynningar. 12.25 Fréttir og veð- urfregnir. Tilkynningar. 13.00 Við vinnuna: Tónleikar, 14.40 Við, sem heima sitjum Sigurlaug Bjarnadóttir ræðir við Guðrúnu Jónsdóttur arkitekt. 15.00 Miðdegisútvarp Mantovani stjórnar flutningi laga úr kvikmyndum og söngleikjum. Eydie Gormé syngur þrjú lög. George Martin og hljómsveit hans leika lög eftir „Bítlana“. Karle Gott syngur tvö lög. 16.00 Veðurfregnir. Síðdegistónleikar. Ólafur Þ. Jónsson syngur lög eftir Jón Þórarinsson og Sveinbjörn Sveinbjörnsson. Artur Schnabel leikur á píanó Impromptu op. 142 eftir Schu. bert. 16.40 Framburðarkennsla í dönsku og ensku. 17.00 Fréttir. Við græna borðið Hallur Símonarson flytur bridge- þátt. 17.40 Útvarpssaga barnanna: „Hrólfur** eftir Petru Flagestad Larssen Benedikt Arnkelsson endar lestur sögunnar í þýðingu sinni (13). 18.00 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir 19.20 Tilkynningar. 19.30 Daglegt mál Tryggvi Gíslason mag. art. flytur þáttinn. 19.35 Þáttur um atvinnumál Eggert Jónsson hagfræðingur flytur. 19.50 Gestir í útvarpssal: Samuel Fur- er og Daissia Merkulova frá Sovétríkjunum leika á fiðlu og píanó a. Rómönsu nr. 1 í G.dúr op. 40 eftir Beethoven. b. Rondino eftir Kreisler. c. Allegro-appasionato eftir D’Avern. d. „Viðkvæmnislegan vals“ eftir Tjaikovskij. e. Spánska rómönsu eftir Zara- zate. f. Gavottu eftir Mozart. 20.15 Álandseyjar _ ríki í finnska ríkinu Baldur Pálmason segir frá. 20.40 Lög unga fólksins Hermann Gunnarsson kynnir. 21.30 Útvarpssagan: „Maður og kona“ eftir Jón Thoroddsen Brynjólfur Jóhanuesson leikari les (22). 21.50 „Rhapsody in Blue“ eftir Ger. shwin: Monia Liter leikur á píanó með Melachrino-hljómsveitinni. 22.00 Fréttir og veðurfregnir. 22.15 Lestur Passíusálma (8). 22.25 Útigangshrossin Árni G. Eylands flytur erindi. 22.40 Verk eftir tónskáld mánaðarins Jón Leifs Þriðji og fjórði þáttur Sögusinfóní unnar op. 26. Leikhúshljómsveitin í Ilelsinki leikur þriðja þátt: Björn að baki Kára“; Jussi Jalas stj. / Sinfóníuhljómsveit ísalnds leikur fjórða þátt: „Gretti og Glám“; höf stj. 23.00 Á hljóðbergi. Björn Th. Björnsson listfræðing- ur kynnir valda kafla úr „Justine“ eftir Markgreifann de Sade og bréf skrifað í fangelsi til eigin. konu hans. Patrick Magee les I enskri þýðingu. 23.55 Fréttir og veðurfregnir. Dagskrárlok. SMURT BRAUÐ SNITTUR-ÖL - GOS Opið frá 9 til 23.30. - Pantið tímanlega í veizlur. BRAUÐSTOFAN Vesturgötu 25. Sími 1-00-12. Dr. Gunnlaugur Þórðarson hrl. iDunhaga 19. Viðtalstímar eftir sam- komulagi. Sími 16410. SMURT BRAUÐ SNITTUR BRAUÐTERTUR BRAUÐHUSlfí SNACK BAR Laugavegi 126, sími 24631. m H/ ■ EFNl ( SMÁVÖRUR TÍZKUHNAPPAR SERVIETTU- PRENTUN SÍMI 32-101. ÁUGLYSID í Alþýðublaðinu ÖSKUBUSKA 16 Úr peningaskápnum á skrifstof unni eftir að liann fór að va.xa úr grasi. — Eruð þið að reyna að telja mér trú um að Kevin sé þjófur? spurði Rhona. — Ég er hrædd um það, svar aði Laura. — Ég trúi þér ekki. — Kevin er ekki aðeins þjóf ur, sagði Steven. — Hann er einnig afar eigingjarn og vill eignast allt, sem honum lízt á. Þú ert falleg og hann viltli eign asf þig. Þess vegna kvæntist hann þér. Ég veit ekki, hvers vegna hann yfirgaf þig, sjálfsagt hefur hairn verið hræddur við bréfið frá veðmangaranum. En þér er óhætt að trúa því, að hann hafði ekkert samvizkubit af að yfirgefa þig. Kevin kæmi aldrei til hugar, að hann gæti gert eitthvað rangt. Hann elsk- aði þig.ekki, Rhona. Menn eins og Kevin elska aðeins sjálfan sig. ■» Rhona sat lömuð og minntist svipsins á andliti Kevins, þegar hann sagði: — Nú ert þú konan mín og ekkert getur aðskilið okk ur. Hann hafði meint hvert orð sem hann sagði. — Þetta er ekki rétt. Þið eruð bara að reyna að fá mig til að snúast gegn hon- um og fá mig til að láta dæma hjónabandið ógilt. Laura hló. — Þú mátt vera hreykin af trúnaðartrausti þínu Rhona, en þú veitir ekki þeim trúnað þinn sem ætci að eiga hann. Veiztn, hvernig á því stóð, að Kevin missti öll hlutabréfin sín í fyrirfækinu? Steven komst að því, að hann hafði íalsað bókhaldið og rænt fleiri þúsund undum punda frá fyrirtækinu. Við neyddum hann til að af- henda hlutabréfin og groiða skaðann. Ég gæti sagt þér bæði eitt og annað um hann bróður minn. Þú hefur sagt mér nóg. Rliona reis á fætur í blindni og gekk til dyra. Hún heyrði Lauru kalla: — Bíddu, Rhona, við borðum eftir augnablik. . . . — Mig langar ekki í mat, — En lögfræðingurinn kemur til að ræða við þig um ógild ingu hjónabandsins. — Hjónaband mitt verður aldrei ógilt. Hún sá í gegnum tárin, að Steven hljóp til henn- ar. — Vertu hérna kyrr, vina mín, sagði hann blíðlega. Ég skal sjá um, að frænka mín verði ekki óvingjarnleg við þig. — Slepptu mér. Hún reyndi að ryðjast fram hjá honum. — Þú ert ekki með sjálfri þér, Rhona. Þú getur ekki farið svona. Þú mátt ekki fai-a aftur til kofans . . Laura stökk fram og þegar Steven leit á hana, smeygði Rhona sér undir hand- legg hans og hljóp út. Hún var ekki aðeins að lilaupa á brott frá Kevin heldur og frá efa- semdum sínum. Kevin gat ekki verið sá, sem þau sögðu hann vera. Hún elskaði hann og hún hefði vitað það, ef hann væri slíkur þorpaiú. Hún stytti sér loið gegnum* skóginn og þegar liún kom að rjóðri þar sem hún sá' til kof- ans heyi’ði hún mannamál. Hún stóð grafkyrr, lömuð af áfallinu. Mennirnir voru að rífa kofann. Þakið var þegar fallið. Meðan hún stóð og horfði á við urstyggð eyðileggingarinnar féll einn veggurinn í rykskýi. Þeir voru að rífa eina heimilið, sem hún átti. Hiin fór að hlaupa, jafnvel þó að hún vissi, að það var til emsk is. — Hvað eruð þið að gera. Hrópaði hún til mannanna. — Hættið. Æ liættið! Mennirnir litu undrandi á hana og einn þeirra gekk til hennar. —Ég er verkstjóri hér, ungfrú. Ég hef fyrirmæli um að rífa kofann. — Hvers vegna? Hver .. . . ? — Herra Steven skipaði okk ur að gera það. Ef þér eruð dam an, sem á töskurnar þarna inni, erum við búnir að taka þær út. Húsgögnin voru einskis virði og okkur var skipað að brenna þau. Vilduð þér vera svo góðnr að færa yður, svo að menn mínir geti haldið störfum sínum á- fram. Rhona var sem mállaus yfir þessu síðasta grimmdarlega bragði Stevens og þessu áfalli. Henni hafði aldrei komið til hug ar að hann myndi gera annað eins og þetta. Mennirnir byrjuðu aftur á störfum sínum og eftir smástund stóð Steven við hlið liennar. Hann hafði elt hana. — Þú neyddir mig til að gera þetta, sagði hann. — Þetta var eina leiðin til að losna við þig héð an. Kofinn var ekki mannabú- s*aður. Flugvél Framhald af bls. 2. nú höfðu orðið ósjálfbjarga á ísnum. Menn fylgdust spenntir með því, hvort þyrlunni myndi takast að hefjast til flugs og viti menn, hún hóf sig á loft eins og ekkert hefði í skorizt. Þrátt íyrir giftusamlega lausn fyrsta þáttar þessa máls var þó enn eítir að bjarga flugvélunum á jökiirum, sem nú voi'u orðnar tvær. Bandaríski flugherinn notaði nú alla sína tækni til að bjarga Visavél sinni; ný skíði voru sett undir vélina, flugvöllur var vudd ur í ísnum og eftir ýmsar lag- færingar hóf hún sig á loft Á ísnum var þó enn Aero Comand- ei'flugvélin. í ágúst sl. gerðu svo þrír Bandaríkjamenn tilraun til að bjarga flugvélinni. Þeirri för lauk á þann óheillavænlega hátt að þeir rákust á fjall nálægt Commanderflugvélinni. Einn þeirra lét lífið, hinir tveir siös- uðust alvarlega og flugvél þeirra var gereyðilögð. í nóvember gerðu svo enn hópar kanadískra flugmanna tilraun til að bjarga vélinni, en er þeir voru nýlagðir af stað uppgötvuðu þeir að út- búnaður þeirra var ófullnægj- andi og snéru þeir því við kaln ir og illa til reika til byggða. í síðustu viku ákváðu þeir aö freista gæfunnar á ný. Héldú þeir af stað í snjóhíl og æt.luðú ekki að brenna sig á sömu mis- tökum á ný og bjuggu sig þess vegna vel til fai'arinnar. Komust Meiír klakkljaust að Aero Commanderflugvélinni, sem nú hafði legið heilt ár í isnum. Hófust þeir þegar handa og rnokuðu öllum snjó burtu frá vél- inni, smurðu hana, reynslukeyrðu báða hreyfla mótoranna og ruddu bráðabirgðaflugbraut. Var á- kveðið að einn þeirra skyldi setj- ast í stjórnsæti hennar og koma henni til næstu flugvallar-i xdar- stöðvarinnar Dye III. Ræst; sá' hreyfla vélarinnar og hóf vélina á loft á magaflugtaki, hniiaði nokki-a hringi yfir höfðum félaga sinna, sem héldu að svo búnu í snjóbílnum í átt til Dye III. eftir Christina Laffeaty Komust þeir þangað síðasta föstu- dag og fengu þá að vita að ekk- ert hefði spui'zt til ferðaféiaga þeirra í Aero Commaínderflug- vélinni, en í hana hafði okkert loftskeytatæki enn verið sett. — Bandariski flugherinn lét þegar tvær flugvélar hefja leitarfiug, en ekkert hefur spurzt til vélar- innar ennþá og er leit lialdið áfram. 20. febrúar 1968 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ 13

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.